Þjóðmál - 01.06.2017, Qupperneq 79
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 77
Ekkert af því sem stuðningsmenn viðskipta-
hafta stinga upp á rætt öðruvísi en sem
aðstoð til hinna vinnandi manna – á þessu er
bókstaflega engin undantekning, ekki einu
sinni í tollhúsinu. Þú ímyndar þér kannski
að tollhúsið sé tæki til skattheimtu eins og
eignaskatturinn eða vegaskattarnir!
Því fer fjarri. Það er bókstaflega stofnun sem
stuðlar að framgangi siðmenningarinnar,
bræðralags og jafnréttis. Hver er þín afstaða?
Það er lenska að kynna eða reyna að kynda
undir tilfinningaleg viðbrögð við öllu, jafnvel
við bás tollheimtumannsins.
Sögur og þýðingar
Geir Ágústsson
Kínversk saga
- eftir Claude Fréderic Bastiat
Sagan sem hér verður sögð er eftir Claude Fréderic Bastiat og birtist í einu af fjölmörgum
ritum hans, Economic Sophims (2. hluta), árið 1848.
Bastiat var uppi á ólgutímum í Frakklandi og raunar Evrópu allri. Hann fæddist árið 1801og
lést ungur, eða árið 1850, úr berklum. Stjórnmálaástandið var viðburðaríkt á þessum árum
og þar tókust á ýmsar hreyfingar af mikilli hörku. Frakkland gekk í gegnum hvorki meira né
minna en tvær byltingar. Bastiat var hlynntur frjálsum markaði, trúfrelsi og hlutleysi í utan-
ríkismálum. Frakkland var hins vegar á annarri vegferð sem honum tókst ekki að stöðva.
Helsta vopn Bastiat í hugmyndafræðibaráttunni, fyrir utan störf sín sem þingmaður, voru rit-
störf. Bastiat var vel lesinn, hugmyndaríkur og mjög lipur penni. Eftir hann liggja fjölmörg rit,
sögur og greinar sem enn í dag er lesið af miklum móð. Má þar helst nefna Lögin, Söguna um
brotna gluggann og Ákall kertagerðarmanna um að loka á sólina. Sumt af þessu er aðgengilegt
á íslensku, en betur má ef duga skal. Þess má geta að öllum verkum Bastiat hefur verið safnað
saman í eitt rit (á ensku), The Bastiat Collection (2011), sem má kaupa á pappír eða sækja
endurgjaldslaust sem rafbók á heimasíðu hinnar bandarísku Mises Institute (www.mises.org).
Í sögunni sem nú fylgir – í lauslegri þýðingu minni – er sagt frá siglingaskurði í Kína og
hvernig honum var kennt um atvinnuleysi og lág laun allra sem bjuggu við hann.
Stuðningsmenn viðskiptahindrana skilja vonandi að spjótunum er beint að þeirra málstað.
Stuðningsmenn frjálsra viðskipta fá vonandi gott veganesti í þessari sögu.
Kínversk saga