Þjóðmál - 01.06.2017, Blaðsíða 76

Þjóðmál - 01.06.2017, Blaðsíða 76
74 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 Þannig hefur verið um langa hríð og norður- höf tengjast áfram grundvallar öryggishags- munum Rússlands. Auk þess að tryggja þetta vígi kafbátanna hefur einnig verið forgangshlutverk Norðurflotans að geta varið bækistöðvar hans á landi og flugvelli rúss- neska flughersins á Kolaskaga. Afl flotans í þessum efnum er vaxandi með tilkomu mun langdrægari stýriflauga en áður, sem skjóta má frá kafbátum, herskipum og flugvélum á skotmörk á sjó og landi. Búast verður við að í stefnu Rússa sé miðað við að framvarnir eldflaugakafbáta í norðurhöfum geti náð suður í GIUK hliðið svonefnda. Það er herfræðilegt hugtak sem nær yfir hafsvæðin milli Grænlands og Íslands, Íslands og Færeyja og Færeyja og Bretlands. Eigi að senda kafbáta lengra út á Atlantshaf þurfa þeir auðvitað að fara um þetta hlið. Með aukinni umferð rússneskra kafbáta er mikilvægara en oft áður að sinna í auknum mæli eftirliti á Norður Atlant- shafi, þar á meðal í nágrenni Íslands yfir GIUK hliðinu og norðan við það. Þar gegna kafbátaleitarflugfélagar Bandaríkjanna og annarra NATO ríkja lykilhlutverki. Af þessum sökum hefur Bandaríkjafloti áhuga á takmarkaðri og tímabundinni viðveru kafbátaleitarflugvéla á Keflavíkurflugvelli og á síðasta ári undirritaði forveri minn í starfi sameiginlega yfirlýsingu með vara- varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Þar er tekið mið af aukinni en tímabundinni viðveru Bandaríkjahers hér á landi, hvort heldur sem er í nafni loftrýmisgæslu eða kafbátaleit, auk þess sem gagnkvæmar skuldbindingar í sam- starfi ríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála eru áréttaðar á grundvelli varnarsamningsins. Vegna þessara auknu umsvifa eru fyrir- hugaðar framkvæmdir á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli sem lúta meðal annars að breytingum á flugskýli og bættri aðstöðu fyrir kafbátaleitarvélar. Norður Atlantshaf og Ísland hefur öðlast aukið strategískt vægi á nýjan leik. En hvernig leggur Ísland sitt að mörkum í þágu eigin og sameiginlegra varna? Við augljóslega erum og verðum a herlaus þjóð – það er ein af grundvallarforsendum þjóðaröryggisstefnunnar. Það breytir ekki því að við höfum margt fram að færa og ber skylda til að leggja okkar að mörkum. --- Þetta er veruleikinn sem blasir og við Íslendingar skorumst vitanlega ekki undan ábyrgð. Við tökum þátt í samstöðuaðgerðum bandalagsins í Evrópu sem stofnað var til eftir atburðina í Úkraínu og leggjum þar til borgaralega sérfræðinga – og stefnum að því að fjölga þeim. Við leggjum sömuleiðis til fjármagn í sjóði á vegum bandalagsins sem nýtast meðal annars til jafnréttismála og þjálfunar í eyðingu sprengja. Í þessum málaflokkum höfum við umtalsverða sérfræðiþekkingu fram að færa sem nýst hefur bandalaginu vel. Við leggjum sömuleiðis til baráttunnar gegn hryðjuverkum þar sem Atlantshafsbanda- lagið hefur nú auknu hlutverki að gegna, ekki síst með miðlun upplýsinga og þjálfun. Einnig leggur Ísland til fjölþjóðaliðsins gegn hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki, einkum með framlögum til mannúðarmála. Þá skiptir stuðningur við bandalagsríki okkar sem hafa viðkomu á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.