Þjóðmál - 01.06.2017, Page 89
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 87
Blaðamannafélag Íslands er 120 ára í ár. Í
tilefni af afmælinu hefur félagið í samstarfi
við Háskólann á Akureyri staðið að útgáfu
bókarinnar Í hörðum slag, Íslenskir blaðamenn II
eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur, rithöfund og
blaðamann.
Birgir Guðmundsson, dósent við Háskólann á
Akureyri, er ritstjóri bókarinnar. Sögur útgáfa
gefur bókina út sem er skreytt svart-hvítum
portrettmyndum eftir Kristin Ingvarsson ljós-
myndara af viðmælendum Guðrúnar.
Í bókinni er einnig kafli með ljósmyndum
eftir Gunnar V. Andrésson. Bókin er vönduð
og eiguleg heimild um merkan kafla í sögu
blaðamennsku þegar upplýsingatæknin hóf
að ryðja sér rúms og gjörbreyta miðlunar-
þætti blaðamennskunnar.
Í formála segir Birgir Guðmundsson:
„Fyrir 10 árum, á 110 ára afmæli Blaða-
mannafélagsins, var gefin út sambærileg
bók sem hlaut nafnið Íslenskir blaðamenn.
Þar var rætt við þáverandi handhafa
blaðamannaskírteina 1-10 auk þess sem
tekið var saman yfirlit yfir helstu einkenni
nokkurra tímabila í stöðu fjölmiðla á
Íslandi. Hér er þessi þráður tekinn upp að
nýju í tilefni 120 ára afmælis Blaðamanna-
félagsins.“
Guðrún Guðlaugsdóttir ræðir við 15 blaða-
menn í bókinni og eru þeir handhafar
blaðamann-askírteina nr. 9 til 23 en við fráfall
eða úrsögn einhvers félagsmanns í Blaða-
mannafélaginu færast þeir sem eftir eru ofar í
félagatalinu.
Viðmælendur Guðrúnar eru: Björn Vignir
Sigurpálsson, Magnús Finnsson, Steinar J.
Lúðvíksson, Kári Jónasson, Ingvi Hrafn Jóns-
son, Freysteinn Jóhannsson, Árni Johnsen,
Jóhanna Kristjónsdóttir, Styrmir Gunnarsson,
Kjartan L. Pálsson, Sigtryggur Sigtryggsson,
Gunnar V. Andrésson, Jóhannes Reykdal,
Úlfar Þormóðsson og Sigurdór Sigurdórsson.
Björn Bjarnason
Blaðamennska á
umbrotatímum
Guðrún Guðlaugsdóttir
Í hörðum slag – Íslenskir blaðamenn II
Útgefandi: Sögur útgáfa,
Reykjavík 2016,
366 bls.
Bókarýni