Morgunblaðið - 17.06.2021, Blaðsíða 28
Samkoma Hvítasunnumenn í Eyjum á samkomu fyrir nokkrum árum.
BAKSVIÐ
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
„Það er pínu skrítin tilfinning en
mjög gleðileg að horfa yfir sviðið
og rifja upp þegar ég sjálfur eign-
aðist trú á Jesú og ákvað að fylgja
honum fyrir 39 árum. Að ég sjálfur
skuli eiga sögu með hvítasunnu-
hreyfingunni í tæp 40 af þeim 100
árum frá því hún skaut rótum hér í
Vestmannaeyjum er líka sérstök
tilfinning. Ég hef eignast marga
vini um allt land og langt út fyrir
landsteinana, sem hefur veitt mér
mikla gleði. Maður spyr sig líka og
hvað svo? Það er auðvitað ekkert
annað en að halda áfram verkinu af
því að maður finnur Guð leiða sig.
Hans vegna er allt þess virði. Ekki
hefur Guð dregið úr elsku sinni eða
köllun hvort sem ég verð lengi í
hlutverki forstöðumanns eða ekki,“
segir Guðni Hjálmarsson, sem leið-
ir starf hvítasunnumanna í Vest-
mannaeyjum ásamt konu sinni
Guðbjörgu Guðjónsdóttur.
Söfnuðurinn fagnar um helgina
með ýmsu móti að í júlí nk. verða
liðin 100 ár frá því hjónin Signe og
Erik Asbö komu fyrst til Vest-
mannaeyja. Markar það upphaf
hvítasunnustarfs á Íslandi. Með
þeim var Sveinbjörg Jóhanns-
dóttir, systir Ólafíu Jóhannsdóttur
sem þekkt er fyrir mannúðarstörf í
Noregi. Hún gat túlkað fyrir hjón-
in en einnig er talað um hana sem
prédikara og sálnahirði. Þetta
kemur fram í samantekt Lilju Ósk-
arsdóttur um upphaf safn-
aðarstarfs í Eyjum.
Útisamkomur á hverju kvöldi
„Þeim var vel tekið. Veðrið gott
og þau héldu útisamkomur á
hverju kvöldi. Síðan leigðu þau
gamla bíóhúsið sem rúmaði 300
manns og þar var fullt á hverju
kvöldi. Fólk snertist af frels-
isboðskapnum um Jesú Krist og
vildi taka trú. Upphaflega ætluðu
þau aðeins að vera í stuttan tíma
en það urðu fimm vikur, þá fóru
þau til Reykjavíkur til að pakka og
flytja til Vestmannaeyja og bjuggu
þar næstu fimm ár.
Margir komust til trúar þetta
sumar og út frá starfi þeirra var
fyrsti hvítasunnusöfnuður á Íslandi
stofnaður í Vestmannaeyjum. Þess
vegna hefur árið 1921 verið talið
upphafsár hvítasunnustarfs á Ís-
landi og 100 ára starfi fagnað í ár,“
segir Lilja.
Forverarnir marka leiðina
„Já, það er mjög gaman að sjá
hvað mikið gerðist í upphafi hvíta-
sunnuvakningarinnar á Íslandi,“
segir Guðni þegar hann er beðinn
um að horfa til forvera sinna og
sögu safnaðarins. „Það var mjög
spennandi tími og það hafa komið
mörg slík tímabil í gegnum árin.
Það er vissulega trúarstyrkjandi
að lesa um þá sem á undan hafa
farið og það sem gerðist á hverjum
tíma. Guð gerir stöðugt nýja hluti
og það er mikilvægt að horfa til
Hans en dvelja ekki of lengi við
það sem liðið er.“
Guðni segir að orð Jesú Krists
hafi jafn mikil áhrif í dag á líf fólks
eins og lýst er í Biblíunni. „Þegar
hann gekk um, kenndi um Guðsríki
og gerði magnaða hluti. Það allt er
að gerast um allan heim í enn
meira mæli en þá en það sem
skiptir mestu máli er að Jesús kall-
ar fólk enn til þess að fylgja sér í
gegnum lífið. Gjöf hans til þeirra
sem trúa honum um frið, hvíld,
gleði er ennþá veitt hverjum sem
leitar til hans. Það hefur ekkert
breyst að við þurfum að losna við
byrði syndar og myrkurs sem eng-
inn nema Jesús gerir,“ segir
Guðni.
Hátíðarhöld alla helgina
Húsið Betel var byggt 1925 og
vígt 1. janúar 1926. 19. febrúar
sama ár var Betelsöfnuðurinn
formlega stofnaður þegar 19
manns tóku niðurdýfingaskírn og
gengu í söfnuðinn. Þá voru hjónin
Gyda og Nils Ramselius komin til
Vestmannaeyja og urðu fyrstu for-
stöðuhjón Betelsafnaðarins. Hann
var guðfræðingur frá háskólanum í
Lundi og hafði áður en hann gerð-
ist hvítasunnumaður verið prestur
í sænsku þjóðkirkjunni.
Margir hafa leitt starfið síðan,
lengst Einar J. Gíslason sem
kenndi sig við Betel eins og bróð-
ursonur hans, Snorri Óskarsson. Á
eftir Snorra leiddi Steingrímur Á.
Jónsson starfið þar til núverandi
forstöðuhjón í Hvítasunnukirkj-
unni Vestmannaeyjum tóku við,
Guðbjörg Guðjónsdóttir og Guðni
Hjálmarsson, og hafa þau leitt
starfið frá 2008.
Í dag eru um 50 manns í söfn-
uðinum og er kirkja hvítasunnu-
manna í Höllinni sem áður var
aðalskemmtistaður Eyjamanna.
Myndarlegt hús sem setur svip á
miðbæinn og er söfnuðinum til
sóma.
Hátíðin verður á morgun, föstu-
dag, laugardag og sunnudag og eru
samkomur alla dagana. Líka
biblíufræðsla, útivera á Stakkó og
söngvastund þar sem rifjaðir verða
upp söngvar sem fylgt hafa hvíta-
sunnufólki þessi 100 ár.
Aldarafmæli í Vestmannaeyjum
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Tónar Tónlist hefur skipað stóran sess í samkomuhaldi hvítasunnufólks. Sveitina skipa Helgi Thórzhamar, Árni Óli, Hjálmar Karl og Sigurmundur Gísli.
Prédikun Guðni Hjálmarsson, forstöðumaður safnaðarins, predikar.
- Árið 1921 talið upphafsár hvítasunnustarfs á Íslandi - Haldið upp á afmælið um helgina
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021
Mjúkir og þægilegir
fótlaga skór fyrir
konur og karla frá
spænska
Bio inniskór
Netverslun
skornir.is
SMÁRALIND
www.skornir.is
Verð8.995
Stærðir 36-46
3 litir