Morgunblaðið - 17.06.2021, Page 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021
ÖRYGGISÍBÚÐIR
EIRAR TIL LEIGU
Í GRAFARVOGI
Vandaðar öryggis-
íbúðir Eirar til leigu
í Eirarhúsum,
Hlíðarhúsum 3–5,
112 Reykjavík.
Eir öryggisíbúðir ehf. - Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík
Netfang: ibudir@eir.is - Sími 522 5700, milli 8 og 16 virka daga .
n Rólegt og notarlegt umhverfi með
aðgengi að metnaðarfullri aðstöðu
og þjónustu með það að markmiði
að einstaklingurinn geti búið lengur heima.
n Öryggisvöktun allan sólarhringinn.
n Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð.
n Góðar gönguleiðir í nágrenninu.
Sendið
fyrirspu
rn
á netfan
gið:
ibudir@
eir.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
V
iðburðir með fræðslu fyr-
ir alla fjölskylduna eru á
sumardagskrá Þjóðminja-
safns Íslands. Dagskráin
er fjölbreytt og má meðal annars
nefna leiðsögn alla þriðjudaga í sum-
ar kl. 14 sem ber yfirskriftina Ham-
farir og drepsóttir. Þar er velt upp
spurningum um uppruna Íslendinga,
farsóttir og náttúruvá. Skoðuð eru
áhrif umhverfis á heilsufar og út-
breiðslu sjúkdóma og hvernig ham-
farir og nálægð við náttúruna hafa
sett mark sitt á lífsbaráttu Íslend-
inga.
Galdrar, trú og vísindi
Fyrir börn er viðburðurinn
Veistu hvað? Þar er forvitninni svalað
og leynistaðir safnsins skoðaðir.
Vikulega er skipt um þema en fjallað
verður meðal annars um galdra, trú
og vísindi, ferðalög í fortíðinni, álfa-
og tröllasögur sagðar og margt fleira.
Einnig verður boðið upp á smiðjur
þar sem börnin lita, klippa, líma og
fræðast um sögu Íslands. Þessi dag-
skrá er alla miðvikudaga kl. 11:00 í
sumar og smiðjurnar verða í gangi
alla daga. Þá má nefna að Þjóðminja-
safn Íslands hefur fengið styrk úr
Barnamenningarsjóði til þess að
standa straum af námskeiði fyrir
börn í viðkvæmri stöðu. Námskeiðið
tengir saman útivist, rannsókn á
safnkosti Þjóðminjasafns Íslands og
þjálfun í tálgun og beitingu bitverk-
færa til að móta við. Það tengir upp-
götvun á sögu og menningu þjóðar
við upplifun og sköpun. Verkefnið er
samstarf Jóhönnu Bergmann og
Önnu Leif Auðar Elídóttur, safn-
kennara Þjóðminjasafnsins, og Ólafs
Oddsonar tálgumeistara.
Í ævintýraheimi
Rauði kross Íslands hefur milli-
göngu um þátttökuboð til barna í fjöl-
skyldum sem sækja um alþjóðlega
vernd á Íslandi eða eru nýir innflytj-
endur.
Í samstarfi við hjálparstofnanir
er börnum fjölskyldna sem þangað
leita boðin þátttaka. Þannig er tryggt
að í nemendahópnum séu líka börn
sem eru þegar með rætur á Íslandi.
„Eftir erfiðan vetur og alls kyns
takmarkanir erum við loks að upp-
skera með frábærri sumardagskrá.
Mikið hefur verið lagt í hana og ætti
hún að hæfa öllum þeim sem heim-
sækja okkur. Enda hefur Þjóðminja-
safnið að bjóða einstaka afþreyingu,
mikið rými og ævintýraheim fyrir alla
fjölskylduna,“ segir Anna Leif.
Mynd af menningarsögu
Á Þjóðminjasafni Íslands er í
öndvegi grunnsýningin Þjóð verður
til – menning og samfélag í 1200 ár.
Leiðsögn er alla sunnudaga kl. 14:00
en á sýningunni er leitast við að
draga upp skýra og heildstæða mynd
af menningarsögu Íslendinga. Sög-
unni er skipt nokkuð jafnt í sjö tíma-
bil og ljósi varpað á þau; jafnt á fram-
faraskeið sem erfiða tíma.
Almennur aðgöngumiði í Þjóð-
minjasafnið kostar 2.000 kr. og gildir í
eitt ár. Miðinn veitir aðgang að öllum
sýningum og viðburðum en ókeypis
er í safnið fyrir börn að 18 ára aldri.
Nánari upplýsingar um dagskrána í
sumar er að finna á heimasíðu safns-
ins, www.thjodminjasafn.is/sumar.
Forminjar og
forvitninni svalað
Sumardagskrá á Þjóðminjasafni. Fræðsla fyrir
fjölskylduna. Tröllasögur, uppgötvun og sköpun.
Morgunblaðið/Eggert
Fróðleikur Anna Leif safnkennari með Arneyju, ungum safngesti.
Beinagrind Kumlin vekja áhuga
krakkanna, enda leyndardómsfull.
Gull Leikföng fyrri tíðar verða spennandi í augum barna nútímans.
Undirritaðir voru í vikunni samningar
um að félagar í Lionsklúbbi Kópavogs
geri upp Kópavogsbúið svonefnda,
elsta húsið í Kópavogi. Markmiðið er
að standsetja tvær íbúðir í húsinu
sem yrðu leigðar á sanngjörnu verði
til foreldra langveikra barna sem
dveljast í Rjóðrinu, hjúkrunar- og end-
urhæfingardeild fyrir langveik og
fötluð börn sem er þarna í grennd.
Einnig gætu íbúðir leigst aðstand-
endum sjúklinga á líknardeild Land-
spítalans sem er á sömu slóðum.
Veglegt framlag
frá Kópavogsbæ
Verkefnið er stórt og 25 milljón kr.
framlag Kópavogsbæjar skiptir miklu.
Vænst er að fleiri leggi klúbbnum lið í
þessu verkefni, en heildarkostnaður
er áætlaður rúmar 50 milljónir kr.
Kópavogsbúið, sem var reist á ár-
unum 1902-1904, er elsta húsið í
Kópavogi og er eitt fárra steinhlað-
inna húsa utan Reykjavíkur sem enn
standa. Húsið hefur því, ásamt síðari
tíma viðbyggingum, mikið varð-
veislugildi sem eini uppistandandi
vitnisburðurinn um elstu byggð
Kópavogs.
Segja má að endurbætur á Kópa-
vogsbúinu nú séu framhald af öðrum
verkefni lionsklúbbsins á sama stað.
Haustið 2019 samdi klúbburinn við
Landspítalann um að sinna breyt-
ingum á hluta hússins að Kópavogs-
gerði 4, svo það hentaði Rjóðrinu sem
tómstunda- og hreyfisalur skjólstæð-
inga. Nú er það verkefni í höfn. Bygg-
ing þessi gengur að öllu jöfnu undir
nafninu Iðjuhúsið, og hýsti til margra
ára starfsemi Fjölsmiðjunnar og þar
áður iðjuþjálfun Kópavogshælis.
Mikil vinna sett í Iðjuhúið
Alls lögðu Lionsmenn um 2.000
vinnustundir í endurbætur á Iðjuhús-
inu í ár og í fyrra. Með aðkeyptri
vinnu og efni er kostnaður við end-
urbæturnar kominn yfir 18 milljónir
kr. Margt þurfti að gera, svo sem
skipta um glugga og hurðir, end-
urbæta gólf, endurgera loftræsti-
kerfi, pípulagnir og eldhús og svo
mætti áfram telja. Þá var útbúin ver-
önd fyrir grillaðstöðu og fleira gott.
sbs@mbl.is
Lionklúbbur Kópavogs í stóru verkefni
Endurgera gamla Kópavogsbæ-
inn sem reistur var 1902-1904
Morgunblaðið/Unnur Karen
Frágengið Samningar um endurgerð Kópavogsbæjarins í höfn. Ármann Kr.
Ólafsson bæjarstjóri og Högni Guðmundsson sem er formaður Lionsklúbbs
Kópavogs leiddu málin til lykta og handsöluðu svo málið að lokum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kópavogsbærinn Hús merkrar sögu
sem nú fær nýtt verðugt hlutverk.