Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2003, Page 52

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2003, Page 52
Múlaþing gestir sem dóu þar af sótt, auk þeirra sem óskuðu sér þess sérstaklega og greiddu fyrir það gjald. Talið er að eftir að klaustrið var lagt af hafi það einkum verið fyrirmenni sem fengu leg í klausturkirkjugarðinum á Skriðu en fyrir því eru engar skjalfestar heimildir. Stelling beinagrindarinnar bendir til þess að hún sé frá klausturtímanum frekar en síðar, því handleggir líksins höfðu verið lagðir yfir maga og brjóst eins og tíðkaðist á síðmiðöldum.18 Ljóst er að mikið rannsóknarefni liggur falið í kirkjugarði klaustursins á Skriðu. Góðar líkur eru því á að mannabein úr klausturkirkjugarðinum geti endurspeglað í hnotskum lífið í klaustrinu. Hægt er að skoða það hverjir höfðust þar við; - vom það eingöngu karlmenn eða einstaklingar af báðum kynjum og hvaðan komu þeir? Inni- hald grafanna gæti einnig varpað ljósi á það hvort skólanemar hafi hlotið þar leg eða próventufólk á öllum aldri. Eins má m.a. greina hverjir kunni að hafa keypt sér þar leg og hverjir hafi látist þar af líkþrá eða öðrum sjúkdómum. Jafnframt er hægt að skoða ýmsa aðra þætti, s.s. umbúnað grafa, stellingar, hörgulssjúkdóma eða tann- skemmdir. Beinagrindin sem þegar hefur verið grafm upp bendir til þess að varðveisla beina sé með eindæmum góð. Ekkert er því til fyrirstöðu að rannsókn af þessu tagi geti skilað miklum árangri. Kapella Á svæðum C og E var grafin fram rúst lítillar kapellu en telja má hana eina at- hyglisverðustu uppgötvun rannsóknarinnar til þessa. Sérstaka athygli vekur einnig hversu vel hún er byggð, tæknilega séð. Byggingin er um 14 fermetrar á stærð, með bogadregnum kór á norðurhlið. Þrjár litlar stoðarholur fundust meðfram veggjum hennar að vestanverðu en eystri veggur hennar liggur undir ógrafið svæði (svæði H). Stoðarholurnar benda til þess að kapellan hafi verið þiljuð að innan en vís- bendingar um þil hafa ekki fundist í öðrum vistarverum klaustursins enn sem komið er. Heytóttin, sem skýrt er frá hér að framan, nær að hluta til inn í rúst kapellunnar. Þrátt íyrir það að umfang heytóttarinnar hafi ekki verið mikið, hefur inngangur kapellunnar og hluti af gólfi hennar verið fjarlægður við gerð hennar. í óskemmdum hluta kapellu- gólfsins fundust þrjár stórar hellur sem túlka má sem vísbendingu um að gólfið hafi verið hellulagt, a.m.k. að hluta til. Fræðimenn þeir sem skoðað hafa munk- lífi á Skriðu hafa löngum velt því fyrir sér hvar bænahald og tíðagjörðir munkanna í Skriðuklaustri hafi farið fram, því sam- kvæmt rituðum heimildum var klaustur- kirkjan sjálf ekki vígð fyrr en árið 1512, tæpum tveimur áratugum eftir að klaustrið var stofnað. Kirkja er órjúfanlegur hluti allra klaustra. Reglubræður á Skriðu þurftu að hafa beinan og daglegan aðgang að kirkju fyrir messur jafnt sem tíðasöng. Messur voru haldnar a.m.k. tvisvar á sólarhring og tíðasöngur 4-5 sinnum. Kirkjuklukkunni var hringt til að kalla munkana til tíða og 18Dalback, Göran 1982. Bls. 119. Steinunn Kristjánsdóttir 1995. Bls. 32. 1 'Úrunnar F. Guðmundsson 2000. Bls. 232, 236. 50
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.