Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2003, Blaðsíða 16
Múlaþing
r
Gerpir, Sandvík, Barðsnes, ViðJjörður, Hellisjjörður og Norðjjörður. Ljósm. SGÞ.
þegar báturinn var komin út af þeirri stefnu. Svona gekk það nú, en þetta blessaðist nú
allt saman.
Það var alltaf róið frá Barðsnesi fyrri part sumars og við krakkamir unnum öll við
útgerðina. Stelpumar beittu og gerðu að, hausuðu og slitu. A nóttinni var maður vakinn
klukkan ijögur eða fímm. Við pabbi fómm þá að draga línuna en bræður mínir, Ragnar
og Jón að vitja um síldametin sem lögð vom fyrir innan lendinguna við svokallaðan
Langamel. Þegar komið var í land var farið að gera að fiskinum og þegar því lauk undir
hádegið var farið að beita. Þegar það var búið átti eftir að stokka upp og leggja línuna.
Oft var langt liðið á kvöld þegar komið var heim. Þá vom nú sumir á stundum syfjaðir
og rétt náðu að fá sér brauðsneið áður en þeir duttu út af. Svona gekk þetta dag eftir dag.
Svo þurfti líka að huga að búskapnum. Vinna áburð á túnin, skera ofan af og slétta,
ganga við lambféð, rýja og þvo ullina.
Stundum fengum við krakkamir frí á sunnudögum og þá var nú líf í tuskunum. Þama
á Suðurbæjunum var mikið af bömum. Það voru 11 systkini á Barðsnesi, 13 á Gerði og
11 vorum við systkinin á Gerðisstekk.
Það var mikil samgangur á milli bæja og enginn rígur. Við lékum okkur mikið saman,
t.d. í boltaleikjum og svo var farið í ferðalög upp í fjall. Stelpumar höfðu með sér kaffi,
kakó og brauð og ég var með harmóníkuna og spilaði upp í Sandfellsbotnunum svo
glumdi í klettunum. Það var oft ljömgt þar og sungið svo undir tók í ljöllunum.
Á hátíðum kom fólkið saman og skemmti sér. Það skiptist þannig á milli bæja að á
jóladag var komið saman heima á Gerðisstekk og spilað og sungið fram á kvöld. Á
annan í jólum í Barðsnesgerði og á nýjársdag á Barðsnesi. Það fannst mér alltaf hátíð-
legast. Sveinn spilaði á orgelið og það var mikið sungið. Svo var farið inn að Stuðlum á
þrettándanum. Við krakkamir fundum upp á því að búa okkur til blys og fómm í blysför
þangað sem gerði þetta allt hátíðlegra. Á Stuðlum bjuggu tveir bræður ákaflega gest-
risnir. Þar var alltaf nóg á borðum og dansað á salnum fram undir morgun.
V______________________________________ _______________________________________J
14
J