Morgunblaðið - 17.06.2021, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021
Auglýsing um skipulagsmál
í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing að breytingu
á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028
Árbæjarhellir 2 og Ægissíða - Heiðarbrún. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 10.6.2021 að gerðar verði breytingar á
landnotkun tveggja svæða vestan Ytri-Rangár. Annars vegar nokkurra Ægissíðulóða frá Árbyrgi/Bjargi
til og með Heiðarbrún þar sem núverandi landbúnaðarsvæði verði gert að íbúðasvæði og hins vegar
Árbæjarhelli 2 þar sem núverandi frístundasvæði verði gert að íbúðasvæði. Lýsingin er jafnframt kynnt
öllum þinglýstum eigendum umræddra lóða.
Lýsingin liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3,
Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir
við lýsingu og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 28. júlí nk.
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur
að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum
Hallstún L190888, Rangárþingi ytra, deiliskipulag
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 10.6.2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir
átta lóðir úr landi Hallstúns, L190888. Um frístundasvæði F27 er að ræða í aðalskipulagi og er heimild til
uppbyggingar á 10 lóðum skv. greinargerð aðalskipulagsins. Aðkoma að svæðinu er frá Landvegi (26) um
Ölversholtsveg (303).
Atvinnusvæði sunnan Suðurlandsvegar á Hellu, Rangárþingi ytra, deiliskipulag
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.5.2021 að auglýsa deiliskipulag fyrir
atvinnusvæði sunnan Suðurlandsvegar á Hellu. Um er að ræða svæði austast í þéttbýlinu, verslunar- og
þjónustusvæðið VÞ20, athafnasvæðið AT4 og iðnaðarsvæðið I26. Í deiliskipulaginu verða afmarkaðar
lóðir, settir byggingarskilmálar og gerð grein fyrir götum, bílastæðum o.fl. Aðkoma að svæðinu er annars
vegar frá Rangárflötum að vestan og frá væntanlegu hringtorgi á Suðurlandsvegi að austan.
Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3,
Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. ágúst 2021
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra
í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra
RANGÁRÞING YTRA
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Aðalstræti 1, Ísafjarðarbær, fnr. 212-5382, þingl. eig. Malgorzata Russ
og Marcin Russ, gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og
Ísafjarðarbær, miðvikudaginn 23. júní nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
16. júní 2021
Nauðungarsala
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
Múlaþing
Sími 4 700 700
mulathing@mulathing.is
mulathing.is
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fljóts-
dalshéraðs 2008-2028
Efnistaka í Fellum og Jökuldal
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 12. maí
2021 tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi
Fljótsdalshéraðs 2008-2028 samkvæmt 2. mgr. 36.gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í því að efnistökusvæði við Hrúthamra
á Jökuldal og Hof í Fellum verða skilgreind í aðalskipu-
laginu sem efnistökusvæði E140 og E141. Umrædd
efnistökusvæði eru liður í vegabótum á Jökuldalsvegi
eystri (924) og Upphéraðsvegi (931). Áætluð efnis-
vinnsla við Hrúthamra er 2000 m3 af efni á um
3000 m2 svæði sem skilgreint er sem landbúnaðar-
svæði og hefur áður verið notað fyrir efnisnám.
Áætluð efnistaka við Hof er 6100 m3 á 4500 m2 svæði
sem skilgreint er sem landbúnaðarsvæði.
Aðalskipulagsbreytingin felur í sér óverulega breytingu
á landnotkun og er ekki talin hafa mikil áhrif á einstaka
aðila eða hafa áhrif á stór svæði. Umrædd efnistaka
fellur undir flokk C í lið 2.04 í 1. viðauka laga um mat á
umhverfisáhrifum, nr. 106/2000. Samkvæmt
viðmiðum í 2. viðauka sömu laga um eðli, umfang og
staðsetningu framkvæmdarinnar er hún ekki líkleg til
að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og er
því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til
staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta
snúið sér til skipulagsfulltrúa Múlaþings:
skipulagsfulltrui@mulathing.is
Skipulagsfulltrúi Múlaþings
Múlaþing
Múlaþing
Sími 4 700 700
mulathing@mulathing.is
mulathing.is
Snjóflóðavarnargarðar
undir Bjólfshlíðum á Seyðisfirði
Deiliskipulag
Heimastjórn Seyðisfjarðar hefur samþykkt á fundi
sínum þann 9. júní sl. að auglýsa tillögu að deiliskipu-
lagi fyrir snjóflóðavarnargarða undir Bjólfshlíðum,
Seyðisfirði, skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.
123/2010.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu er auglýst samhliða
breytingu á aðalskipulagi Seyðisfjarðar 2010-2030.
Tillagan tekur til 28 ha svæðis undir Bjólfshlíðum,
Seyðisfirði, þar sem áformað er að reisa þrjá varnar-
garða með það að markmiði að bæta öryggi íbúa
Seyðisfjarðar gagnvart snjóflóðum og um leið skapa
aðstæður fyrir uppbyggingu útivistarsvæðis. Þá gerir
tillagan ráð fyrir göngustígum og útsýnistöðum ásamt
húsbíla- og bílastæðum.
Hægt er að nálgast skipulagstillöguna ásamt greinar-
gerð og umhverfisskýrslu á heimasíðu Múlaþings,
www.mulathing.is og á skrifstofum sveitarfélagsins að
Lyngási 12, Egilsstöðum og Hafnargötu 44, Seyðis-
firði, frá 16. júní til 30. júlí 2021.
Almenningi er gefinn kostur á að senda inn skriflegar
ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa
Múlaþings, Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á net-
fangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 30. júlí
2021.
Hver sá, sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna,
telst henni samþykkur.
Skipulagsfulltrúi Múlaþings
Múlaþing
Atvinnublað Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í
Mogganum, ámbl.is og finna.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is