Morgunblaðið - 17.06.2021, Síða 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021
Bio-Kult Migréa
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
14 góðgerlastofnar B6-Vítamín Magnesíum
Bio Kult Migréa er sérhönnuð góðgerlablanda með
það að markmiði að styðja við meltingarveginn og
taugakerfið. Þessi öfluga blanda stuðlar að eðlilegri
starfsemi taugakerfisins og dregur úr þreytu og lúa.
Bio Kult Migréa er vegan og hentar einnig fyrir ófrískar konur.
Gæti skipt höfuðmáli
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Eurovision-farinn Daði Freyr
Pétursson hlaut í gær tónlistar-
verðlaunin Langspilið sem afhent
voru af Sambandi tónskálda og eig-
enda flutningsréttar, öðru nafni
STEF. Þetta var í sjöunda skipti
sem verðlaunin voru afhent en sig-
urvegari er sá höfundur sem STEF
telur hafa skarað fram úr og náð
eftirtektarverðum árangri í tónlist á
síðastliðnu ári.
Daði Freyr er vel að verðlaun-
unum kominn en hann lauk BA-námi
í tónlistarstjórnun og hljóðvinnslu í
Berlín árið 2017. Meðal annarra af-
reka hefur hann tekið þátt í Söngva-
keppni sjónvarpsins í þrígang með
ágætum árangri í hvert skipti en
eins og flestum er kunnugt lenti
hann í fjórða sæti í lokakeppninni nú
á dögunum með laginu „10 Years“.
Sigur Daða í söngvakeppninni hér-
lendis var þó ekki í fyrsta sinn sem
sunnlenski listamaðurinn hlýtur
viðurkenningu fyrir tónlistarflutn-
ing en árið 2012 vann hann Músík-
tilraunir með hljómsveitinni RetRo-
Bot og var auk þess valinn rafheili
ársins það sama ár.
Heiður að taka við Langspilinu
Daði segir það mikinn heiður að
taka við verðlaununum, sérstaklega
í ljósi þeirra listamanna sem hlotið
hafa verðlaunin á undan honum en
með þessu afreki slæst hann í hóp
tónlistarfólks á borð við Hildi
Guðnadóttur og Ólaf Arnalds. Daði
kveðst hafa vitað af verðlaununum í
einhvern tíma en ekki grunað að
hann yrði fyrir valinu.
Líkt og nafn verðlaunanna gefur
til kynna hljóta verðlaunahafar sér-
smíðað langspil frá Jóni Sigurðssyni
á Þingeyri. Spurður hvort hlust-
endur megi búast við að heyra í
þessu einstaka hljóðfæri í næstu
verkum segir Daði það ekki útilokað.
„Ég gæti alveg trúað því. Ég hef
aldrei prófað að spila á langspil, ég
er eiginlega mjög spenntur að eign-
ast svoleiðis. Ég hef áður spurst fyr-
ir um hver smíðaði svona en lét aldr-
ei verða af því að eignast það.“
Um 70 tónleikar á dagskrá
Daði er nú á leiðinni í fæðingar-
orlof eftir langa og stranga Euro-
visiontörn en hann flýgur í dag til
Þýskalands þar sem hann á heima
með konunni sinni, Árnýju Fjólu
Ásmundsdóttur. Hann segir fríið
kærkomið en hann hefur þurft að
hafna fjölda tónleikaboða undan-
farið.
Störf Gagnamagnsins hafa nú ver-
ið sett á bið en að sögn Daða er sú
hljómsveit einungis ætluð Eurovisi-
on. Eftir orlofið hefst harkan á ný en
stefnan er sett á að fara í tónleika-
ferðalag um Evrópu og Bandaríkin.
Á næsta ári áætlar Daði að koma
fram á 60 til 70 tónleikum. Lengi
framan af spilaði Daði mikið einn á
sviði en í ljósi umfangs tónleikanna
ákvað hann að stækka hljómsveitina
um tvo hljóðfæraleikara.
Vinnur bráðum að nýrri plötu
Spurður hvort hann sjái fram á að
taka nýja stefnu á næstu plötu segir
Daði það ólíklegt. „Ég hreinlega veit
það ekki, ég hugsa að ég fari ekkert
allt of langt frá því sem ég er að gera
núna. Þetta er svona það sem mér
finnst skemmtilegast að gera.“ Daði
er ekki byrjaður að vinna í nýrri tón-
list, enda búið að vera nóg á könn-
unni hjá honum undanfarna mánuði,
en að hans sögn hefur hann sjaldan
samið eins lítið af lögum og nú í
kórónuveirufaraldrinum. Undirbún-
ingur fyrir næstu plötu hefst þó von
bráðar og kemur þá betur í ljós
hvaða stefna verður tekin.
Morgunblaðið/Eggert
Á ferð og flugi Daði Freyr Pétursson tók við verðlaununum hérlendis í gær
og flýgur til Þýskalands í dag, þar sem hann býr ásamt Árnýju Fjólu.
„Mjög spenntur að
eignast“ alvörulangspil
- Daði Freyr hlaut í gær tónlistarverðlaunin Langspilið
Draugahundur nefnist sýning Bjargeyjar Ólafsdóttur
sem opnuð er í gamla barnaskólanum á Eskifirði í dag
kl. 15. „Sýningin samanstendur af 12 ljósmyndum af
Samoyed-voffum. Samoyed-hundurinn sem líkist draug
var upphaflega ræktaður til að veiða, draga sleða, og
smala hreindýrum,“ segir í tilkynningu.
Bjargey lærði ljósmyndun, málaralist og blandaða
tækni í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Lista-
akademíunni í Helsinki, og handritsgerð og leikstjórn í
Binger Filmlab í Amsterdam. „Hún vinnur í fjöl-
breyttum miðlum, og verður útkoman oft í formi íron-
ískra verka, stundum ofbeldisfullra eða óhugnanlegra,
og sækir hún innblástur í þráhyggjur og fantasíur nútímalífs. Persónurnar
í verkum hennar eru gjarnan einstaklingar sem týnast í kunnuglegum en
þó framandi aðstæðum.“ Hún hefur gert nokkrar kvikmyndir og sýnt verk
sín víða um lönd, m.a. í Listasafni Reykjavíkur, Ljósmyndasafni Reykja-
víkur, Nýlistasafninu í Reykjavík, Kunstverein í München, KunstWerke í
Berlín, Galaria Traschi í Santiago og Färgfabriken Norr í Östersund.
Draugahundur til sýnis á Eskifirði
Bjargey
Ólafsdóttir
stellingar | línulaga frásagnir nefn-
ist sýning sem opnuð hefur verið í
BERG Contemporary á Klapparstíg.
„Á sýningunni er að finna fjölbreytt
verk sem takast á við línuteikningu
með einum eða öðrum hætti,“ segir í
tilkynningu.
Sýnendur eru þau Áslaug Íris
Katrín Friðjónsdóttir, Hanna Dís
Whitehead, Haraldur Jónsson, Finn-
bogi Pétursson, Páll Haukur og
Sirra Sigrún Sigurðardóttir.
„Þau vinna í fjölbreytta miðla, en
þar má meðal annars nefna vél-
rænar teikningar eftir Finnboga,
þrívíðar teikningar eftir Áslaugu og
Hönnu Dís, auk tilfinningateikninga
Haraldar.“ Sýningartextann skrifar
skáldið Kristín Ómarsdóttir.
stellingar | línulaga frásagnir hjá BERG
Gult Verk eftir Harald Jónsson.
Fikt og fræði nefnist sumarsýningin með verkum Péturs
Kristjánssonar sem opnuð er í Skaftfelli í dag kl. 16.
„Pétur hefur búið á Seyðisfirði frá því á 9. áratugnum og
stýrði Tækniminjasafni Austurlands þangað til nýverið
og átti auk þess drjúgan þátt í að koma á fót Skaftfelli og
Dieter Roth-akademíunni. Hann hefur í gegnum tíðina
verið lykilmaður í menningarlífi bæjarins og unnið hörð-
um höndum að list sinni og á sama tíma skapað tækifæri
fyrir aðra listamenn. Pétur vinnur oft með það sem fell-
ur til í samfélaginu og endurspeglar þannig gildismat
okkar og fegurðarskyn; hluti sem fólk fleygir eða gefur
upp á bátinn og hefur að þeirra mati tapað virði og jafn-
vel notagildi sínu. En í meðförum Péturs er þeim fundinn nýr útgangs-
punktur og hlutverk. Verk hans bjóða þannig upp á að við endurhugsum
viðhorf okkar til hluta í kringum okkur og það er eiginlega óhjákvæmilegt
að tengja verk Péturs við neysluhyggju nútímans og vegferð okkar í þeim
efnum,“ segir í tilkynningu. Boðið er upp á listamannaspjall 19. júní, kl. 15.
Sýningin er opin daglega milli kl. 12 og 18.
Fikt og fræði opnuð í Skaftfelli í dag
Pétur
Kristjánsson
Búið er að velja börnin fjögur sem
fara munu með hlutverk Emils og
Ídu í fjölskyldusöngleiknum Emil í
Kattholti sem fer á fjalirnar í Borg-
arleikhúsinu í nóvember. Með hlut-
verk Emils fara þeir Gunnar Erik
Snorrason og Hlynur Atli Harðar-
son, sem báðir eru 10 ára. Ída verður
leikin af Sóleyju Rún Arnarsdóttur,
sem er níu ára, og Þórunni Obbu
Gunnarsdóttur, sem er átta ára.
Þórunn Arna Kristjánsdóttir leik-
stýrir uppfærslunni, danshöfundur
er Lee Proud, tónlistarstjóri er
Agnar Már Magnússon, leikmynd
hannar Eva Signý Berger og bún-
inga hannar María Ólafsdóttir.
Alls skráðu um 1.200 börn sig í
leikprufur í seinasta mánuði og hittu
listrænir stjórnendur sýningarinnar
öll börnin til að finna réttu leikarana
fyrir hlutverkin. „Þarna eru einstak-
lega hæfileikarík börn á ferðinni
sem verður gaman að fylgjast með,“
segir í tilkynningu frá Borgarleik-
húsinu.
Morgunblaðið/Eggert
Tilhlökkun Þórunn Obba, Erik, Hlynur Atli og Sóley hafa verið valin til að
fara með hlutverk Emils og Ídu í uppfærslu Borgarleikhússins.
Emil og Ída fundin
- Fjöldi hæfileikaríkra barna mætti í
opnar leikprufur hjá Borgarleikhúsinu