Börn og menning - 2019, Side 38
Börn og menning38
fullri virðingu gagnvart þeim og frá sínu persónulega
sjónarhorni.
Elfa Lilja Gísladóttir hlaut Vorvinda fyrir verkefnið
List fyrir alla. Þetta metnaðarfulla verkefni jafnar að-
gengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönd-
uðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Verkefn-
inu er ætlað að veita börnum góða yfirsýn yfir vettvang
lista og kynna fyrir þeim fjölbreytileika listanna, íslensk-
an menningararf og list frá ólíkum menningarheimum.
Þá var sérstök ánægja að veita nemendum og kennur-
um í 4. HA, 4. LBG og 4. HH í Hlíðaskóla Vorvinda
fyrir verkefnið „Þín eigin skólasaga“. Nemendur skrif-
uðu þrjár bækur í kjölfar heimsóknar í Norræna húsið á
sýninguna Barnabókaflóðið og undir áhrifum bóka Æv-
ars Þórs Benediktssonar. Þeir héldu jafnframt útgáfu-
boð þar sem lesið var upp úr bókunum um þær leiðir
sem boðsgestir völdu. Verkefnið einkennist af alúð,
krafti og metnaði þar sem kennarar komu sögugerð
nemenda sinna í ævintýralegan farveg. Þeir virkjuðu
hugmyndaauðgi og sköpunarkraft þeirra og fóru með
verkefnið langt út fyrir hefðbundinn kennsluramma
fjögurra veggja skólastofunnar.
Íslandsdeild IBBY óskar handhöfum viðurkenning-
anna til hamingju og hvetur þá alla til frekari dáða.
Tilnefningar á heiðurslista IBBY
Árlega gefst landsdeildum IBBY um allan heim tækifæri
til að tilnefna þrjár bækur á heiðurslista IBBY-samtak-
anna, í tengslum við heimsþing alþjóðasamtakanna. Á
hverju ári er því rithöfundi, myndlistarmanni og þýð-
anda veittur þessi heiður og fara bækur þeirra á bóka-
sýningu sem ferðast um heiminn í eitt ár.
Á heiðurslista Íslandsdeildar IBBY fyrir árið 2020 eru
bækurnar Vertu ósýnilegur eftir Kristínu Helgu Gunnars-
dóttur, Fuglar, myndhöfundur er Rán Flygenring og
bókin Inga einhyrningur í þýðingu Braga Valdimars
Skúlasonar.
IBBY óskar þessum frábæru höfundum til hamingju
og óskar þess að tilnefningarnar blási þeim byr í brjóst.
Hugleiðing að lokum
Að lokum langar mig að deila með lesendum nokkru
sem hefur dvalið í huga mínum um nokkurt sinn. Ný-
lega varð ég nefnilega þess heiðurs aðnjótandi að sitja
fyrirlestur hjá Andra Snæ Magnasyni sem hefur um
langt skeið ritað og rætt um tímana sem við lifum og
þau gríðarstóru verkefni sem bíða komandi kynslóða.
Barnanna okkar. Var það töluverður innblástur og það
sem mig langar að segja í framhaldinu er þetta:
Handhafar Vorvindaviðurkenningar IBBY 2019.