Þjóðmál - 01.06.2017, Page 82
80 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017
Áhrifalögmálilð
Mælikvarðinn á eiginleika leiðtogans eru
áhrifin sem hann hefur – ekkert annað. Ef þú
hefur engin áhrif getur þú aldrei leitt aðra. En
hvernig mælum við áhrifin? Hér er dæmi sem
gæti svarað þeirri spurningu. Síðla sumars
1997 var allri heimsbyggðinni brugðið með
tveimur atburðum sem gerðust á u.þ.b. viku;
andláti Díönu prinsessu og Móður Theresu. Á
yfirborðinu þá hefðu þessar tvær konur varla
getað verið ólíkari. Önnur var hávaxin, ung
og falleg prinsessa frá Englandi sem gekk um
meðal þeirra fínustu. Hin, sem hafði hlotið
friðarverðlaun Nópels, var lítil, gömul kaþólsk
nunna fædd í Abaníu og þjónaði hinum allra
fátækustu í Calcutta, Indlandi.
Það merkilega er að áhrif þeirra beggja voru
sambærileg. Í úttekt sem London Daily Mail
stóð fyrir árið 1996 voru Díana Prinsessa og
Móðir Teresa í fyrsta og öðru sæti yfir þá sem
létu sér mest varða um aðra. Það er nokkuð
sem gerist ekki nema þú hafir mikil áhrif.
Hvernig fór einstaklingur eins og Díana að
því að verða metin af sömu gæðum og Móðir
Theresa? Það er af því að hún var lifandi
dæmi áhrifalögmálið.
Díana fangaði athygli heimsins.
Árið 1981 varð Díana Spencer mest umtal-
aðasta persóna heims þegar hún giftist Karli,
krónprinsi Bretlands. Nær einn milljarður
manna horfði á brúðkaup þeirra í sjónvarpi.
Frá þeim degi var eins og fólk fengi aldrei
nóg af fréttum af henni. Fólk var áhuga-samt
um Díönu, ungri konu sem hafði áður verið
barnaskólakennari. Til að byrja með var hún
feimin og athyglin sem hún og maðurinn
hennar voru að fá var yfirþyrmandi. Sumir
segja að Díana hafi snemma orðið óánægð
með þær kröfur og skyldur sem á hana voru
lagðir sem prinsessa. En hún aðlagaðist nýju
hlutverki með tímanum. Þegar hún fór að
ferðast og koma fram í nafni konunglegu
fjölskyldunnar þá gerði hún það fljótt að
markmiði sínu að þjóna öðrum og safna
fjármagni fyrir hinum ýmsu góðgerðarmál-
efnum. Á þessum tíma byggði hún upp
öflugt tengslanet við fjölda stjórnmála-,
viðskipta-, fjölmiðla- og athafnarmenn sem
og þjóðarleiðtoga. Til að byrja með var hún
talsmanneskja og verndari ýmissa fjáröflunar-
verkefna, en þegar líða fór á varð hún mun
áhrifameiri. Það varð til þess að möguleikar
hennar til að hafa áhrif urðu mun meiri.
Árið 1998 gaf bandaríski rithöfundurinn John Maxwell út sína vinsælustu leiðtogabók
til þessa. Hún heitir á frummálinu The 21 Irrefutable Laws of Leadership: Follow Them
and People Will Follow You.
Hér verður birtur í lauslegri þýðingu brot úr 2. kafla bókarinnar.
Að vera leiðtogi er að hafa áhrif
Bækur