Þjóðmál - 01.06.2017, Side 67

Þjóðmál - 01.06.2017, Side 67
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 65 --- En það er a.m.k. alveg á hreinu að í áfram- haldandi styrkingu krónunnar og viðvarandi ástandi verður rekstrarumhverfi okkar sífellt erfiðara og tel ég að margar útgerðir og vinnslur muni leita leiða til hagræðingar með sameiningum eða sölu eða hætta rekstri. Það hlýtur öllum landsmönnum að vera ljóst að núverandi peningastefna Seðlabanka Íslands er ekki sjálfbær fyrir íslenskt atvinnulíf og henni verður að breyta áður en það er of seint. --- Nú á dögunum skipaði sjávarútvegsráðherra nefnd um endurskoðun veiðigjalda í umræðunni kölluð sáttanefnd. Ég vil aðeins leggja út af orðinu sátt. Í mínum huga hlýtur að vera sátt um atvinnugrein sem nýtir auðlindir þjóðarinnar á sjálfbæran og ábyrgan hátt og nýtir auðlindina með þeim hætti að þeir sem hana nýta í dag skila henni af sér í jafngóðu ef ekki betra ásigkomulagi til næstu kynslóðar. Hvers vegna er ósætti um atvinnugrein sem fjárfestir fyrir milljarða tugi um allt land og tryggir að öflug fyrirtæki verði burðarásar síns atvinnusvæðis og tryggja atvinnuöryggi og hálaunastörf? Hvers vegna er ósætti um atvinnugrein sem ekki einungis nýtir auðlind- ina á arðbæran hátt þjóðinni til heilla, heldur greiðir aukalega til samfélagsins í formi auðlindagjalda? Hvers vegna er ósætti um atvinnugrein sem hefur búið til þann jarðveg og framtíðarsýn að upp úr honum spretta sprota- og nýsköpunarfyrirtæki sem skapa ótrúleg verðmæti úr hliðarafurðum sem fyrir ekki löngu síðan voru ekki nýtt? Hvers vegna er ósætti um atvinnugrein sem með sífelldri kröfu um betri gæði, betri nýtingu, framleiðni og afköst hefur getið af sér hátæknifyrirtæki sem skapa þúsundir starfa og eru leiðandi á sínu sviði í heiminum? Hvers vegna er ósætti um atvinnugrein sem er […] fyrirmynd fyrir aðrar fiskveiðiþjóðir hvernig nýta á auðlindir sjávar með ábyrgð, sjálfbærni, framleiðni, hagræði og samfélagslega ábyrgð að leiðar- ljósi? Hvers vegna er ósætti um atvinnugrein sem fjárfestir fyrir milljarða tugi um allt land og tryggir að öflug fyrirtæki verði burðarásar síns atvinnusvæðis og tryggja atvinnuöryggi og hálaunastörf?

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.