Morgunblaðið - 17.06.2021, Síða 59

Morgunblaðið - 17.06.2021, Síða 59
ÍÞRÓTTIR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021 Sagt er að ýmislegt sem gripið var til í kórónuveirufaraldrinum sé komið til að vera. Til dæmis aukin fjarvinna og betri skiln- ingur á sóttvörnum og ráðstaf- anir gegn þeim. Eitt af því sem íþróttahreyf- ingin þurfti að grípa til var að finna leiðir til að ljúka keppni innan þrengri tímaramma en áð- ur. Í blakinu var fundið upp á svo- kallaðri gullhrinu sem átti að leysa af hólmi þriðja leik í einvígi. Reyndar þurfti ekki að grípa til hennar. Í handboltanum var farin sú leið í úrslitakeppni karla að leika tvo leiki heima og heiman og láta samanlögð úrslit ráða í stað þess að þurfa að vinna tvo eða þrjá leiki í einvígi. Það má endalaust deila um hvor aðferðin sé betri og líklega verður snúið strax aftur til fyrra horfs. En það mætti samt alveg horfa til þess að nota tveggja leikja kerfið áfram, t.d. í átta liða úrslitum. Við fengum allsvakaleg ein- vígi, t.d. milli ÍBV og FH og á milli Vals og ÍBV, og nú er logandi spenna fyrir seinni úrslitaleik Hauka og Vals annað kvöld. Patrekur Jóhannesson þjálfari Stjörnunnar benti reyndar í við- tali í blaðinu á þriðjudag á áhugavert keppnisfyrirkomulag í danska handboltanum. Tveir riðlar í átta liða úrslit- um þar sem tvö efstu lið deild- arinnar byrja með tvö stig og næstu tvö með eitt stig, til að fá forgjöf vegna árangurs vetrarins. Síðan hefðbundin undanúrslit og úrslit með mögulegum odda- leikjum. „Það er mjög vel heppn- að kerfi og ég vildi sjá það hér á landi,“ sagði Patrekur. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is EM 2021 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ítalir komust í gærkvöld fyrstir allra í sextán liða úrslit Evrópumóts karla í fótbolta og gerðu það á afar sann- færandi hátt. Þeir unnu Svisslend- inga 3:0 í Róm, nákvæmlega eins og þeir lögðu Tyrki að velli í fyrstu um- ferðinni, og það er ljóst að þeir bláu mæta fullir sjálfstrausts til leiks í út- sláttarkeppni mótsins. Þeir eiga eftir að mæta Wales- verjum í úrslitaleik A-riðilsins en Wales er með fjögur stig eftir sann- færandi sigur á Tyrkjum, 2:0, í Bakú. Fjögur stig ættu alltaf að duga til að komast áfram, jafnvel þótt Wales- verjar myndu missa annað sæti rið- ilsins til Svisslendinga í síðustu um- ferðinni. Viðureign Sviss og Tyrklands í lokaumferðinni er hins vegar hreinn úrslitaleikur um hvort þeirra geti átt von um að halda áfram keppni en viðbúið er að jafntefli myndi senda þau bæði heim á leið. Lokaumferð A-riðils fer fram 20. júní þegar Ítalía mætir Wales í Róm og Sviss mætir Tyrklandi í Bakú. _ Aaron Ramsey, þrítugur leik- maður Juventus, skoraði sitt 17. mark í 65 landsleikjum fyrir Wales þegar hann kom liði sínu yfir gegn Tyrkjum í gær. _ Connor Roberts, 25 ára bakvörð- ur Swansea City, skoraði sitt annað mark í 28 landsleikjum þegar hann gulltryggði sigur Wales undir lokin. Áður hafði Gareth Bale skotið yfir mark Tyrkja úr vítaspyrnu. _ Manuel Locatelli, 23 ára gamall leikmaður Sassuolo, skoraði tvö fyrri mörk Ítala í gærkvöld en hann hafði fram að því aðeins gert eitt mark í ell- efu landsleikjum. _ Ciro Immobile, hinn 31 árs gamli framherji Lazio, innsiglaði sigurinn með sínu sextánda landsliðsmarki í 49 leikjum en hann skoraði líka gegn Tyrkjum í fyrstu umferðinni. B-riðillinn er galopinn B-riðillinn er galopinn eftir að Rússar lögðu Finna í grannaslag í Pétursborg í gær, 1:0. Nú eru Belg- ar, Rússar og Finnar allir með þrjú stig en Danir eiga eftir að mæta Belgum á Parken í annarri umferð- inni í dag. Takist Dönum að sigra verða öll liðin jöfn að stigum fyrir lokaumferðina. Belgar geta hins vegar tryggt sig áfram með sigri en þeir lögðu Rússa 3:0 í fyrstu umferð- inni. Eins og staðan er í B-riðlinum eru talsverðar líkur á að liðið í þriðja sæti komist í sextán liða úrslit en þangað fara fjögur lið af þeim sex sem enda í þriðja sæti riðlanna. _ Aleksei Mirantsjúk, 25 ára gam- all miðjumaður Atalanta á Ítalíu, skoraði sigumark Rússa í uppbót- artíma fyrri hálfleiks. Hans sjötta mark í 35 landsleikjum. Ítalir áfram á skotskónum - Unnu annan 3:0 sigurinn þegar þeir mættu Sviss og eru fyrsta liðið til að tryggja sig í 16-liða úrslitin - Hnífjafn B-riðill þar sem Danir mæta Belgum í dag AFP Tvenna Manuel Locatelli neðstur í hrúgu ítölsku leikmannanna eftir að hafa skorað annað mark sitt gegn Sviss. Eiður Smári Guðjohnsen er kominn í tímabundið leyfi frá störfum hjá KSÍ en hann er aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins. KSÍ skýrði frá því í gær að sambandið hefði veitt honum skriflega áminningu en lýsti um leið yfir stuðningi við hann og þá ákvörðun hans að leita sér hjálp- ar. Í tilkynningunni segir KSÍ að hann muni snúa aftur í verkefni haustsins með landsliðinu. Eiður segir í yfirlýsingu að hann ætli að taka á sínum áfengisvandamálum en báðar tilkynningarnar er að finna á mbl.is/sport/fotbolti. Eiður Smári í tímabundið leyfi Morgunblaðið/Eggert KSÍ Eiður Smári Guðjohnsen kemur aftur til starfa í haust. Þýskaland Bergischer – RN Löwen ..................... 26:28 - Arnór Þór Gunnarsson lék ekki með Bergischer. - Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö- wen. Magdeburg – Ludwigshafen.............. 37:29 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 9 mörk fyrir Magdeburg og átti 6 stoðsendingar en Gísli Þorgeir Kristjánsson er frá keppni. Balingen – Wetzlar.............................. 30:28 - Oddur Gretarsson skoraði eitt mark fyr- ir Balingen. Nordhorn – Stuttgart ......................... 26:29 - Viggó Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir Stuttgart. Staðan: Flensburg 62, Kiel 61, Magdeburg 50, RN Löwen 47, Füchse Berlín 44, Leipzig 40, Melsungen 38, Göppingen 38, Lemgo 37, Wetzlar 36, Bergischer 33, Erlangen 30, Hannover-Burgdorf 30, Stuttgart 29, Bal- ingen 27, Minden 25, Ludwigshafen 24, Nordhorn 17, Essen 13, Coburg 11. Þrem- ur umferðum er ólokið. B-deild: Gummersbach – Elbflorenz ............... 32:29 - Elliði Snær Viðarsson skoraði 4 mörk fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs- son þjálfar liðið. _ Efstu lið: N-Lübbecke 54, Hamburg 54, Gummersbach 51, Elbflorenz 38. Danmörk Oddaleikur um meistaratitilinn: Aalborg – Bjerringbro-Silkeborg ..... 32:27 - Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. _ Aalborg vann einvígið 2:1 og er danskur meistari 2021. Oddaleikur um bronsverðlaunin: GOG – Tvis Holstebro ......................... 33:29 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 12 skot í marki GOG, 32 prósent markvarsla. - Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði ekki fyr- ir Tvis Holstebro. _ GOG vann einvígið 2:1. %$.62)0-# Hlynur Bergsson úr GKG er kominn í 32 manna úrslitin á Opna breska áhugamannamótinu í Inverness í Skotlandi eftir sigur á Matt Roberts frá Wales í fyrstu umferð holu- keppni mótsins í gær. Hann mætir Calum Scott frá Skotlandi snemma í dag og sá sem vinnur leikur áfram í 16 manna úrslitum síðdegis. Aron Snær Júlíusson, Sigurður Arnar Garðarsson, Kristófer Karl Karls- son og Dagbjartur Sigurbrandsson féllu allir út í 64 manna úrslitum í gær. Hlynur áfram í Inverness Ljósmynd/Kristinn Magnússon Skotland Hlynur Bergsson sigraði Walesverja í útsláttarkeppninni. metra hlaupi, kúluvarpi og lang- stökki á mótinu. Bergrún er í 23. sæti heimslistans í 100 metra hlaupi, 25. sæti í 200 metra hlaupi, 7. sæti í kúluvarpi og 13. sæti í lang- stökki. Patrekur Andrés er líkt og Bergrún að taka þátt í sínu fyrsta Ólympíumóti en hann er með keppnisrétt í 400 metra hlaupi þar sem hann er í 31. sæti heimslistans. Már Gunnarsson er einnig að taka þátt á sínu fyrsta Ólympíumóti en hann er með keppnisrétt í fimm greinum á mótinu; 50 metra skrið- sundi þar sem hann er í 25. sæti heimslistans, 400 metra skriðsundi þar sem hann er í 9. sæti heimslist- ans, 100 metra baksundi þar sem hann er í 4. sæti heimslistans, 100 metra flugsundi þar sem hann er í 19. sæti heimslistans og 200 metra fjórsundi þar sem hann er í 13. sæti heimslistans. Thelma Björg tók þátt á Ólymp- íumótinu í Ríó 2016 en hún er með keppnisrétt í Tókýó í 100 metra bringusundi þar sem hún er í 8. sæti heimslistans og í 400 metra skrið- sundi þar sem hún er í 18. sæti á heimslista. Ekki er enn þá ljóst í hvaða grein- um Bergrún Ósk og Már munu keppa en það mun skýrast þegar nær dregur móti. Þorsteinn Halldórsson gæti einn- ig unnið sér inn keppnisrétt á leik- unum á lokaúrtökumóti í Tékklandi í byrjun júlímánaðar Þorsteinn keppti í bogfimi á leik- unum í Ríó í Brasilíu árið 2016 og varð þá fyrsti bogfimikeppandi Ís- lands frá upphafi á Ólympíumóti fatlaðra. Þá hefur Íþróttasamband fatlaðra lagt inn umsóknir fyrir fleira af- reksíþróttafólk í ljósi árangurs þess undanfarið og bíður sambandið nú svara við þeim umsóknum. Tilbúin í baráttuna í Tókýó - Fjórir Íslendingar hafa unnið sér inn keppnisrétt á Ólympíumóti fatlaðra Már Gunnarsson Patrekur Andrés Axelsson Thelma Björg Björnsdóttir Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir TÓKÝÓ 2021 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, Már Gunnarsson, Patrekur Andrés Ax- elsson og Thelma Björg Björns- dóttir verða fulltrúar Íslands á Ól- ympíumóti fatlaðra, Paralympics, í Tókýó í Japan í ágúst- og sept- embermánuði. Frjálsíþróttafólkið Bergrún Ósk og Patrekur Andrés keppa fyrir hönd FH, sundmaðurinn Már Gunn- arsson keppir fyrir ÍRB og sund- konan Thelma Björg fyrir ÍFR. Ólympíumót fatlaðra fer fram dagana 24. ágúst til 5. september en öll fjögur hafa áunnið sér rétt til þess að keppa á leikunum fyrir Ís- lands hönd. Bergrún Ósk tekur þátt í sínu fyrsta Ólympíumóti en hún er með keppnisrétt í 100 metra hlaupi, 200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.