Þjóðmál - 01.06.2017, Page 67
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 65
---
En það er a.m.k. alveg á hreinu að í áfram-
haldandi styrkingu krónunnar og viðvarandi
ástandi verður rekstrarumhverfi okkar sífellt
erfiðara og tel ég að margar útgerðir og
vinnslur muni leita leiða til hagræðingar með
sameiningum eða sölu eða hætta rekstri. Það
hlýtur öllum landsmönnum að vera ljóst að
núverandi peningastefna Seðlabanka Íslands
er ekki sjálfbær fyrir íslenskt atvinnulíf og
henni verður að breyta áður en það er of
seint.
---
Nú á dögunum skipaði sjávarútvegsráðherra
nefnd um endurskoðun veiðigjalda í
umræðunni kölluð sáttanefnd. Ég vil aðeins
leggja út af orðinu sátt. Í mínum huga
hlýtur að vera sátt um atvinnugrein sem
nýtir auðlindir þjóðarinnar á sjálfbæran og
ábyrgan hátt og nýtir auðlindina með þeim
hætti að þeir sem hana nýta í dag skila henni
af sér í jafngóðu ef ekki betra ásigkomulagi til
næstu kynslóðar.
Hvers vegna er ósætti um atvinnugrein sem
fjárfestir fyrir milljarða tugi um allt land og
tryggir að öflug fyrirtæki verði burðarásar
síns atvinnusvæðis og tryggja atvinnuöryggi
og hálaunastörf? Hvers vegna er ósætti um
atvinnugrein sem ekki einungis nýtir auðlind-
ina á arðbæran hátt þjóðinni til heilla, heldur
greiðir aukalega til samfélagsins í formi
auðlindagjalda? Hvers vegna er ósætti um
atvinnugrein sem hefur búið til þann jarðveg
og framtíðarsýn að upp úr honum spretta
sprota- og nýsköpunarfyrirtæki sem skapa
ótrúleg verðmæti úr hliðarafurðum sem fyrir
ekki löngu síðan voru ekki nýtt? Hvers vegna
er ósætti um atvinnugrein sem með sífelldri
kröfu um betri gæði, betri nýtingu, framleiðni
og afköst hefur getið af sér hátæknifyrirtæki
sem skapa þúsundir starfa og eru leiðandi á
sínu sviði í heiminum? Hvers vegna er ósætti
um atvinnugrein sem er […] fyrirmynd fyrir
aðrar fiskveiðiþjóðir hvernig nýta á auðlindir
sjávar með ábyrgð, sjálfbærni, framleiðni,
hagræði og samfélagslega ábyrgð að leiðar-
ljósi?
Hvers vegna er ósætti um atvinnugrein sem fjárfestir fyrir milljarða tugi um allt land og tryggir að öflug fyrirtæki verði
burðarásar síns atvinnusvæðis og tryggja atvinnuöryggi og hálaunastörf?