Þjóðmál - 01.06.2017, Page 85

Þjóðmál - 01.06.2017, Page 85
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 83 1981 til 1992 náði hann árangrinum 117 – 79 – 1 (117 sigrar, 79 töp og 1 jafntefli). Hann kom liði sínu þrisvar í Ofurskálina (e. Super Bowl) og fékk þrisvar viðurkenningu sem þjálfari ársins í NFL deildinni. Þrátt fyrir góðan árangur Reeves í Denver, var vegferðin ekki auðveld. Ósætti hans við leik- stjórnandann John Elway og aðstoðarþjálfar- ann Mike Shanahan var alþekkt. Hver var ástæðan fyrir þessu vandamáli? Því var haldð fram að á leiktíðinni 1988 – 89 hefðu Shanahan og Elway búið til og fram- kvæmt sín eigin leikkerfi í sókninni og þar með hunsað orð og skipanir Reeves. Ég veit ekki hvort að þetta er satt en ef svo er þá hafði Shanahan mun meiri áhrif á sóknarleik- menn Denver heldur en Reeves. Þá skipti staða og titill Reeves litlu máli. Það skipti í raun ekki heldur máli hversu góður þjálfari Reeves var. Shanahan hafði meiri áhrif á sóknarleikmennina. Að vera leiðtogi er að hafa áhrif – ekkert annað Shanahan fór frá Broncos í enda tímabilsins en sneri síðan aftur árið 1995 sem yfirþjálfari liðsins. Núna uppfyllti hann þá stöðu sem hann hafði áður haft í hjörtum flestra leik- mannanna, hann var orðinn leiðtogi þeirra. Og forysta hans bar árangur. Í janúar 1998 leiddi hann Denver Broncos með John Elway í eldlínunni til sigurs í Super Bowl. Forysta án vogarafls Ég virði og dáist að leiðtogahæfileikum góðrar vinar míns, Bill Hybels. Hann er forstöðumaður yfir Willow Creek Commu- nity Church í Suður – Barrington í Illinois, sem er ein stærsta kirkjan í Bandaríkjunum. Bill Hybels vill meina að kirkjan sé ein besta framleiðsluvél góðra leiðtoga í þjóðfélaginu. Margir viðskiptamenn sem ég þekki verða skrítnir á svipinn þegar ég segi þetta en ég held samt að Bill hafi rétt fyrir sér. Og hvað hefur hann fyrir sér í því? Jú sjáum til. Stöðugildi hafa lítið að segja í samtökum sem byggjast upp á sjálfboðavinnu. Ef að leiðtogi hefur engin áhrif er hann gagnlaus. Í öðrum samtökum eða fyrirtækjum þá hefur sá sem gegnir yfirmannsstöðu ákveðið vald til að skipa fyrir. Í hernum geta yfirmenn notað sér stöðugildi sitt í nánast hverju sem er. Í viðskiptum hafa yfirmenn mikið vogarafl í formi launa, fríðinda og hlunninda. Flestir sem fylgja eru mjög samvinnuþýðir þegar lifibrauð þeirra er að veði. En í samtök- um sem byggð eru á sjálfboðavinnu þarf fyrsta flokks leiðtoga til að ná settum árangri. Harry A. Overstreet sagði einu sinni, „Kjarni alls valds liggur í því að fá aðra til að taka þátt.“ Það er ekki hægt að neyða fólk í sjálf- boðavinnu. Ef að leiðtogi hefur ekki áhrif á fólk mun það ekki fylgja á eftir. Þegar ég deildi þessari skoðun minni nýlega með um 150 forstjórum í bílaiðnaðinum sá ég að hluti þeirra lyftu augabrúnunum. Og þegar ég vildi gefa þeim eitt mjög gott ráð lögðu þeir allir eyru við hlustir. Ég ætla að deila þessu sama ráð hér núna: Ef þú vilt sjá hvort að fólkið í kringum þig hefur leiðtogahæfileika, sendu það þá út til að sinna sjálfboðaliða- starfi og fá aðra í leið með sér. Ef það getur fengið fólk til að fylgja sér á meðan það þjónar hjá Rauða krossinum, góðgeðarfélagi eða hjálparstofnum, þá veistu að þarna er á ferðinni einstaklingur sem getur haft áhrif – og hefur leiðtogahæfileika. [...] Mitt uppáhalds leiðtoga-spakmæli er: „Sá sem segist vera að leiða, en hefur enga fylgismenn, er í árángurslausri ferð.” Ef þú nærð ekki að hafa áhrif á fólk mun það aldrei fylgja þér. Og ef það fylgir ekki ertu ekki leiðtogi. Þetta er áhrifalögmálið. Að vera leiðtogi er að hafa áhrif – ekkert annað.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.