Fréttablaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 52
Embætti skólameistara
Flensborgarskólans í Hafnarfirði
Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og
starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir,
aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð
á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt auk þess að hafa frumkvæði að
gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um
framhaldsskóla nr. 92/2008. Skólameistari gegnir mikilvægu hlutverki í mótun
skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og er mikilvægt
að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar.
Hæfni- og menntunarkröfur:
• Starfsheitið kennari ásamt viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu
á framhaldsskólastigi.
• Umfangsmikil stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni.
• Þekking og reynsla af fjármálum, rekstri og áætlanagerð.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
• Reynsla af verkefnastjórnun og stefnumótunarvinnu.
• Afburðafærni í mannlegum samskiptum og færni í að skapa liðsheild á vinnu-
stað.
• Skýr framtíðarsýn og hæfileiki til nýsköpunar.
Ráðning og kjör
Mennta- og menningarmálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að
fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla,
nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996,
með síðari breytingum. Skipað er í embættið frá 1. janúar 2022.
Um ráðningu og launakjör skólameistara fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996 og 12. gr laga um menntun, hæfni og
ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhalds-
skóla, nr. 95/2019.
Nánari upplýsingar um embættið má finna á vefsíðu Starfatorgs.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er til og með 30.11.2021.
Flensborgarskólinn
í Hafnarfirði er með
elstu starfandi
skólum á Íslandi.
Hann var upphaflega
stofnaður árið 1877
sem barnaskóli en
hefur frá árinu 1975
verið framhaldsskóli.
Í dag er Flensborgar-
skólinn bóknámsskóli
sem leggur áherslu á
nám til stúdentsprófs
af félagsvísinda-,
raunvísinda- og við-
skipta og hagfræði-
braut, auk opinnar
námsbrautar þar
sem nemendur geta
hannað sína eigin
námsbraut úr náms-
framboði skólans.
Íþróttaafrekssvið er
starfrækt við skólann
sem nemendur geta
samtvinnað öllum
námsbrautum. Einnig
býður skólinn nám
á starfsbraut sem er
ætluð nemendum
sem þurfa einstakl-
ingsmiðað nám vegna
fötlunar eða sértækra
náms örðugleika.
Nemendur skólans
eru ríflega 700 og
starfsmenn skólans
eru um 85.
Verkefnastjóri
innkaupa og sölu
Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landsamtök
björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi.
Félagið er ein stærstu samtök sjálfboðaliða á
Íslandi. Slysavarnafélagið Landsbjörg leitar að
reynslumiklum einstaklingi til að sjá um innkaup,
innflutning og sölu. Um 100% starf er að ræða.
Helstu verkefni eru:
• Hafa yfirumsjón með innkaupa- og sölumálum
félagsins.
• Sjá um samskipti við innlenda og erlenda birgja.
• Umsjón með framleiðslu, vöruþróun, innkaupum
og dreifingu flugelda.
• Vera tengiliður við einingar félagsins vegna
flugelda.
• Sinna ráðgjöf við kaup á vörum og búnaði fyrir
félagið og einingar þess.
• Almenn skrifstofuvinna.
• Önnur tilfallandi störf.
Hæfniskröfur:
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
• Reynsla af markaðs- og/eða sölustörfum.
• Þekking og reynsla af alþjóðaviðskiptum.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
• Góð kunnátta í ensku.
• Liðshugsun og þekking á félagsstörfum.
• Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót
og þjónustulund.
• Þekking á starfsemi félagsins æskileg.
• Hreint sakavottorð.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um starfið veitir Gunnar Stefánsson,
skrifstofustjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar,
í síma 570 5900 eða gunnar@landsbjorg.is
Umsóknir ásamt ferilskrá óskast sendar á netfangið
starf@landsbjorg.is fyrir 29. nóvember 2021.
The British Embassy in Reykjavik is looking to recruit
a CommuniCations and EvEnts offiCEr.
More details on working at the Embassy, the position and
a full list of the skills and experience we are looking for
can be found here: https://shortest.link/1HnQ
The British Government is an inclusive and diversity-
friendly employer. We welcome and encourage
applications from people of all backgrounds.
the closing date for applications is 5 december 2021.
Job
Opportunity
Framkvæmdastjóri óskast
Fullt starf Stjórnendur
Mývatnsstofa leitar að öflugum einstaklingi til að leiða markaðs-,
kynningar og þróunarstarf stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur til 06.12.2021.
Sjá nánar á JobSérfræðingur í rannsóknateymi
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Rannís er líflegur vinnustaður með um 60 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og
samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og
menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum
og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar
undirbúning vísinda- og tæknistefnu.
Sérfræðingur óskast í fullt starf hjá rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís. Starfið felur í sér umsjón
með tveimur fagráðum Rannsóknasjóðs; fagráði raunvísinda og stærðfræði og fagráði verkfræði og
tæknivísinda, umsjón með Loftslagssjóði og öðrum innlendum sjóðum og alþjóðlegum verkefnum á
þessum fagsviðum með sérstakri áherslu á umhverfismál.
Menntunar- og hæfniskröfur:
l Meistarapróf á sviði verkfræði eða raunvísinda er áskilið en doktorspróf er kostur
l Reynsla af rannsóknum ásamt þekkingu á rannsóknaumhverfi er skilyrði
l Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku bæði tal- og ritmáli
l Góð kunnátta í Norðurlandamáli er kostur
l Mjög góð færni í töflureikni er skilyrði ásamt færni í helstu Office forritum eða sambærilegu
l Mjög góð hæfni í greiningu og lausn vandamála er skilyrði
l Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni áskilin
l Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita
góða þjónustu
Upplýsingar um starfið veitir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs,
í síma 515 5830 eða netfanginu agust.h.ingthorsson@rannis.is.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, þriðjudaginn 30. nóvember 2021.
Sækja skal um á vefsíðu Rannís, www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini. Umsækjendur eru
beðnir um að kynna sér vel starfsemi sviðsins og sérstaklega Rannsóknasjóðs
(sjá handbók sjóðsins fyrir 2022 https://www.rannis.is/media/rannsoknasjodur
/Rsj_Handbok.pdf).
Borgartúni 30, 105 Reykjavík,
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is