Þjóðmál - 01.06.2017, Page 69
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 67
þegar að fyrirtækið er að fækka úr 270
starfsmönnum á Akranesi í 185 og fyrirheit
eru um að reyna að finna sem flestum vinnu
annarsstaðar hjá fyrirtækinu – annað hvort
á Akranesi eða í Reykjavík? Akranes er 6.800
manna samfélag í hálftíma akstri frá Rey-
kjavík. Á sama tíma hefur HB Grandi fjárfest
fyrir tíu milljarða í atvinnutækjum og kvóta
til að styrkja 600 manna byggðarlag austur
á fjörðum. Tíu milljarðar sem hafa tryggt
starfsöryggi og byggðafestu Vopnafjarðar til
framtíðar. Samfélag sem er tíu sinnum minna
en Akranes í 700 km fjarlægð frá Reykjvavík.
Það að halda því fram að stefna HB Granda sé
ekki samfélagslega ábyrg er í einu orði galin.
Við höfum fleiri dæmi um hvernig íslensk
sjávarútvegsfyrirtæki eru að treysta byggðir
og atvinnusvæði allt í kringum landið og
fjárfesta til framtíðar. Má þar nefna upp-
byggingu Jakobs Valgeirs í Bolungarvík,
Hraðfrystihúsið Gunnvör stefnir á að byggja
nýja bolfiskvinnslu á Ísafirði, fjárfestingar í
nýjum vinnslutækjum hjá Odda á Patreksfirði,
uppbygging Ísfélagsins á Þórshöfn, ný bol-
fiskvinnsla Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði,
aukin vinnsla og fjárfesting Síldarvinnslunnar
á Seyðisfirði, nýtt hátækni-uppsjávarfrystihús
Eskju á Eskifirði, Samherji var að tilkynna nú
á dögunum um milljarða uppbyggingu á
nýrri og glæsilegri bolfiskvinnslu á Dalvík og
á morgun bætist í flotann Sólberg ÓF 1 sem
er eitt glæsilegasta og tæknilegasta frystiskip
í Norður Atlantshafi. Sex milljarða króna
fjárfesting sem skilar 70 hátekjustörfum í
samfélagið í Fjallabyggð.
Ofangreind dæmi lýsa svo ekki verður um
villst að ef einhver atvinnugrein á Íslandi er
að byggja upp, horfa til framtíðar, tryggja
byggðafestu og góð laun fyrir starfsmenn
sína þá er það íslenskur sjávarútvegur.
---
Íslenskur sjávarútvegur er atvinnugrein
tækifæranna og stjórnendur og starfsfólk
íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja hafa sýnt það
í verki að okkar dagsverki líkur aldrei.
Við erum alltaf að leita að nýjum tækifærum,
alltaf að finna betri og betri leiðir til að
hámarka afrakstur okkar af auðlindum sjávar.
Á því sviði erum við leiðandi í samfélagi
þjóðanna.
„... að halda því fram að stefna
HB Granda sé ekki samfélagslega ábyrg er í einu orði galin.