Þjóðmál - 01.06.2017, Síða 61

Þjóðmál - 01.06.2017, Síða 61
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 59 þeir lofað þakklátum stjórnmálamönnum Vesturlanda að bæta orkunýtingu sína ár frá ári á grunni tækniframfara og betri lífskjara. Hann segir að lýsa megi loforði Indverja á þann veg að of þungur karl lofi konu sinni að léttast með því að segja í upphafi rangt til um þyngd sína, segja hana 80 kg og hann ætli í 75 kg. Konan fagnar en áttar sig ekki á að maðurinn er aðeins 72 kg þegar hann gefur loforðið. Somm segir að nú hafi birst upplýsingar sem geri Parísar-samkomulagið í raun að tákni fáránleikans. Nýlega hafi vísindamaður við MIT-háskólann í Bandaríkjunum birt útreikn- inga sem sýni að þótt ríkin 195 standi við allar áætlanir sínar samkvæmt eigin INDCs verði hlýnun jarðar á þann veg að árið 2050 hafi hitinn ef til vill hækkað um 1,9 til 2,6 gráður – árið 2100 ef til vill um 3,1 til 5,2 gráður. Þetta gerist þótt öll ríki standi nákvæmlega við það sem þau segist ætla að gera til að hitinn hafi ekki hækkað nema um tæplega 2 gráður árið 2100. Í útreikningunum frá MIT segir að haldi ríkin öll sig við Parísar-samkomulagið verði þessi mikla hækkun 0,2 gráðum minni en ella yrði. Somm segir: „0,2 gráður? Fjallið tók joðsótt og fæddi mús.“ Basel-ritstjórinn segir að taka verði öllum spádómum með fyrirvara, einnig frá MIT. Það séu alls kyns flóknar tölvusviðsmyndir til um hugsanlega hlýnun jarðar og þær hafi vakið miklar umræður og deilur. Enginn viti neitt með vissu. Eitt sé þó öruggt að sá sem vilji minnka útblástur koltvísýrings og margir mæli því bót verði að gera allt til að rannsaka nýjar orkunýtingarleiðir á öllum sviðum og án bannorða eða lögbundinna takmarkana. Ekki skuli beðið um ríkisstuðning við vind- og sólarorku heldur um ríkulegan fjárstuðning við rannsóknir. Ekkert dragi meira úr orku- notkun og koltvísýringsmyndun en góður efnahagur og ný tækni. Aðeins sé unnt að bæta loftslag jarðar með bættum efnahag ekki samningum, fyrirheitum og sniðughei- tum stjórnmálamannanna. Þeir ættu að stuðla að hagvexti en eigi greinilega erfitt með það. Greininni í Basler Zeitung lýkur á þessum orðum: „Donald Trump truflar þessa elítuhópa. Þeim leið svo vel á ráðstefnum og leiðtogafundum þar til þessi fíll kom og braut allt sem stóð í vegi hans. Postulín? Nei, hann hefur traðkað á heitu lofti.“ Stjórnmálamenn elska loftslagsmál af því að þau geta í fyrsta lagi sýnt þá sem sögulega leiðtoga – án þess að nokkru sinni verði unnt að meta þá af verkum þeirra: því að hver núverandi stjórnmálamanna verður lifandi árið 2100?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.