Fréttablaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 22
Í kvöld verður dansverkið
ROF frumsýnt í Tjarnarbíói,
en verkið er unnið upp úr
rannsókn sem höfundur þess,
Sveinbjörg Þórhallsdóttir, hóf
fyrir tveimur árum síðan.
bjork@frettabladid.is
Verkið ROF er hluti af
Reykjavík Dance Festi-
val sem nú fer fram, en
Sveinbjörg er einmitt
ein stofnenda hennar.
„Í rannsókn minni, Öll hreyfing
hefur huga í tíma og rúmi, leitast
ég eftir því að tengja innra ástand
líkamans við hreyfingu dansarans,“
segir Sveinbjörg.
„Ég byrjaði að þróa rannsókn-
ina fyrir um tveimur árum – áður
en heimsfaraldurinn reið yfir og
breytti heimsmynd okkar allra.“
Hún segir löngun sína til að hægja
á, skynja og skoða nýjar leiðir í list-
sköpun þar sem samkennd, skynj-
un, hlustun og dýpt ræður ferð, hafa
drifið sig áfram.
„Ég hef verið að rannsaka líkama
dansarans, tækni dansarans og þá
viðamiklu óorðuðu þekkingu sem
líkami dansarans býr yfir. Auk dans-
menntunar er ég menntaður jóga-
kennari og nota hugleiðslu mikið til
að tengja dansarann við undirmeð-
vitund sína, skynjanir sínar, tilfinn-
ingar og reynslu. Þaðan leggjum við
af stað í að spinna hreyfingar sem
síðar eru skoðaðar, ræddar og þró-
aðar áfram. Þannig hef ég þróað
aðferðir mínar áfram í miklu trausti
og samtali við dansarann.“
Sveinbjörg segist hafa sérlegan
áhuga á því hvaða sögu eða reynslu
líkami dansarans býr yfir og hvernig
hún kemur út í hreyfingu. „Hvernig
er hægt að hámarka virkni líkamans
á sviði þannig það hreyfi við áhorf-
andanum? Öll vitneskjan sem kemur
út úr spununum í ferlinu hefur svo
bein áhrif á kóreógrafíuna, tónlistina
og alla umgjörð verksins.“
Dans festival í tæp tuttugu ár
ROF er fyrsti afrakstur könnunar-
innar en Sveinbjörg ætlar að þróa
aðferðina áfram með f leiri döns-
urum og skapa ný verk.
„Rannsóknin hefur verið í gangi
í tæp tvö ár og hefur Halla Þórðar-
dóttir dansari hitt mig reglulega í
stúdíóinu til að prófa aðferðina og
vera í virku samtali við mig. Sjálft
listræna ferlið fyrir ROF hófst svo í
vor í formi undirbúnings, en hefur
svo staðið yfir núna í sex vikur með
listrænum stjórnendum verksins,“
segir Sveinbjörg, en ráðgerðar eru
tvær sýningar, í kvöld og 9. des-
ember en Sveinbjörg lofar að bæta
fleirum við ef eftirspurn verði meiri.
Reykjavík Dance Festival var
stofnað árið 2002 og er hátíðin því
að verða 20 ára gömul, en Sveinbjörg
var ein stofnenda hennar. „Hátíðin
hefur þróast mikið frá stofnun og
er orðin ómissandi hluti af menn-
ingu borgarinnar. Þetta er alþjóð-
leg danshátíð og mikilvægur vett-
vangur fyrir danslistafólk landsins.
Ekki bara til að sýna verk sín og sjá
önnur, heldur líka til að hitta fólk
í bransanum og mynda tengsl og
setja sig sem listamenn í stærra sam-
hengi. Við erum þakklát fyrir það að
getað haldið hátíðina í ár þrátt fyrir
íþyngjandi sóttvarnareglur, en því
miður verða engin partý í ár.
Allar upplýsingar um hátíðina
og verk hátíðarinnar má finna hér:
www.reykjavikdancefestival.is. n
Ég hef verið að rann-
saka líkama dansarans,
tækni dansarans og þá
viðamiklu óorðuðu
þekkingu sem líkami
dansarans býr yfir.
Sveinbjörg
Þórhallsdóttir,
ein stofnenda
Reykjavík Dance
Festival og höf-
undur verksins
ROF
Gerði tveggja ára rannsókn
á líkama dansarans
Sjálfur
segist hann
fyrir löngu
búinn að
brynja sig
fyrir sví-
virðingum.
Ríkis-
skuldir
hafa hækk-
að um 600
milljarða.
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Við mælum með
bjork@frettabladid.is
Í ROF ber Halla Þórðardóttir dansari
verksins tvo „wave“ snjallhringa sem
hún notar til að framkalla hljóð eða
hafa áhrif á áferð tónlistarinnar með
hreyfingu í rauntíma.
Verkið ROF er unnið upp úr tveggja ára rannsókn Sveinbjargar á hreyfingum dansara. Myndir/saga sig
Alþingi hefur verið látið sitja
aðgerðalaust síðan 5. júlí, eða í 138
daga. Þing hefur ekki getað komið
saman vegna klúðurs og hroka af
hálfu yfirkjörstjórnar Norðvestur-
kjördæmis. Hringavitleysan með
talninguna í Borgarnesi nær út yfir
allan þjófabálk. Undirbúningsnefnd
kjörbréfanefndar hamast við að
moka sandi í botnlausa tunnu, en
botninn er suður í Borgarfirði eins
og hjá Bakkabræðrum.
Vart verður önnur ályktun dregin
en að Birgi Ármannssyni hafi verið
falið að tefja málið vegna þess að
formönnum stjórnarf lokkanna
hefur ekkert gengið við að koma
saman nýjum stjórnarsáttmála. Fær
hann jafnvel forsetastól á Alþingi að
launum?
Á meðan er allt látið reka á reið-
anum varðandi stjórn landsins,
þrátt fyrir síendurtekið neyðar-
ástand í heilbrigðiskerfinu vegna
Covid-19 og þrátt fyrir að nú blasi
við að kjörnir fulltrúar fólksins í
landinu fái vart að kynna sér fjár-
lagafrumvarp, samið af ókjörnum
embættismönnum, áður en þeir
greiða um það atkvæði. Ljóst er að
þingmenn fá innan við mánuð til
að ganga frá fjárlögum. Ríkisskuldir
hafa hækkað um 600 milljarða. Á
ekkert að fjalla um það?
Ríkisstjórnin sýndi kjósendum og
sjálfu lýðræðinu fullkomið virðing-
arleysi með því að teygja kosningar
fram á haust í stað þess að kosið yrði
í vor og misnotaði aðstöðu sína til
Óvirðing við lýðræðið eða eru þingmenn óþarfir?
að moka út ríkispeningum í stað
þess að bregðast við málum sem á
brenna.
Alþingi, æðstu stofnun þjóðar-
innar, er haldið á hliðarlínunni
og frá störfum. Það er ófært um
að sinna eftirlitshlutverki sínu og
stefnumótun. Mætti ekki fækka
þingmönnum verulega fyrst þeir
eru svo óþarfir að landið getur verið
án þjóðþings mánuðum og jafnvel
misserum saman og enginn segir
neitt? n
Jólaboðinu
Í Jólaboðinu fá áhorfendur að
skyggnast inn í líf reykvískrar fjöl-
skyldu á aðfangadagskvöld yfir
hundrað ára tímabil. Sýningin er
sýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu
og er einlæg, falleg og einstaklega
fyndin. Leikararnir sýna snilldar-
takta þegar þeir leika karaktera á
hinum ýmsu aldursbilum og sér-
staklega ber að nefna túlkun þeirra
á ungbörnunum sem mæta í boðið.
Kertaljós
Það er ótrúlega róandi að kveikja
kertaljós á kvöldin. Þau færa birtu
og frið og gera heimilið enn nota-
legra. Leiðindaveður sem er utan
dyra skiptir um leið engu máli. Til
að auka enn á góða stemningu er
svo upplagt að hlusta á fallega tón-
list við kertaljósin. n
Forsíðumynd þessa tölublaðs er tákn-
ræn og engin tilviljun að borgarstjóri,
Dagur B. Eggertsson, gægist þar út um
glugga heimilis síns í miðbæ Reykja-
víkur. Þessi sami gluggi skapaði til-
finningu varnarleysis hjá Degi eftir skotárás,
sem virðist hafa verið beint að heimili hans í
upphafi árs.
„Það er óhuggulegt í alla staði að vera
hræddur heima hjá sér,“ lætur Dagur hafa eftir
sér og við getum án efa öll verið sammála um
það. Heimilið er okkur f lestum griðastaður
og eins og hann kemur sjálfur inn á, híbýli
f leiri en hans, þeirra sem honum eru kærastir,
barna hans og eiginkonu.
Dagur, sem setið hefur sem borgarstjóri frá
árinu 2014 og íhugar nú framhaldið, hefur
mátt þola óvægna gagnrýni á störf sín og per-
sónu. Sjálfur segist hann fyrir löngu búinn
að brynja sig fyrir svívirðingum. Þetta hafi
aftur á móti verið allt annað. Atburðurinn var
honum áfall, enda hafi hann trúað á gott og
friðsamt samfélag.
Lái honum hver sem vill. n
Griðastaðurinn
22 Helgin 20. nóvember 2021 LAUGARDAGURFréttablaðiðHeLGin Fréttablaðið 20. nóvember 2021 LAUGARDAGUR