Þjóðmál - 01.06.2017, Page 65
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 63
að „stíflan hefði brostið“, það væri áþreifan-
legur munur á því hvernig íbúar landsins eru
tilbúnir að tjá sig um ríkisstjórnina, vaxandi
velmegun hefði ýtt undir frumkvöðlahugsun
og þá væri vaxandi vilji til þess að vernda
tjáningarfrelsi blaðamanna, ólíkt því sem
áður var.
Bandow varar við því að herða enn tökin á
Kúbu. Það muni fyrst og fremst bitna á íbúum
landsins og hindra uppgang einkageirans á
eyjunni, sem að öllu óbreyttu hefði leitt til
þverrandi áhrifa kommúnismans. Fari svo
að Trump haldi sig við þá stefnu sem hann
boðaði í júní muni það einungis styrkja
ríkisstjórn Kúbu og ílengja kúgun hennar á
íbúum landsins.
„Kosningabaráttan er búin. Trump forseti ætti
að gera það sem er best fyrir bæði Bandarík-
jamenn og íbúa Kúbu og binda endi efnahag-
slegar þvinganir gegn eyjunni,“ segir Bandow.
Líkt og Rand Paul fullyrðir hann að íbúar
Kúbu verði frjálsir einn daginn. Með því að
flæða fólki, og þar með fjármagni, yfir eyjuna
muni sá dagur koma fyrr en síðar.
Fidel Castro, fv. einræðisherra á Kúbu lést í nóvember
árið 2016. Hann komst til valda árið 1959 og kúgaði íbúa
landsins alla sína valdatíð.
Frá einu af fjölmörgum fátæktahverfa Kúbu. Hverfa sem fæstir ferðamenn fá að sjá í heimsókn sinni til landsins.