Börn og menning - 01.09.2007, Qupperneq 30

Börn og menning - 01.09.2007, Qupperneq 30
28 Börn og menning Guðrún Lára Pétursdóttir Gleði á gúmmístígvélum Um Lífog fjör í Ólátagarði eftir Astrid Lindgren Það eru sennilegar engar ýkjur að segja að allir Islendingar þekki sögur Astridar Lindgren. Allt frá því Fétagsprentsmiðjan á Akureyri gaf Línu langsokk út í íslenskri þýðingu árið 1948 hafa íslensk börn á öllum aldri notið hins stórkostlega sagnaheims þessarar sænsku skáldkonu sem hefði orðið 100 ára einmitt nú í ár hefði hún lifað. í tilefni afmælisársins hefur sögum Astridar Lindgren verið veitt aukin athygli viða um heim þótt hún hafi vissulega verið töluverð fyrir. Út hafa komið ýmis safnrit með verkum hennar og margar bókanna verið endurútgefnar og -prentaðar svo fátt eitt sé nefnt. Bókin Líf og fjör í Ólátagarði er sennilega afsprengi þessarar Lindgrenbylgju sem gengið hefuryfir á árinu. Hún hefur að geyma þrjár áður útgefnar sögur Astridar Lindgren: Barnadagur í Ólátagarði, Vor i Ólátagarði, og Jól i Ólátagarði. Sældarlíf í sænskri sveit Börnin í Ólátagarði þarf vart að kynna. Sögumaður frásagnanna er Lísa sem býr í Miðbænum ásamt bræðrum sínum Lassa og Bjössa, í Norðurbænum búa Berta og Anna og í Suðurbænum búa Óli og Kristín litla, sem er yngst barnanna. Saman mynda þessi hús þríbýlið Ólátagarð og þar leika börnin sér í sátt og samlyndi daginn út og inn. Þau eiga bú úti á engi, stökkva ofan af eldiviðarskúrnum, dansa í kringum varðeld og renna sér á skíðum og skautum. Auk þess umgangast þau dýrin í kringum bæinn, gefa heimalningi mjólk úr pela, gera tilraun til að fara í reiðtúr á tarfsbaki og flýja í ofboði undan óðum hrúti svo fátt eitt sé nefnt. Börnin lifa sem sagt sældarlífi í sveitinni og tilveran snýst að mestu um leiki og fjör. Að vísu eru þau látin hjálpa til heima við inn á milli en þá tekst þeim undireins að gera verkefnin svo skemmtileg að enginn raunverulegur munur er á leik og störfum. í Ólátagarðssögunum er sakleysi bernsk- unnar því ríkjandi. Þær eru sveipaðar þessum Ijóma sem margir kannast sjálfsagt við þegar þeir minnast eígin æsku: það var alltaf gott veður, það var alltaf skemmtilegt og aldrei dauð stund. Það kemur því kannski ekki á óvart að sögurnar um börnin f Ólátagarði byggja að nokkru leyti á minningum Astridar Lindgren sjálfrar og fyrirmynd býlisins er æskuheimili föður hennar, Svedstorp í Smálöndunum. Byltingarkenndar barnabækur Bækur Astridar Lindgren þóttu nokkuð byltingarkenndar á sínum tíma, ekki síst vegna þess að hún skrifaði um börn eins og þau eru í raun en ekki eins og fullorðna fólkið vildi að þau væru. Höfundarverk hennar ber auk þess sjaldan á góma án þess að minnst sé á hvílíkt nýnæmi það hafi verið að skrifað væri fyrir börn um alvarleg málefni á borð við dauðann líkt og hún gerði í Bróðir minn Ljónshjarta. Sögur Astridar Lindgren eru yfirleitt rfkar af mikilvægum umfjöllunarefnum og undir yfirborði þeirra má meðal annars greina vangaveltur um tungumálið og möguleika þess, umfjöllun um samfélagið, stéttskiptingu og bilið milli ríkra og fátækra svo fátt eitt sé nefnt. Og líkt og algengt er um barnabækur almennt eru hin eilífu átök milli veraldar hinna fullorðnu og heims barnanna gjarnan í miðpunkti, líkt og tvö tannhjól sem grfpa hvort í annað og knýja frásögnina áfram. I útópískri barnaveröld Það sem er kannski athyglisverðast við Lif og fjör i Ólátagarði er að heim hinna fullorðnu vantar nánast alveg. Það er eins og Ólátagarðsbörnin gangi sjálfala, foreldrar þeirra koma sama og ekkert við sögu og f allri bókinni gerist það ekki nema þrisvar sinnum að börnunum séu sett mörk í leikjum sínum. Hinar líflegu myndir llon Wikland endurspegla þetta og börnin eru nánast undantekningalaust sýnd ein í leikjum sínum,

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.