Morgunblaðið - 17.06.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 17.06.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021 Traust Fagmennska Árangur YFIR 30 ÁRA REYNSLA Bæjarlind 4 / 201 Kópavogur / www.FASTLIND.is ELÍAS HARALDSSON Löggiltur fasteignasali S: 777 5454 elias@fastlind.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Umhverfisstofnun hefur lagt til við umhverfisráðuneytið að veiðitíma á helsingja í Skaftafellssýslum verði breytt. Heimilt verði að hefja veið- ar á þessari tegund 1. september, eins og annars staðar á landinu, en helsingjar hafa verið friðaðir í Skaftafellssýslum til 25. septem- ber. Gefist hefur lítill tími til veiða því fuglinn hverfur til vetrarstöðv- anna í byrjun október. Bændur í Suðursveit og víðar í Austur-Skaftafellssýslu verða fyrir miklum búsifjum af völdum hels- ingja, eins og fram kom í blaðinu í gær, en mjög hefur fjölgað í stofn- inum á síðustu árum. Bætist það við ágang heiðargæsa og hrein- dýra. Lítur ekki vel út Fulltrúar Umhverfisstofnunar kynntu sér aðstæður á vettvangi í Suðursveit fyrr í vikunni og ræddu við bændur. Fram kemur í skrif- legu svari Bjarna Pálssonar teym- isstjóra að úthagi og tún í Suður- sveit hafi ekki litið vel út. „Við höfum ekki forsendur til að meta nákvæmlega af hverju þetta stafar en sjálfsagt fer þar saman ágangur helsingja, hreindýra og slæmt tíð- arfar sem leggst ofan á hefðbundna beit sauðfjár.“ Spurður um aðgerðir getur Bjarni um tillögu Umhverfisstofn- unar um að lengja veiðitíma á hels- ingja, sem fyrr segir frá. Umhverf- isstofnun vonast til að það dragi úr eða hægi á þeirri miklu fjölgun sem orðið hefur á helsingjastofninum á þessu svæði. Tillagan er til um- sagnar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands en ráðherra tekur ákvörð- unina. Bændur geta sótt um leyfi til að verja ræktun sína Þegar spurt er um möguleika bænda á að koma í veg fyrir tjón nú í sumar en bændur eru hræddir um að ná ekki að ná uppskeru af túnum sínum bendir Bjarni á að ráðherra geti að fenginni umsögn Umhverf- isstofnunar og Náttúrufræðistofn- unar veitt tímabundið leyfi til veiða í því skyni að koma í veg fyrir tjón. Bændur þurfi þá að senda beiðni til ráðuneytisins um að fá slíkt leyfi. Bjarni segir að aðgerðum þurfi að fylgja eftir með ýmiss konar fæl- ingu en þá þurfi fuglinn líka að hafa einhverja aðra staði til að leita á. Varðandi hreindýrin segir Bjarni að á undanförnum árum hafi veiði- stjórn miðað að því að halda hrein- dýrastofninum á svæðinu í skefj- um, ekki síst til að varna því að dýrin leiti vestur yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi. Það sé einkum gert vegna sauðfjárveikivarna. Bjarni segir í svari sínu að Um- hverfisstofnun muni áfram beina þessum tilmælum til hreindýra- veiðimanna á svæðinu en getur þess um leið að enn frekari stýring veiða á komandi árum sé í athugun. Tillaga um lengri veiðitíma - Umhverfisstofnun leggur til að veiðar á helsingja hefjist fyrr á haustin - Tilgangurinn er að minnka tjón bænda Morgunblaðið/RAX Heimahagar Helsingjar verpa mikið við Jökulsárlón, meðal annars í Skúm- ey, en bíta gras í úthaga og ekki síst á túnum við litla hrifningu bænda. Ekki hefur hærra hlutfall íbúða á höfuðborgarsvæðinu selst yfir ásettu verði frá upphafi mælinga. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar fyrir júní. Á síðustu þremur mánuðum sem gögn skýrslunnar ná til, þ.e. febr- úar til apríl, seldust 35% íbúða í fjölbýli yfir ásettu verði og 38% íbúða í sérbýli. Þá var sölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu sem seldust í apríl að jafnaði 39 dagar og hefur ekki mælst skemmri frá upp- hafi mælinga. Í skýrslunni kemur því fram að enn séu mikil umsvif á fasteignamarkaði miðað við árstíma og ýmsir mælikvarðar sem gefi til kynna að eftirspurnarþrýstingur sé enn mikill. Íbúðaverð á höfuðborg- arsvæðinu var um 2% hærra í apríl en það var í mars og 4% hærra en í febrúar sé miðað við vísitölu sölu- verðs. Undanfarið ár hefur mikil eftirspurn leitt til þess að íbúðum til sölu hefur fækkað en á landinu öllu eru nú ríflega 1.900 íbúðir auglýstar til sölu en fyrir rúmu ári voru þær rétt tæplega 4.000. Nýtt framboð fasteigna hefur því ekki mætt eft- irspurninni. Þó er nýliðun fyrirtækja í bygg- ingarstarfsemi og mannvirkjagerð með mesta móti frá upphafi mæl- inga árið 2008 ef miðað er við árstíðaleiðrétt sex mánaða með- altal. Leiguverð fer lækkandi Leiguverð hefur farið lækkandi undanfarið á höfuðborgarsvæðinu og mælist 12 mánaða breyting vísi- tölu leiguverðs neikvæð um 2,4% fyrir aprílmánuð en þetta er áttundi mánuðurinn í röð þar sem 12 mán- aða breyting leiguverðs mælist nei- kvæð. Leiga hefur hækkað mun minna en laun undanfarin tvö ár á öllum landsvæðum. Á höfuðborg- arsvæðinu er leiguverð í hlutfalli við laun lægra á þessu ári en það hefur verið að minnsta kosti frá árinu 2010. Meðalfjárhæð greiddrar leigu í apríl var 187 þúsund krónur á mánuði á höfuðborgarsvæðinu og meðalstærð íbúða 71 fm. Hæst varð meðalleiga á höfuðborgarsvæðinu 207 þúsund krónur í maí 2019. urdur@mbl.is 35% íbúða seljast yfir ásettu verði - Íbúðaverð um 4% hærra á höfuð- borgarsvæðinu Morgunblaðið/Hari Fasteignir Mikil umsvif á fast- eignamarkaði miðað við árstíma. Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Landspítalinn hefur farið yfir út- tekt embættis landlæknis á hóp- smiti kórónuveiru sem kom upp á Landakotsspítala í október á síð- asta ári og segist spítalinn vera í meginefnum sammála niðurstöðu embættisins. Í yfirlýsingu spítalans má merkja að stjórnendum spítalans finnist eins og erfitt hefði verið að koma í veg fyrir þann harmleik sem átti sér stað á spítalanum, enda hafi landsins allra hæfasta fólk verið að gera sitt allra besta við fordæmalausar og erfiðar að- stæður. Mikill og þungur lærdómur Þar segir m.a., að því miður hafi ítrekað skapast fordæmalausar að- stæður í heimsfaraldri Covid-19 á Landspítala, sérstaklega á fyrsta ári hans. „Við Íslendingar erum þó ekki einstök hvað þetta varðar, því heimsbyggðin hefur öll verið að kljást við sama vandamál. Þar sem aðstæður eru góðar hvað snertir húsnæði og mannauð hefur tekist betur að fást við farsóttina og fyr- irsjáanlegar hópsýkingar. Þar sem aðstæður eru síðri hefur gengið verr. Af því má mikinn og þungan lærdóm draga.“ Landspítalinn ítrekar í yfirlýs- ingu sinni að í kjölfar bráðabirgða- úttektar sem spítalinn gerði sjálfur í kjölfar hópsmitsins hafi komið fram alls konar ábendingar um það sem betur mætti fara á Landakoti. Þar hefur nú verið ráðist í ýmsar endurbætur, á húsnæði sem hentar einkar illa fyrir sjúkrahússtarfsemi enda frekar notað undir endurhæf- ingarstarfsemi. „Má þar nefna meðal annars fækkun fjölbýla og fjölgun sérbýla auk þess sem loftræstikerfi hefur verið komið fyrir. Sýkingavarnir verða styrktar, ásamt starfs- mannaheilsuvernd, unnið er að stöðlun húsnæðis og viðhalds inn- viða eftir megni. Þessu til viðbótar er nú unnið að eflingu mönnunar í sýkingavörnum, menntadeild og starfsmannaheilsuvernd í áföngum á Landspítala í heild. Unnið er að umbótum á rafrænum stuðningi og samhliða að útboði á nýjum kerfum fyrir gæðahandbók, fræðslu- og hæfnistjórnunarkerfi, þar sem meðal annars er hugað að mögu- leika á að efni verði aðgengilegt á fleiri tungumálum en íslensku,“ segir meðal annars í yfirlýsingu Landspítalans. Þar að auki segir að samtal milli Landspítalans og embættis land- læknis sé gott. Ábendingar og að- finnslur landlæknis séu réttar og að samstarf um úrbætur sé gott og farsælt. Spítalinn sam- mála landlækni - Fordæmalausar og erfiðar aðstæður Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hópsýking Um hundrað manns á Landakoti smituðust af Covid-19.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.