Morgunblaðið - 28.01.2021, Side 26

Morgunblaðið - 28.01.2021, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Niðurstaða frumathugunar Fram- kvæmdasýslu ríkisins á valkostum fyrir sameiginlega björgunarmið- stöð á höfuðborgarsvæðinu er sú að allir viðbragðsaðilar verði saman í einu húsnæði með lögreglustöð. Þessi kostur er talinn uppfylla best þau markmið sem hafa verið sett fyrir verkefnið. Hin nýja miðstöð fyrir allt Ísland hefur fengið skamm- stöfunina HVH, húsnæði viðbragðs- aðila á höfuðborgarsvæðinu. Seint á síðasta ári skilaði Fram- kvæmdasýsla ríkisins til fjármála- ráðuneytisins skýrslu um frum- athugunina. Hún er mikil að vöxtum, 75 blaðsíður. Morgunblaðið óskaði eftir því að fá skýrsluna afhenta og fékk hana senda í vikunni. „Svört“ skýrsla afhent „Þar sem vinna að málinu er yfir- standandi og enn ekki búið að ákveða framtíðarstaðsetningu eða ganga frá samkomulagi við aðila um lóð eða byggingu undir starfsemina hafa upplýsingar sem á þessu stigi eru viðkvæmar verið fjarlægðar vegna almannahagsmuna,“ sagði í tölvupósti ráðuneytisins. Þegar Morgunblaðið fékk skýrsl- una í hendur hafði verið strikað yfir með svörtu á 30 síðum af 75, mis- mikið á hverri síðu. Framkvæmdasýsla ríkisins aug- lýsti í lok júní í fyrra eftir upplýs- ingum um 30 þúsund fermetra lóð eða húsnæði fyrir sameiginlega að- stöðu löggæslu- og viðbragðsaðila landsins. Þetta eru: Lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu, Ríkislögreglu- stjóri, Landhelgisgæslan, Slysa- varnafélagið Landsbjörg, Toll- gæslan (Skatturinn), Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Neyðar- línan 112. Flestar þessar stofnanir eru nú að hluta til með aðsetur í björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð, en ekki á einu gólfi. Björgunar- miðstöðin byggðist upp í áföngum á árunum 1996-2006. Fram hefur komið að húsnæðið þar þyki óhentugt, þrengsli og skipulag hússins hafi valdið óhag- ræði og staðið í vegi fyrir umbótum. Þetta hafi berlega komið í ljós und- anfarin misseri á tímum kórónuveir- unnar. Ljóst hafi verið frá upphafi að Skógarhlíðin yrði ekki framtíð- arhúsnæði miðstöðvarinnar. Mikil greiningarvinna liggur að baki skýrslu Framkvæmdasýsl- unnar. Stýrihópur stjórnaði verkinu og að auki komu að vinnunni hátt í eitt hundrað fulltrúar viðbragðs- aðila, ráðgjafar og verkefnahópar. Afstaða til HVH hafi verið jákvæð hjá öllum aðilum, þar á meðal öllum forstöðumönnum einstakra við- bragðsaðila. Fram kemur í skýrslunni að átta aðilar hafi skilað inn tillögum. Reykjavíkurborg hafi skilað inn bréfi yfir mögulegar lóðir í hennar umsjá. „Þeir aðilar sem skiluðu inn fyrir utan Faxaflóahafnir og Reykja- víkurborg lýstu mestum áhuga á samstarfi um þróun, hönnun, bygg- ingu, fjármögnun, eignarhald og rekstur húseignar á grunni lang- tímasamninga,“ segir í skýrslunni. Mynd er birt í skýrslunni af mögulegum svæðum og lóðum en búið er að strika yfir hana í því ein- taki sem Morgunblaðið fékk sent. Niðurstaða greiningarinnar er sú að svæði 2 var metið álitlegast hvað varðar þær kröfur sem gerðar voru til lóða, en einnig er strikað yfir það. Þó má ljóst vera að svæði 2 er ekki langt frá miðborg Reykjavíkur, því sú krafa er gerð að lögregla komist á innan við átta mínútum frá HVH að alþingisreit, miðbæ og Stjórnarráði. Upplýst var á stjórnarfundi Faxa- flóahafna í nóvember í fyrra að við- ræður stæðu yfir við Framkvæmda- sýslu ríkisins um lóð á milli Klepps- spítala og Holtagarða undir mögu- lega björgunarmistöð. Þegar hin nýja skýrsla verður kynnt án yfir- strikana kemur í ljós hvort þetta reynist vera svæði 2. Sömuleiðis er strikað yfir allar mögulegar kostnaðartölur, en áætl- uð þörf sameiginlegs húsnæðis var metin um 21.100 fermetrar. Kaup á nýjum búnaði og kostnaður við flutninga gæti orðið 1.500 milljónir. Til móts við stofnkostnað á fast- eign og kaup á búnaði má ætla að selja megi fasteignir á Hverfisgötu og/eða Tryggvagötu, en fasteigna- mat þeirra er nú rúmar 5.000 millj- ónir. Áætlanir miðast við undirbún- ings- og framkvæmdatíma árin 2021 til 2025, eða fimm ár. Að fengnu samþykki samstarfs- nefndar um opinberar framkvæmdir (SOF) leggur Framkvæmdasýsla ríkisins til að farið verði með fyrsta valkost í næsta skref opinberrar framkvæmdar, sem er áætlunar- gerð, segir í lok skýrslunnar. Björgun stýrt frá einum stað  Niðurstaða frumathugunar er sú að allir viðbragðsaðilar landsins verði saman í einu húsnæði með lögreglustöð  Þörf sameiginlegs húsnæðis er metin um 21.100 fermetrar  Ákveðin lóð álitlegust Neyðarlínan/Arkþing Ný björgunarmiðstöð Á þessari tilgátumynd má sjá mögulega útfærslu miðstöðvarinnar. Fulltrúar viðbragðsaðila sitja þétt saman og boðleiðir verða stuttar. Landspítalinn hefur tekið í notkun húsið Eiríksgötu 5, Eiríksstaði, eftir gagngerar breytingar og endur- bætur. Þarna verður sinnt fjöl- breyttri klínískri starfsemi á vegum spítalans. Húsið þykir afar heppi- legt til að hýsa göngudeildir Land- spítala, enda í göngufæri við spít- alabygginguna sjálfa við Hringbraut. Í húsinu verður veitt göngudeild- arþjónusta fyrir gigtarsjúkdóma, innkirtlasjúkdóma, erfðaráðgjafar og augnsjúkdóma. Þar verður jafn- framt heildstæð göngudeildarþjón- usta við konur með krabbamein í brjósti, allt frá skimun til eftirlits að lokinni meðferð. Í húsnæðinu eru sérhæfð rými fyrir þessa starf- semi, s.s. skurðstofur, röntgen- stofur, skimunaraðstaða, skoð- unarrými og viðtalsherbergi. Húsið er 3.400 fermetrar að stærð og þar munu starfa um 100 manns. Skrifstofur Landspítala voru á Eiríksstöðum um 20 ára skeið, en þær hafa nú verið fluttar í Skafta- hlíð 24. Undirbúningur að opnun göngudeilda á Eiríksstöðum hófst í október árið 2018 og framkvæmdir rétt um ári síðar. Fasteignafélagið Reitir er eigandi Eiríksstaða en J.E. Skjanni sá um framkvæmd- irnar, að því er fram kemur í frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins. Húsið var byggt af Stórstúku Ís- lands og tekið í notkun 1. febrúar 1968. Það var aðsetur bindindis- hreyfingarinnar og kallað Templ- arahöllin í daglegu tali. Stórstúkan seldi eignina árið 1997 Snorra Hjaltasyni bygg- ingameistara, sem byggði við húsið. Við opnun hússins afhenti Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytis Páli Matthías- syni forstjóra spítalans blóm. sisi@mbl.is Ljósmynd/Landspítali Eiríksstaðir Páll forstjóri tekur við blómvendinum úr hendi Ástu. Göngudeildirnar flytja í Eiríksstaði  Fjölbreytt þjónusta verður í boði Viðbragðsaðilar eru í dag með húsnæði víða á höfuðborgar- svæðinu, samtals 36.300 fer- metra, og 1.273 starfsmenn. Við mat á umfangi HVH hefur verið litið til þess að stærsti hluti húsnæðisins, um 24.300 fer- metrar, fari úr notkun og starf- semin flytjist inn í HVH með 737 starfsmenn. Það húsnæði sem verður áfram í rekstri er sam- tals 12.000 fermetrar og með 536 starfsmenn, þ.e. lögreglu- stöðvar, slökkvistöðvar, flug- skýli og fleira. Starfsmenn eru 1.273 VIÐBRAGÐSAÐILAR Í DAG Sýning í Gallerí Fold 30. janúar - 13. febrúar FJÖRUÁHRIF Opið virka daga 10–18, Laugardaga 12–16 Lokað á sunnudögum HAUKUR DÓR Sýningaropnun kl. 14 laugardaginn 30. janúar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.