Morgunblaðið - 17.06.2021, Page 11

Morgunblaðið - 17.06.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021 Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: 11-18 virka daga Lokað á laugardögum í sumar. www.spennandi-fashion.is Gleðilega þjóðhátíð! Skipholti 29b • S. 551 4422 TILBOÐSDAGAR Skoðið laxdal.is 20% afsláttur Sætir kjólar Kr. 9.500 Str. S-XXL 3 litir Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook Gleðilegan þjóðhátíðardag Lokað 17. júní Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Fæst í netverslun belladonna.is Gleðilega Þjóðhátíð Mannanafnanefnd úrskurðaði þriðjudaginn 15. júní að heimilt væri að nefna nýfædd stúlkubörn nafninu Kóbra. Stúlkunafnið Kóbra er því komið á manna- nafnaskrá Til þess að heimilt sé að sam- þykkja nýtt eiginnafn þurfa skil- yrði 5. greinar laga um manna- nöfn að vera uppfyllt. Meðal þeirra er að nafnið brjóti ekki í bág við íslenskt málkerfi. Nafnið geti tekið íslenska eignarfalls- endingu og að nafnið sé ekki til þess fallið að verða nafnbera til ama. Eiginnafnið Kóbra tekur eignarfallsbeyginguna, Kóbru, og uppfyllti að mati nefnd- arinnar öll önnur skilyrði laga- ákvæðisins. Leyft að bera nafnið Kóbra Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Netöryggissveit Póst- og fjarskipta- stofnunar, CERT-IS, sendi á þriðju- dag frá sér aðvörun vegna „svika- bylgju“. „Þetta kemur að utan en engar vísbendingar eru um að tenging sé milli þeirra,“ segir Guðmundur Arn- ar Sigmundsson, forstöðumaður CERT-IS. Fólk hefur meðal annars fengið send SMS-skilaboð í nafni Lands- bankans þar sem óskað er eftir að viðkomandi fari inn á vefsíðu til að staðfesta símanúmer sitt. Látið er líta út fyrir að skilaboðin séu frá Landsbankanum og birtast þau jafn- vel í SMS-samskiptasögu viðkom- andi við bankann. Einnig hefur borið á símtölum þar sem hringt er úr leyninúmeri að utan og viðkomandi þykist vera starfs- maður íslenskra fyrirtækja og vill fá upplýsingar hjá fólki. „Við viljum brýna fyrir fólki að gefa aldrei upp notandanafn eða lyk- ilorð í gegnum síma eða inni á vefsíð- um sem það þekkir ekki. Fyrirtæki biðja viðskiptavini sína aldrei um það, þó svo að allt líti trúverðuglega út,“ segir Guðmundur. CERT-IS varar við svikabylgju - SMS-skilaboð í nafni Landsbankans Morgunblaðið/Júlíus Netið Varað er við svikabylgju. Fasteignir ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI? Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað Borgarbyggð af bótakröfu Gunnlaugs Júlíussonar, sem var vik- ið frá störfum sem sveitarstjóri árið 2019. Gunnlaugur taldi að uppsögnin hefði verið ólögleg og krafðist að- allega fjártjóns- og miskabóta að fjárhæð rúmar 36 milljónir króna. Héraðsdómur féllst ekki á kröfu Gunnlaugs og segir í niðurstöðum sínum, að Borgarbyggð hafi haft skýra heimild til að haga uppsögn ráðningarsamnings hans með þeim hætti sem gert var. Segir héraðsdómur að ástæður uppsagnarinnar, sem megi rekja til mismunandi sýnar Gunnlaugs og sveitarstjórnar á stjórnun sveitar- félagsins, skorts á verkstjórn og trúnaðarbrests milli hans og sveit- arstjórnar, hafi verið fullkomlega lögmætar og eðlilegar og hvorki far- ið gegn ákvæðum ráðningarsamn- ingsins né gildandi kjarasamnings. Ekki fall- ist á bóta- kröfu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.