Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2003, Blaðsíða 123
Brú á Jökulsá hjá Hákonarstöðum
í ána en engar brýr á ánni sakaði þá að
heldur.059 Eftir að grindinni var lyft verður
að telja litlar líkur á að flóð nái að skemma
brúna, svona í ljósi reynslunnar. Á Jökul-
dalnum er jámi ákaflega lítið ryðhætt og er
sennilega hvergi á byggðu bóli hérlendis
betra hvað það varðar. Upphafleg vinna á
brúnni hefúr verið góð, sem hvoru tveggja
hefur gefíð henni svona marga daga og sér
ekki ennþá fyrir endann á þeim. Brúin hefúr
því nýst vegfarendum einkar vel allt fram á
þennan dag.
Umgengni um brúna hefur ekki verið
sem skyldi, eins og íslendinga er oft háttur.
Stórir bílar munu hafa farið með hjól niður
í gegnum timburgólfíð, en það hefur þó
ekki orðið að slysi. Bílar hafa lent út í
grindina að innanverðu á leið sinni yfír
hana. Viðgerðir hafa miðast við að bjarga
málum í snatri, óháð upphaflegri gerð
hlutanna og af litlum metnaði. Almennt
viðhald á brúnni hefur verið í lágmarki. Það
þyrfti að koma handrið á landbrúna frá
1953 í stíl við það, sem er fýrir á brúnni,
sem er upprunalegt. Grindin er að sjálf-
sögðu best komin á núverandi undirstöðum
og ekki um annað raunhæft að ræða, en
allar aðrar aðgerðir við brúna ættu að
miðast við að hún haldi sínu upphaflega
útliti sem mest. Gömlu undirstöðumar að
norðanverðu ætti að varðveita, til að sýna
hvemig þær voru upphaflega. Umhverfí
brúarinnar þyrfti lagfæringar við. Það þyrfti
að gera plan fyrir stóra bíla að snúa á
norðurbakkanum. Einnig er ástæða til
græða þau sár, sem rótið í melinn vegna
aðkomunnar að brúnni að norðan hefur
valdið.
I Klausturseli - eina byggða bænum
austan ár, sem brúin þjónar nú - hefur verið
komið upp ferðaþjónustu og má því segja
að brúin hæfí staðnum ákaflega vel og með
skynsamlegri notkun, tengdri þeim eina bæ,
er hún enn í gildi. Ekki er ástæða til að ætla
stærstu langferðabílum að fara yflr hana því
örstutt er að bænum. Að ganga frá brúnni
ætti frekar að vera kærkomin hreyfing flest-
um, sem em á ferðalagi, eftir að hafa setið í
bíl langar leiðir. Full ástæða er til að gæta
brúarinnar sem prýði staðarins.
Þess er að geta, að hún er fyrsta nútíma
brúin á Jöklu og númer tvö á Austurlandi
eftir fyrri Lagarfljótsbrúnni og elsta uppi-
standandi brú í landsfjórðungnum. Hún er
elsta brú landsins, sem er enn í notkun fyrir
bílaumferð. Hún er ótvírætt sá grindarbiti,
ásamt göngubrúnni á Skjálfandafljóti hjá
Fosshóli, sem ætti helst að varðveita til
minja á Islandi.
Brúin er óvenjulega sviphrein, þar sem
eru hinir kúptu burðarbogar. Það er oft svo,
að fallegt form og góð burðarþolshönnun
helst í hendur og á það ótvírætt við þessa
brú. Hún ber einnig vitni smekkvísi og
verkmenningu stálframleiðandans og brúar-
mennimir hér heima virðast líka hafa skilað
sínu með sóma. Hún hefur sannað gildi sitt
á langri ævi, sem sér ekki enn fyrir endann
á. Því verður að telja þá ákvörðun oddvit-
ans, að tillögu verkfræðings landsins, sem
vitnað var til hér fyrr í greininni „að sett
yrði amerísk jámbrú á Jökulsá hjá Hákonar-
stöðum í stað trébrúar þeirrar, er áður var
samþykkt að setja þar,“ mjög framsýna.
Brýr á Jökulsá á Brú árið 2003
Brú á Jökulsá hjá bænum Brú var byggð
1953 og þá trúlegast helst vegna byggðar-
innar í Hrafnkelsdal. Svo minnst sé á stöðu
brúamála á Jöklu í nútímanum, þá verður að
telja hana vel brúaða, sem er á sex stöðum.
Það er hjá Brúarási (Fossvöllum), Hjarðar-
haga, Merki, Hákonarstöðum, Brú og nú
seinast Kárahnjúkum. Reyndar er ein brú til
viðbótar, þ. e. brúin hjá Fossvöllum frá
1931, sem nú er göngubrú.
121