Fréttablaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 62
Hlutverk Fjarskiptastofu er að stuðla að netöryggi ásamt hagkvæmri, öruggri og
aðgengilegri fjarskiptaþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Hjá Fjarskipta-
stofu starfa hátt í 40 manns, aðallega sérfræðingar við úrlausn verkefna á sviði
netöryggis, tæknimála, viðskipta og laga sem tengjast hlutverki stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Meðhöndlun öryggisatvika og veikleika í tölvu- og netkerfum
• Samhæfing við sviðshópa mikilvægra innviða
• Viðhalda ástandsvitund netöryggismála innan netumdæmis Íslands
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi CERT/CSIRT teyma
• Ráðgjöf og upplýsingagjöf varðandi netöryggismál
Hæfnikröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem í verk-, tækni- eða tölvunarfræði, eða haldgóða
reynslu á sviði netöryggismála
• Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi
• Gerð er krafa um mikla greiningarhæfni, öguð og skipulögð vinnubrögð í meðhöndlun
atvika og úrvinnslu þeirra
• Búa yfir skilningi á net- og upplýsingaöryggi ásamt færni til að meta upplýsingar um
áhættu og áhrif
• Geta til að miðla tæknilegum upplýsingum til annarra
• Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og í rituðu máli, er áskilin
Sérfræðingur í netöryggissveit Fjarskiptastofu - CERT-ÍS
Fjarskiptastofa óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings í Netöryggissveitina CERT-ÍS. Netöryggissveitin hefur það hlutverk að fyrirbyggja, draga úr og bregðast við hættu vegna netárása
eða hliðstæðra öryggisatvika í þeim tölvukerfum sem falla undir starfssvið hennar.
Sérfræðingur í netöryggissveit mun taka þátt í örum uppbyggingarfasa sveitarinnar og bjóðast góð tækifæri til frekari þróunar í starfi í sveigjanlegu og kviku vinnuumhverfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavottorðs.
Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra.
Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember nk.
Umsóknir óskast fylltar út á Starfatorgi.
Fjarskiptastofa hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Litið er svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Arnar Sigmundsson - gudmundur@fjarskiptastofa.is
Fyrirtæki
ársins 2021
hagvangur.is
20 ATVINNUBLAÐIÐ 20. nóvember 2021 LAUGARDAGUR