Þjóðmál - 01.06.2017, Side 30
28 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017
Hvort sú verður raunin á eftir að koma í ljós
en komi til þess gæti það styrkt stöðu Íhalds-
flokksins vegna brezka kosningakerfisins
sem gengur út á einmenningskjördæmi þar
sem sá frambjóðandi sem flest atkvæði fær
nær kjöri. Fylgi Verkamannaflokksins gæti því
dreifst í næstu kosningum.
Rúmlega 90% þingmanna
kosnir út á Brexit
Þar sem enginn stjórnmálaflokkur hlaut
hreinan meirihluta í þingkosningunum í júní,
sem leiddi til minnihlutastjórnar Íhaldsflokks-
ins með stuðningi Lýðræðislega sambands-
flokksins (DUP) frá Norður-Írlandi, hefur
ítrekað verið rætt um að mögulega komi til
nýrra kosninga innan ekki svo langs tíma.
Líkurnar á því hafa þó minnkað verulega eftir
samning flokkanna tveggja.
Þrátt fyrir að Íhaldsflokkurinn hafi misst
þingmeirihluta sinn í þingkosningunum fékk
flokkurinn engu að síður flesta þingmenn
kjörna eða 317 auk forseta þingsins sem
greiðir ekki atkvæði. Verkamannaflokkurinn
hefur 262 þingmenn, Skozki þjóðarflokkurinn
35, Frjálslyndir demókratar 12, velski flok-
kurinn Plaid Cymru 4 og Græningjar einn.
Samanlagt 314 þingmenn.
Með öðrum orðum hafa þessir fimm stjórn-
málaflokkar færri þingmenn samanlagt en
Íhaldsflokkurinn einn. Þeir þingmenn sem
út af standa eru sjö þingmenn Sinn Fein,
sem taka ekki sæti sín á brezka þinginu, og
einn óháður þingmaður frá Norður-Írlandi úr
röðum íhaldssamra mótmælenda sem myndi
seint vinna með þessum flokkum frekar en
Lýðræðislegi sambandsflokkurinn.
Fyrir vikið hefur Corbyn kallað eftir nýjum
þingkosningum enda ljóst að eina leiðin til
þess að mynda starfhæfa ríkisstjórn með
þingmeirihluta að baki sér í kjölfar síðustu
kosninga er sú sem farin var.
Fimm flokka minnihlutastjórn undir forystu
Corbyns ætti litlar lífslíkur. Sennilega álíka
miklar og sú fimm flokka stjórn sem reynt var
að mynda hér á landi ekki alls fyrir löngu.
Talsvert var rætt um það að
útgangan úr Evrópusambandinu
gæti leitt til skozks sjálfstæðis og að
Bretland liðaðist þannig í sundur.
Fleiri töldu þó að lítil hætta væri á því.
Þrátt fyrir að þingkosningarnar í
síðasta mánuði hafi ekki beinlínis
farið eins og Theresa May, for-
sætisráðherra Bretlands og leiðtogi
Íhaldsflokksins, hafði vonazt til þar
sem hún missti þingmeirihluta
sinn í stað þess að auka hann bætti
flokkur hennar engu að síður við
sig talsverðu fylgi frá kosningunum
2015. Verkamannaflokkurinn bætti
hins vegar við sig meiru.