Þjóðmál - 01.06.2017, Síða 38

Þjóðmál - 01.06.2017, Síða 38
36 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 að kaupa og selja verðbréf fyrir viðskiptavini sína en máttu aftur á móti fjárfesta í skráðum eða óskráðum verðbréfum (þ.m.t. hluta- bréfum eða skuldabréfum) á eigin reikning. Þá var þeim jafnframt heimilt að fjárfesta í ríkisskuldabréfum, skuldabréfum sem gefin voru út af ríkjum eða sveitafélögum og af fyrirtækjum sem nytu aðstoðar hins opinbera (t.d. lánafyrirtækjanna Fannie Mae og Freddie Mac sem stofnuð voru síðar). Engar aðrar takmarkanir voru lagðar á þessi viðskipti viðskiptabanka. Þá lögðu önnur ákvæði bann við því að viðskiptabankar ættu hlutdeild í fyrirtækjum sem hefðu fyrst og fremst það hlutverk að sjá um verðbréfaútboð og kaupa verðbréf til að eiga á veltubók til þess að geta selt síðar til viðskiptavina. Áhættuþættirnir sem þarna átti koma í veg fyrir voru þeir að viðskipta- bankar gætu verið berskjaldaðir fyrir þeirri hættu sem fjárfestingarbankar standa frammi fyrir þegar þeir sölutryggja verðbréfaútboð (sitja uppi með það sem ekki selst) og áhæt- tunni sem slíkir bankar og verðbréfafyrirtæki standa frammi fyrir vegna veltubókar sinnar. Það sem skiptir máli í þessu samhengi er að viðskiptabankar gátu eftir sem áður fjárfest í verðbréfum. Það sem meira er að bönkum var jafnframt heimilt að framselja lánasöfn sín. Þegar verðbréfun (e. securitization) kom til sögunnar fóru þessar fjárgirðingar laga- bálksins að sanna gagnsleysi sitt. Verðbréfun er þegar banki tekur hluta lánasafnsins og pakkar því í eitt skuldabréf sem síðan er selt áfram. Með þessu minnkar bankinn eiginfjár- bindingu sína og sá sem fjárfestir í bréfinu fær tekjustreymið af afborgunum af upphaf- legu lánunum. Þrátt fyrir Glass-Steagall löggjöfina gátu bankar verðbréfað lánasöfn sín en aftur á móti gátu þeir ekki sjálfir gefið út slík eignatryggð skuldabréf og ekki miðlað slíkum bréfum. Eigi að síður gátu þeir keypt slíka pappíra inn á fjárfestingabók og selt þá án hindrana. Hér er ástæða til að gera hlé á frásögn McDonald og rifja upp að verðbréfun er í sjálfu sér ekki áhættusamur gjörningur, hvað sem allri umfjöllun um undirmálslán og eignatryggða fjármálagerninga á árunum eftir hrun líður. Sértryggð skuldabréf, sem innihalda fasteignalánasöfn viðskiptabanka, þykja með traustari fjárfestingum. Þannig má nefna að þegar gríska ríkið lenti í greiðslufalli og allt fór í uppnám í sunnanverðri álfunni þá stóðu sértryggð skuldabréf gefin út af grískum bönkum það allt af sér. Og rétt er að minna á að ekkert greiðslufall varð af sér- tryggðum skuldabréfum íslensku bankanna sem voru gefin út fyrir fall þeirra. Vildu setja bönkunum skorður Carter Glass hafði á árunum fyrir Kreppuna miklu gagnrýnt bankastarfsemi í Banda- ríkjunum harðlega. McDonald telur að sú gagnrýni hafi að sumu leyti átt rétt á sér. Á árunum frá 1924-29 höfðu viðskiptabankar víða um land stundað flókin viðskipti með skuldabréfavafninga sem að hluta til byggðu væntingum um hækkandi húsnæðisverð. Á sama tíma jókst verðbólga í landinu, kaupmáttur minnkaði en þrátt fyrir það var töluvert fjármagn á innlánsreikningum bank- anna. Á vissan hátt má segja að bankarnir hafi stundað spákaupmennsku í þeim tilgangi að viðhalda markaði fyrir eigin verðbréf og nýtt til þess innstæður og eigið fé. Ekkert af þessu á þó skylt við starfsemi fjárfestingarbanka heldur bjuggu viðskiptabankarnir til sín eigin vandamál sem síðar kom í bakið á þeim. Í stuttu máli mætti segja að þeir hafi blásið í eigin bólu sem síðar sprakk. En það var fleiri sem réði ákvörðun og áhuga Glass á því að setja bönkunum frekari skorður. Hann hafði fyrr á sínum pólitíska ferli gegnt veigamiklu hlutverki í stofnun banda- ríska seðlabankans (árið 1913). Sem öldunga- deildarþingmaður hafði hann einnig verið einn helsti drifkrafturinn við gerð sérstakra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.