Börn og menning - 01.09.2007, Blaðsíða 46
44
Börn og menning
sagði fyrst í stuttu máli frá rannsókn sinni
á menningarlæsi íslenskra barna þar sem
könnuð er þekking leikskólabarna á sígildum
barnabókum og öðru barnaefni. Tók hún
viðtöl við fimm ára leikskólabörn í fjögurra
manna hópum. f viðtölunum kom glöggt
í Ijós að bækur eru síst á undanhaldi hjá
þessum aldurshópi og að börnin hafa mjög
ákveðin smekk á bókum. Þeim líkar vel við
bækur sem eru í tísku ef svo mætti segja og
einnig þær sem eru á leikhúsfjölunum. Þeim
finnst líka mikilvægt að bækur „gefi kitl í
magann". Eitt af því sem gefur kitl í magann
er efni um börn sem eru alein heima. Frelsið
sem í því felst að vera einn heima í bland við
óttann við að vera án verndar virðist heilla
krakka á þessum aldri.
Leikritið Gott kvöld eftir Áslaugu
Jónsdóttur, sem byggt er á samnefndri bók
hennar fjallar einmitt um strák sem er aleinn
heima með bangsa á meðan pabbi bregður
sér frá að sækja mömmu í vinnuna. Áslaug
var gestur á Bókakaffinu ásamt Þórhalli
Sigurðssyni leikstjóra og sögðu þau frá
tilurð leikverksins og samstarfi þeirra sem
unnu að sköpun þess. Áslaug lagði sjálf til
handritið, þar með talið texta við fjölmarga
söngva sem eru í sýningunni, Helga Arnalds
brúðuleikari skapaði fjölmargar brúður og
útfærði skuggamyndir sem byggðar eru á
teikningum Áslaugar í bókinni. Sigurður Bjóla
samdi tónlistina. Þórhallur og Áslaug sögðust
ánægð með útkomuna. Sýningin væri mjög
vel sótt og virtist hún gefa leikhúsgestum
mátulega mikið „kitl í magann" eins og
stefnt var að. Þórhallur upplýsti viðstadda
um að hann hefði mikinn áhuga á að setja
upp fleiri svona litlar sýningar sem bjóða
upp á mikla nánd við leikhúsgesti og sagði
hann þjóðleikhússtjóra vera á sama máli.
Við megum því líklega eiga von á enn
fjölskrúðugra barnaleikhúslífi í framtíðinni
þótt engin ástæða sé til að kvarta - framboð
leikhúsanna um þessar mundir er sannarlega
glæsilegt.
Guðlaug Richter, formaður IBBY á íslandi