Börn og menning - 2019, Síða 32
Börn og menning32
á einhvern hátt. Það þarf ekki að vera stórvægilegt, til
dæmis má nefna bækurnar um foreldra barns sem heit-
ir Tessla, sem haga sér eins og sannkallaðir óþekktar-
ormar. Normið sem brotið er í þessum bókum er hvíta
normið – myndirnar sýna fjölskyldu sem er líkast til af
suður-amerískum uppruna og svo er aldrei tekið fram
hvort Tessla sé strákur eða stelpa.
Þetta er gert í mörgum bókanna sem forlagið gefur
út, kyni persónanna er einfaldlega sleppt. Þannig getur
lesandinn ákveðið sjálfur hvort sagan fjallar um strák,
stelpu eða kynsegin einstakling.
Aftur á móti er jafnmikilvægt að hinseginflóran sé
sýnileg og forlagið gefur líka út bækur sem sinna því
hlutverki. Þar má nefna sem dæmi bækurnar um Kivi,
barn sem er kynsegin. Hán á stórskemmtilega fjölskyldu
sem raunar er öll kynsegin og höfundurinn leikur sér
með fjölskylduorðin, „möðursóðir“ og „fóðurbrystir“, í
stað föðurbróður og móðursystur, eru dæmi um lélegar
þýðingar mínar á annars góðum orðaleikjum höfundar-
ins.
Þannig eignast maður barn
Nýjasta bókin sem ég keypti frá Olika fjallar um efni
sem kemur okkur öllum við, nokkuð sem flest börn
velta fyrir sér á einhverjum tímapunkti: Hvernig er barn
búið til?
Foreldrar útskýra þetta fyrir börnum sínum á ólík-
an máta. Sumir eiga ekki í neinum erfiðleikum með að
segja nákvæmlega frá ferlinu. Öðrum vefst tunga um
tönn og ástæðurnar geta verið misjafnar. Þá getur verið
gott að grípa í góða bók sem leiðir umræðuna, enda
hafa ótal bækur verið gefnar út í gegnum tíðina með
einmitt þetta samtal í huga.
Til dæmis má nefna bókina Sådan får man et barn
eftir danska rithöfundinn Per Holm Knudsen, sem
kom út árið 1971 og skömmu síðar í íslenskri þýðingu
Örnólfs Thorlacius (Hvernig verða börnin til, 1974).
Þar er ekki skafið utan af neinu, börnin fá nákvæmar
upplýsingar um kynlíf gagnkynhneigðra; kona og karl
afklæðast, karlmaðurinn fær standpínu og þau hafa
mök. Í fjörutíu vikur standa þau svo nakin hlið við hlið
þar til konan tilkynnir karlinum að nú sé barnið vænt-
anlegt. Á spítalanum leggst hún á bekk og lesandinn
sér svo brosandi hvítvoðung stinga sér út úr leggöngum
konunnar, sem liggur uppi á borði, á meðan karlinn
Þannig getur lesandinn
ákveðið sjálfur hvort sagan
fjallar um strák, stelpu eða
kynsegin einstakling.