Þjóðmál - 01.06.2017, Síða 60

Þjóðmál - 01.06.2017, Síða 60
58 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 jum og öllum hinum kleift að hirða fé Banda- ríkjamanna og halda jafnframt áfram að dæla út koltvísýringi eins og ekkert hafi í skorist. Þess vegna er alveg rétt hjá honum að losa Bandaríkjamenn undan samningi sem jafnast á við það sviksamlegasta sem menn hafa séð. Við þetta bætast þær góðu fréttir að ekkert af þessu mun hafa minnstu áhrif á þróun loft- slags í heiminum. Fólkið sem reiðist svo mikið núna hefur frá fyrstu tíð leitað að vitlausum stað að orsökum loftslagsbreytinganna.“ Parísarsamkomulagið tákn fáránleikans Markus Somm, ritstjóri Basler Zeitung, skrifar grein blað sitt laugardaginn 3. júní um afstöðu Trumps til Parísar-samkomulagsins. Hann segir: „Enn á ný hafa gagnrýnendurnir rangt fyrir sér – af því að fullir hatri sjá þeir aðeins óþægilega manninn með óþægilegu hárgreiðsluna – þrátt fyrir allt hefur Trump rétt fyrir sér. Hann hefur rétt fyrir sér vegna þess að loftslagsamkomulagið er ef til vill dæmigerðasta skjalið um hve allt er úr skorðum farið á heimsmælikvarða. Stjórn- málamenn elska loftslagsmál af því að þau geta í fyrsta lagi sýnt þá sem sögulega leiðtoga – án þess að nokkru sinni verði unnt að meta þá af verkum þeirra: því að hver núverandi stjórnmálamanna verður lifandi árið 2100? Það er árið sem við er miðað í Parísar-sam- komulaginu þegar sagt er að hitinn á jörðinni verði ekki 2 gráðum meiri en áður en hann tók að hækka vegna iðn-væðingarinnar. Enginn ábyrgðarmannanna verður þá lifandi – allir hvíla þeir hjá guði. Í öðru lagi mótast þetta samkomulag af sjálfs- hatri Vesturlandaþjóðanna sem er svo mjög í tísku meðal þeirra sem mynda vestrænar elítur. Á sama tíma og iðnríkin taka á sig að takmarka óskaplega útblástur sinn á kolt- vísýringi, svo mjög að markinu verður aldrei náð þrátt fyrir þungar efnahagslegar byrðar, dugar þróunarríkjunum að gefa stórundarleg innantóm loforð; einkum Kínverjum og Ind- verjum. Þessir ríku, næstum þróuðu risar hafa ekki skuldbundið sig til neins heldur einungis gefið loforð og það sem þeir hafa lofað er einskis virði.“ Markus Somm víkur að INDCs þar sem hvert ríki setur fram áætlun um hve mikill útblástur þess á gróðurhúsalofttegundum verður á hverjum tíma. Ríki ráði því hvort þau skýra Sameinuðu þjóðunum (SÞ) frá því fimmta hvert ár hvort þau standa við þessi ætluðu markmið sín. Somm leggur áherslu á orðið „ætluðu“ og segir að engri þjóð verði refsað nái hún ekki yfirlýstu markmiði enda ráði SÞ ekki yfir neinum þvingunarúrræðum. Hefðu skuldbindandi ákvæði verið í samkomulaginu hefði það aldrei verið gert, segir hann og bætir við að grunlausum almenningi hafi verið talin trú um eitthvað sem sé í raun hrein blekking. Hann segir: „Einhugur ríkja heims um að bjarga alheiminum er við nánari skoðun skjal sem er ekki einu sinni pappírsins virði. Menn komu sér saman um að hver og einn gæti gert það sem hann vildi. Geri hann ekkert er það einnig í lagi.“ Somm gefur ekki mikið fyrir fyrirheit Kínverja um að þeir muni ná hámarki útblásturs árið 2030 og síðan draga úr honum. Það verði á valdi kommúnistaflokksins í Kína en ekki annarra að ákveða þetta. Svissneski ritstjórinn segir að Indverjar hafi ekki skuldbundið sig á neinn hátt til að draga úr útblæstri sínum en á hinn bóginn hafi Á sama tíma og iðnríkin taka á sig að takmarka óskaplega útblástur sinn á koltvísýringi, svo mjög að markinu verður aldrei náð þrátt fyrir þungar efnahagslegar byrðar, dugar þróunarríkjunum að gefa stórundarleg innantóm loforð; einkum Kínverjum og Indverjum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.