Börn og menning - 01.09.2007, Side 43
( minningu Nonna
41
2007, þegar 150 ár voru liðin frá fæðingu
séra Jóns.
( einu bréfa hennar til mín segir, að
klukkan sex síðdegis hinn 16. nóvember
verði minningarathöfn í kapellu St. Franziskus
sjúkrahússins, þar sem séra Jón dvaldist
síðustu mánuði ævi sinnar. Einnig verði efnttil
athafnar í Melatenfriedhof, kirkjugarðinum,
þar sem séra Jón var jarðaður árið 1944
í grafreit Kölnar Jesúíta. Eigi Kölnarborg
aðild að þeirri athöfn. Þá verði Nonna-
bókasýning opnuð í borgarbókasafni Kölnar
23. nóvember auk fleiri viðburða.
Minning Jóns Sveinssonar lifir
Á hundrað ára afmælisdegi Nonna, 16.
nóvember 1957, opnuðu Zonta-konur á
Akureyri Nonnahús, sem þær hafa rekið
með miklum myndarbrag síðan og hefur
það orðið miðstöð upplýsinga um Nonna
eins og sjá má á vefsíðu safnsins, nonni.
is. ( tilefni 150 ára afmælisins var sýning í
Þjóðarbókhlöðunni - Pater Jón Sveinsson
- en kallaðu mig Nonna - og er hún einnig
sett upp á Akureyri.
Minning séra Jóns Sveinssonar, Nonna,
lifir vegna hins merka lífsstarfs hans, trúar og
ræktarsemi við uppruna sinn og minninga
um ættland sitt, sem hann heimsótti aðeins
tvisvar eftir hina sársaukafullu brottför 1870.
(síðara skiptið kom hann sem gestur íslensku
þjóðarinnar á Alþingishátíðina 1930. Hann
lést 16. október 1944.
Höfundur er ráðherra
^TT TT-TTTTMTT i1f igi<f if CflT*'