Þjóðmál - 01.06.2017, Side 65

Þjóðmál - 01.06.2017, Side 65
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 63 að „stíflan hefði brostið“, það væri áþreifan- legur munur á því hvernig íbúar landsins eru tilbúnir að tjá sig um ríkisstjórnina, vaxandi velmegun hefði ýtt undir frumkvöðlahugsun og þá væri vaxandi vilji til þess að vernda tjáningarfrelsi blaðamanna, ólíkt því sem áður var. Bandow varar við því að herða enn tökin á Kúbu. Það muni fyrst og fremst bitna á íbúum landsins og hindra uppgang einkageirans á eyjunni, sem að öllu óbreyttu hefði leitt til þverrandi áhrifa kommúnismans. Fari svo að Trump haldi sig við þá stefnu sem hann boðaði í júní muni það einungis styrkja ríkisstjórn Kúbu og ílengja kúgun hennar á íbúum landsins. „Kosningabaráttan er búin. Trump forseti ætti að gera það sem er best fyrir bæði Bandarík- jamenn og íbúa Kúbu og binda endi efnahag- slegar þvinganir gegn eyjunni,“ segir Bandow. Líkt og Rand Paul fullyrðir hann að íbúar Kúbu verði frjálsir einn daginn. Með því að flæða fólki, og þar með fjármagni, yfir eyjuna muni sá dagur koma fyrr en síðar. Fidel Castro, fv. einræðisherra á Kúbu lést í nóvember árið 2016. Hann komst til valda árið 1959 og kúgaði íbúa landsins alla sína valdatíð. Frá einu af fjölmörgum fátæktahverfa Kúbu. Hverfa sem fæstir ferðamenn fá að sjá í heimsókn sinni til landsins.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.