Þjóðmál - 01.06.2017, Page 14

Þjóðmál - 01.06.2017, Page 14
12 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 Skoðanasystkini Jóns Þórs hófu að safna undirskriftum undir þennan texta: „Alþingi samþykkti skipun 15 dómara gegn ráðlagningu fagnefndar í einni atkvæða- greiðslu, en dómara skal þingið samþykkja hvern fyrir sig ef farið er á skjön við ráðl- agningu. Því er lögmæti skipunarinnar í vafa og við hvetjum forseta Íslands að skrifa ekki undir hana. Það er ekki í lagi að leyfa ráðherra að skipa dómara eftir forsendum sem einungis hún þekkir. Stöndum vörð um réttarkerfið okkar og krefjumst útskýringa.“ Þetta er ambögulegt bænarskjal til forseta sem er ábyrgðalaus af stjórnarathöfnum. Fráleitt er að hann geti neitað að skrifa undir skipunarbréf dómaranna. Rætt hefur verið hvort þingmenn hafi átt að greiða atkvæði um hvert nafn á lista ráðher- rans. Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðismanna, benti á að þingsköp giltu um atkvæðagreiðslur á alþingi, enginn þingmaður hefði óskað eftir að einstakir liðir í tillögu ráðherrans yrðu bornir sérstaklega undir atkvæði eins og þingforseti gerir jafnan þegar um er beðið. Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra skýrði ástæður þess að hún lagði til breyt- ingar á niðurstöðu dómnefndarinnar í sunnu- dagsblaði Morgunblaðsins 4. júní 2017. „Nú hefur þingið í fyrsta sinn fengið tækifæri til þess að axla þá ábyrgð sem það kallaði eftir árið 2010. Ráðherra [Sigríði sjálfri] varð það strax ljóst, eftir viðræður við forystumenn flokkanna, að niðurstaða dómnefndar um skipan dómara við Landsrétt myndi ekki hljóta brautargengi á Alþingi. Rökstuðningur ráðherra hefði þar engu breytt. Sjálfum fannst ráðherra niðurstaða nefndarinnar of einstrengingsleg. Að virtum öllum sjónarmiðum sem máli skipta gerði ráðherra tillögu til Alþingis um tiltek- na 15 einstaklinga úr hópi þeirra 24 sem hann hafði metið hæfasta. Virtist mikil og góð sátt um tillögu ráðherra í upphafi. Það breyttist hvað stjórnarandstöðuflokkana varðaði. Það kann að vera að vonbrigði þeirra sem höfðu verið á lista dómnefndar en ráðherra gerði ekki tillögu um, og þeim tengdra, hafi haft þar áhrif. Þá verður ekki fram hjá því litið að umræða í fjölmiðlum getur ært óstöðugan. Þessi reynsla gefur tilefni til þess að velta því fyrir sér hvort þingið sé í stakk búið til þess að axla þessa ábyrgð, hvort það sé yfirleitt sanngjarnt að ætlast til þess af því með tilliti til hlutverks þess. Dómsmálaráðherra getur í öllu falli fullyrt, nú í ljósi reynslu sinnar, að endurskoða þarf reglur og fyrirkomulag við veitingu dómaraembætta.“ Með öðrum orðum sá Sigríður dómsmála- ráðherra eftir forkönnun meðal þingmanna að óbreytt tillaga dómnefndarinnar, fag- nefndarinnar, yrði ekki samþykkt á þingi. Miðvikudaginn 7. júní 2017 var upplýst að þingflokkur Viðreisnar hefði lagst gegn tillögu dómnefndarinnar vegna skorts á jafn- rétti, of fáar konur væri þar að finna. Dómsmálaráðherra breytti því tillögunni og fékk hana samþykkta en eftir flokkspólitískt uppnám af því tagi að Sigríður vill ekki að slíkur leikur í kringum dómstólana endurtaki sig á þingi – að hennar mati féll þingið á prófinu. „Sjálfum fannst ráðherra niðurstaða nefndarinnar of einstrengingsleg. Að virtum öllum sjónarmiðum sem máli skipta gerði ráðherra tillögu til Alþingis um tiltekna 15 einstaklinga úr hópi þeirra 24 sem hann hafði metið hæfasta. Virtist mikil og góð sátt um tillögu ráðherra í upphafi. Það breyttist hvað stjórnarandstöðuflokkana varðaði.”

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.