Börn og menning - 2019, Síða 30
Börn og menning30
lítið út nógu að velja þegar tekið er til myndefni í bók
um ævi og listir Kjarvals; bæði ljósmyndir og myndir
af málverkum skáldsins og ég trúi vart öðru en valkvíði
hafi gert vart við sig. Hér hefur hins vegar verið gætt
hófs og mjög gott jafnvægi er í hlutfalli ljósmynda af
skáldinu og öðru fólki og svo myndum af málverkum.
Það er fallegur heildarbragur yfir bókinni. Þetta sjá-
um við til að mynda í lita- og leturvali á titli bókarinnar
sem endurspeglast svo í efnisyfirlitinu og upphafsstöf-
um hvers kafla fyrir sig. Á titilsíðu eru ótal gripir úr eigu
Kjarvals sem skjóta svo upp kollinum þegar flett er í
gegnum bókina. Þess utan eru líka myndir af leikföng-
um fortíðar, prjónastokki, skeljum, peningaseðlum,
málningartúpum og fleiru.
Bókin er skreytt með ljósmyndum og málverkum
auk þess sem má sjá litrík penslaför og málningarslettur
sem stundum afmarka myndatexta eða einfaldlega lífga
upp á síðurnar.
Hver kafli eða opna hefur svo sitt litaþema, ef svo
má segja. Þannig er bleikrauður áberandi í opnu kaflans
„Leiðir skilja“, bæði í upphafi meginmáls, sem rammi
um ljósmynd auk þess sem pensilför í þeim lit skreyta
opnuna. Rauður litur einkennir svo „Listfrömuður-
inn“, brúnn kaflann „Hlutverk listamannsins“ og svona
mætti telja áfram. Einna best hefur þó til tekist á þeim
síðum þar sem sjá má stór og mikil málverk Kjarvals en
þar er bakgrunnurinn ekki hvítur eða ljós, eins og ef
til vill við mætti búast, heldur til að mynda rústrauð-
ur, blár og appelsínugulur. Bókin fjallar vissulega um
listamann sem fór sínar eigin leiðir en það gera einnig
höfundur og hönnuður sjálfrar bókarinnar og útkom-
an er glæsileg og ber með sér mikla virðingu fyrir við-
fangsefninu.
Listamaður þjóðarinnar
Jóhannes Kjarval var sannarlega listamaður allrar
þjóðarinnar, eins og margsinnis kemur fram í bókinni,
og vildi að sem flestir nytu verka hans – og vildi meðal
annars þess vegna ekki selja verk sín á of háu verði. Í
Kjarval: Málarinn sem fór sínar eigin leiðir er, á aðgengi-
legan hátt, sögð saga sem ætti að vekja áhuga hvers og
eins og stuðlar, ásamt fallegri hönnun Alexöndru Buhl,
djarfri litanotkun, áhugaverðum myndskreytingum og
vel völdum ljósmyndum, að því að Kjarval haldi áfram
að vera listamaður okkar allra. Um leið er nú komin
út bók sem er, út af fyrir sig, hið mesta listaverk og án
efa er um að ræða verk sem margir munu lesa og njóta.
Leikföng fortíðar.
Höfundur er íslenskufræðingur