Þjóðmál - 01.06.2017, Side 93

Þjóðmál - 01.06.2017, Side 93
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 91 hræddir, ýmist við að tapa stöðu sinni, sem getur leitt til útskúfunar, eða hreinlega að lenda í fangelsi. Úr hörðustu fangelsisvistinni á engin afturkvæmt. Yeonmi Park lýsir ástandinu með eftirfarandi hætti í inngangi bókar sinnar: „Eins og tugþúsundir annarra Norður- Kóreubúa flýði ég föðurland mitt og settist að í Suður-Kóreu þar sem við erum enn taldir ríkisborgarar, eins og lokuð landamæri og sjötíu ára ágreiningur og togstreita hafi aldrei skilið okkur að. Norður- og Suður-Kóreubúar eru runnir af sömu rótum og við tölum sama tungumál – fyrir utan að í norðri eru ekki til orð yfir hugtök á borð við „verslunarmiðstöðvar“, „frjálsræði“ og jafnvel „ást“, alltént ekki eins og annað fólk í heiminum skilur þau. Eina sanna „ástin“ sem við megum tjá er dýrkun á Kim-unum, ætt harðstjóra sem hafa stjórn- að Norður-Kóreu í þrjár kynslóðir. Stjórn- völd banna upplýsingar erlendis frá, allar kvikmyndir og vídeóupptökur og trufla útvarpsbylgjur. Við höfum ekkert internet og enga Wikipediu. Einu bækurnar sem við megum lesa eru áróðursrit sem segja okkur að við búum í besta landi í heimi þrátt fyrir að helmingur landsmanna hið minnsta búi við sára örbirgð og margir séu viðvarandi vannærðir. Fyrrverandi heimaland mitt kallar sig ekki Norður-Kóreu – það telur sig vera Chosun, hina sönnu Kóreu, fullkomna sósíalíska paradís þar sem 25 milljónir manna lifa aðeins til að þjóna Leiðtogan- um mikla, Kim Jong Un. Mörg okkar, sem höfum flúið, köllum okkur „svikara“ vegna þess að með því að neita að sætta okkur við örlög okkar og fórna lífinu fyrir Leið- togann höfum við svikið málstaðinn og brugðist skyldum okkar. Ríkisstjórnin kallar okkur landráðamenn. Ég yrði líflátin ef ég reyndi að snúa aftur.” (Bls.3) Fjölskyldutengsl og flokkshollusta skipta öllu Það er sérkennilegt að lesa frásagnir Yeonmi Park á daglegu lífi í Norður-Kóreu. Almenn- ingur virðist ekki hafa að miklu að stefna, helst er reynt að hugsa fyrir næstu máltíð. Alger skortur á markaðshagkerfi og neytenda- hugsun gerir það að verkum að erfitt er að sjá sér farborða nema fólk beinlínis sé hluti af valdastétt sósíalismans. Valdapíramídanum lýsir Yeonmi Park svona: „Efst er „kjarna“-stéttin sem samanstendur af virtum byltingarmönnum – smábændum, fyrrverandi hermönnum eða ættingjum þeirra sem börðust og létu lífið fyrir Norðrið – og þeim sem hafa sýnt Kim- fjölskyldunni mikla hollustu og eru hluti af flokksvélinni sem heldur henni við völd. Næst kemur „grunn“- eða „vafa“-stéttin en í henni eru þeir sem eitt sinn bjuggu í suðurhluta landsins eða áttu fjölskyldur þar, fyrrverandi kaupmenn, menntamenn og venjulegir borgarar sem ekki eru taldir tilhlýðilega hollir nýju skipaninni. Á botni- num er, að lokum, „óvinveitta“ stéttin en til hennar teljast fyrrverandi landeigendur og afkomendur þeirra, kapítalistar, fyrrverandi suður-kóreskir hermenn, fólk sem er kristið eða aðhyllist önnur trúarbrögð, fjölskyldur stjórnmálafanga og allir sem taldir eru óvinir ríkisins.” (bls.21) Þrátt fyrir ungan aldur hefur Yeonmi Park frá Norður-Kóreu upplifað miklar mannraunir. Árið 2007, þá 13 ára, flýði hún grimmilegar aðstæður heima fyrir ásamt móður sinni til Kína. Þar lentu þær í klóm mansalshrings sem hneppti þær í þrældóm. Um síðir tókst þeim á æsilegan hátt að flýja til Suður-Kóreu. Yfirr hundrað milljónir manna hafa horft á myndbönd með Yeonmi Park á netinu þar sem hún segir sína ótrúlegu sögu. Frásögn Yeonmi Park er upplýsandi, nákvæm og einlæg en hún lýsir æsku í landi þar sem fátæktin, hungrið og óttinn hafa svipt fólk allri mennsku.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.