Morgunblaðið - 17.06.2021, Page 42

Morgunblaðið - 17.06.2021, Page 42
Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is Sesselja Thorberg hönnuður hefur rekið stúdíóið í tæp 11 ár og segist rétt að byrja. Hefur innanhússhönnun fyrir stóra vinnustaði breyst mikið síð- astliðið ár? „Það er sumt sem hefur breyst mikið og annað minna, en nálgunin fyrir vinnustað eins og Advania er samt sem áður sérstök – hvernig sem litið er á verkefnið. Fyrir- tækið er leiðandi á sínum markaði og verður því að hugsa út fyrir kassann. Það sem hefur verið al- gjörlega frábært er að mitt sam- starfsfólk þarna innandyra skilur algjörlega ferlið „að sjá lausnina á undan vandamálinu“. Við í teym- inu vorum löngu byrjuð að þróa saman lausnir fyrir starfsfólk til að vinna á fjölbreyttan hátt, í raun áður en Covid kom upp. Við vorum byrjuð í hugmyndaferli sem í raun styrktist því lengra sem leið á ferl- ið.“ Aldrei verið hrædd við að taka áhættu Hvernig kom það til að þið hófuð þetta ferli? „Í lok árs 2019 höfðu þeir sam- band við nokkra hönnuði og arki- tekta til þess að setja saman hugs- anlegt „consept“. Úr varð að mín nálgun á verkefnið var eitthvað sem féll að þeirra framtíðarsýn. Ég hef aldrei verið hrædd við að taka áhættu í efnis- og litavali og trúi því að réttar áherslur í því séu eflandi fyrir vinnustaðamenningu. Verkið er þó gríðarlega yf- irgripsmikið og verður tekið í nokkrum fösum yfir næstu ár en hugmyndin er komin og grunn- vinnan búin fyrir allar hæðirnar. Hönnun fyrir anddyri og móttöku, markaðsdeild og nýja NOC-deild ásamt tengigangi er lokið og hóf ég verkumsjón á þeim fasa í haust sem lauk nú um áramótin.“ Jákvætt fólk með sterka vinnuvitund Er eitthvað sem þú ert sér- staklega ánægð með í þessu verk- efni? „Það er mjög margt sem ég er ánægð með. Til þess að skapa svona fjölþætt verkefni sem krefst mik- illar útfærslu og hugmyndavinnu er ekki leiðinlegt að fá að vinna með jákvæðu fólki með sterka vinnuvit- und til framtíðar. Svo ekki sé minnst á alla snillingana, verktak- ana og aðstoðarfólkið, án þeirra væri ekkert af þessu til nema bara í hausnum á mér. Þegar ég til dæmis sagðist vilja nýta ganga í fundarrými sem væru alveg opin sagði fólkið hjá Advania já! Þegar ég sagðist vilja hafa Vir- tual Reality-svæði í móttökunni sagði það já! og þegar ég vildi sprengja upp borðastærðir og svæðaskipta frekar deildum eftir því hvað starfsmenn væru að gera á mismunandi tíma dags þá sögðu þau líka já,“ segir Sesselja. „Litir og efni skipta þarna miklu máli. Ég nota gula og fjólubláa til dæmis til að örva starfsfólkið á stærri svæðum en dempaðri liti í „fókusrýmum“ og það virkar. Ég er þá ekki að segja endilega að allar skrifstofur þurfi að vera gular og fjólubláar heldur að andstæður virka örvandi. Advania er með gríð- arlega fjölbreytta starfsemi á alls konar sviðum og því galið að halda uppi stórum sölum með 160 senti- metra borðum í löngum röðum fyrir slíkan fjölbreytileika. Með starfs- rýmum sem halda utan um alla eins og til dæmis með hópavinnusvæð- um, fókusrýmum, hvíldarrýmum, lokuðum og opnum fundarrýmum er markmiðinu náð ásamt því að leggja áherslu á gleðina og mann- lega þáttinn.“ Hagræða í uppbyggingu skrifstofunnar Hvernig er þá helsta breytingin hjá þér í skrifstofuhönnun núna og fyrir Covid? „Ég legg áherslu á að hanna skrifstofur út frá vinnu mannauðs- ins – allt annað á að koma ofan á. Svo dæmi sé tekið fer nú fram miklu meira af vinnu í gegnum fjar- fundarbúnað jafnvel þótt núna séu hömlurnar mun minni vegna Covid. Fólk skilur að þú þarft ekki endi- lega að senda starfsfólk út á land eða til útlanda, einungis til að fara á einn fund. En á móti er þá ekki hægt að ætlast til þess að sami starfsmaður sé að hvísla í fjar- skiptabúnaðinn innan um sam- starfsmenn sína úti á miðju gólfi. Einnig má minnast á það að fólk á jú auðveldara með að vinna heim- an frá sér líka. Með því má hag- ræða í uppbyggingu skrifstofunnar. Á sama tíma er hægt að leggja áherslu á svæði sem tengja starfs- menn félagslega og að sameiginlegu svæðin þeirra sem ætluð eru í hópavinnu ýti undir góð samskipti og gleði. Því það verður jú að vera gaman að mæta í vinnuna líka.“ Hvað er næst á döfinni hjá ykkur í Fröken Fix? „Við erum með allskonar verkefni í gangi fyrir utan Advania. Ísbúð fyrir Kjörís í nýjum miðbæj- arkjarna Selfoss ásamt tveimur heimilisverkefnum sem verða unnin í sumar. Einnig erum við að leggja lokahönd á stórt einbýli í samstarfi við Tvíhorf arkitekta þar sem við hönnum allt innanhúss – allt gert í mikilli gleði.“ Fyrirtæki með stóra drauma Hvert væri draumaverkefnið hjá Fröken Fix? „Eftir síðustu verk, fyrir Advania og Biskupsstofu, vil ég gjarnan halda áfram á sömu braut. Að vinna með fyrirtækjum með stóra drauma og mikinn metnað, sem treysta okk- ar framtíðarsýn, er draumur sem ég vil halda áfram að lifa í.“ Vil vinna með fyrirtækjum með stóra drauma Nýtt útlit á höfuðstöðvum Advania Ísland við Guð- rúnartún hefur vakið mikla athygli eftir endurnýjun sem er í höndum Fröken Fix – hönnunarstúdíós. Fyrsta fasa er nú lokið og lofar góðu fyrir framhaldið. Hönnun Sesselja Thorberg, eigandi Fröken Fix – hönnunarstúdíós. Litir Bæði starfsfólk og viðskiptavinir Advania verða fyrir áhrifum frá litunum. Nýtt útlit Nýtt útlit á höfuðstöðvum Advania Island við Guðrúnartún hefur vakið mikla athygli eftir endurnýjun sem er í höndum Fröken Fix hönnunarstudio. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! 15% afsláttur af sölulaunum í júní Laus sölustæði - Komdu núna Þessir síungu strákar eru klárir í að selja bílinn þinn Kíktu við, hringdu eða sendu okkur skilaboð! Hlökkum til! Indriði Jónsson og Árni Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.