Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2003, Page 9
Arndís Þorvaldsdóttir
I landnámi Freysteins
fagra II
Um eyðibyggð á Barðsnesi
og í Sandvík
Barðsnes skagar norð-norðaustur í
Norðíjarðarflóa. Nesið er um sjö og
hálfur km að lengd, nær þverhnípt
að austanverðu en fer hallandi að Norð-
íjarðarflóa og endar í Barðsneshomi sem
gengur þverhnípt í sjó fram. Yst á Barðs-
nesi em leifar gamallar megineldstöðvar
sem mædd er af ágangi sjávar og er bergið
að mestu líparít, ákaflega litauðugt.
Nokkru innan við Hornið eru hin
rauðgullnu Rauðubjörg sem blasa við frá
Neskaupstað. Sunnanvert á nesinu niður
undir sjávarmáli er að finna kolaða trjá-
stofna í vaxtarstöðu. Eru þessar gróðurleifar
taldar um 13 milljón ára gamlar og munu
vera þær elstu á landi hér.
I kringum síðustu aldamót fundust
kolalög í Hellisljöru rétt innan við Rauðu-
björg og voru sýnishom send til Danmerkur
og Englands til rannsóknar með námu-
vinnslu í huga. Kolin reyndust ekki nógu
góð og allir draumar um námugröft mnnu
út í sandinn.
Gerpir, Sandvík, Barðsnes og Viðjjörður, Ljósm. SGÞ.
í Landnámu segir að Freysteinn hinn
fagri, sem nam Sandvík, Viðtjörð og Hell-
isfjörð, hafi reist bæ sinn á Barðsnesi.
Þjóðtrúin er ekki sama sinnis og herma
gömul munnmæli að Barðsnes hafi hlotið
nafn sitt af kempunni Barða sem á að hafa
numið Viðljörð og Hellisijörð og byggt sér
bæ innanvert við Rauðubjörg, niður undan
skarði því sem Skollaskarð nefnist.
Atti Barði í útistöðum við skessu eina
sem bjó í Skollaskarði en bæði þóttust eiga
veiðinytjar á svonefndum Selasandi austan
megin. Vildi Skessan koma Barða fyrir
kattamef, en hann fjölkunnugur og varðist
með framsýni brögðum grannkonu sinnar.
Nótt eina dreymir Barða að hann er
staddur út á hlaði. Sér hann þá að dökkan
skýflóka dregur upp undan Skollaskarði og
ummyndast hann í feykilega stórvaxna
konu sem bendir ógnandi að bæ hans.
Hrekkur hann upp við drauminn og snarast
út. Sér hann þá að skessan situr upp á
fellsbrúninni og er að bisa við að spyma
stóru stykki úr hömmnum. Barði grípur
rekuspaða sinn og hleypur til fjalls og var
7