Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2003, Side 105
Brú á Jökulsá hjá Hákonarstöðum
Trébrú eftir Sigurð Thoroddsen frá sama tíma. Hún er mjög líklega sams konar og jyrsta tillagan að brú
á Jökulsá hjá Hákonarstöðum. Teikning frá Vegagerðinni.
gera. Sýslumaður í Norður-Múlasýslu með
aðsetur á Seyðisfírði var þá Jóhannes
Jóhannesson og hafði ýmsum hnöppum að
hneppa um þær mundir.L21 Hann var m. a. í
millilandanefndinni svokölluðu og kann
það að hafa átt þátt í að hann vildi létta af
sér því amstri, sem fylgdi framkvæmdunum
við brúna. Einnig kann að hafa valdið, að
hann hafi talið aðra heppilegri til að standa
í slíku.
Föst stálbrú ákveðin
Höfúndur þessara lína hefur ekki komist
yfir teikningu af trébrú Sigurðar, en á
þessum árum teiknaði hann brú í einu hafi,
(sjá mynd að ofan) sem var næstum jafn
langt og hann hafði áformað yfir Jökulsá,
eða tæpir 27 m.M22 Teikningin er til yfírlits
og er án allra tæknilegra upplýsinga. Hann
hefur haft fyrirmyndir að slíkum brúm
erlendis frá, en hvort svo löng brú þeirrar
gerðar var byggð hér á landi er óvíst. Senni-
lega hefur verið seilst nokkuð langt í þeim
efnum m. 1.1. efniviðar og áhalda. í bréfinu
frá Jóni Þorlákssyni, sem fyrr er vitnað til,
koma fram efasemdir hans um slíka brú.
Ástæða þess, að Sigurður hefur lagt til tré-
brú í byrjun er trúlegast sú, að það var
ódýrasti kosturinn. Hjá Fossvöllum var tré-
brú á ánni og hann kann því að hafa talið að
slík gæti gengið þama líka, þótt lengra væri
milli bakka. En Jón gerir sér grein fyrir ann-
mörkum hennar sem íýrr getur. Tími tré-
brúnna var liðinn þegar önnur byggingar-
efni buðust og ný tækni komin til sögunnar.
Þegar þama var komið, árið 1906, var öld
stálbrúa gengin í garð, en það gerðist árið
1891 með byggingu brúar á Ölfusá, sem var
ótrúlega stórt framfaraspor í brúamálum
landsmanna. Einnig var á þessum ámm að
hefjast öld steinsteyptra brúa og árið 1907
var byggð sú fyrsta þeirrar gerðar og 1908
var byggð steypt bogabrú á Fnjóská, sem
þótti glæsilegt mannvirki. Stálbrýrnar, sem
þá vom komnar, voru 6 hengibrýr, þar sem
yfírbyggingin er hengd í burðarkapla, sem
liggja upp í tuma á sitt hvomm bakka ár-
innar. Dæmigerð hengibrú af minni gerð-
inni, sem nokkuð ömgglega hefur verið
sams konar og Jón hafði í huga í bréfi sínu ffá
14. okt, var brúin á Sogið ffá árinu 1905. Hún
var ífá sama ffamleiðanda í Danmörku og Jón
103