Fréttablaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 2
bth@frettabladid.is
Samfélag Tilraunaverkefnið Frí-
stundir í Breiðholti hefur þegar
borið árangur, að sögn Söru Bjargar
Sigurðardóttur, varaborgarfulltrúa
og formanns íbúa ráðs Breiðholts.
Frístundastyrkur fyrir börn í fyrsta
og öðrum bekk í hverfinu hefur
verið hækkaður úr 50.000 í 80.000
krónur í tilraunaskyni en í ljós hafði
komið að börn í hverfinu nýttu frí-
stundastyrki verr en börn í öðrum
hverfum.
Síðastliðið vor skráðu 69 krakkar
sig í frístundastarf sem ekki höfðu
verið þátttakendur áður. Í haust
komu ábendingar um 112 börn
og ungmenni, sem eru nú til með-
höndlunar. „Það er jákvæð þróun í
hverfinu en hún gerist ekki á einni
nóttu,“ segir Sara Björg. Markviss
kynning hafi orðið á íþrótta- og
frístunda starfi í náinni samvinnu
við samtök íbúa af erlendum upp-
runa. Áskorun sé að ná til breiðs
hóps af erlendum uppruna sem
býr í Breiðholti en fjölbreyttur
félagsauður sé einn helsti styrkur
hverfisins. n
Það er jákvæð þróunn
í hverfinu og hún gerist
ekki á einni nóttu.
Sara Björg
Sigurðardóttir,
varaborgar-
fulltrúi
Jólaköttur gengur laus
Hinn rómaði jólaköttur er kominn á sinn stað á Lækjartorgi fjórða árið í röð. Nú bregður hins vegar svo við að hann horfir inn Austurstræti en ekki til Bankastræt-
is eins og á aðventum undanfarinna ára. Jólakötturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Garðlistar og MK-illumination í Austurríki. Fréttablaðið/Ernir
Bæjarráð Hveragerðis óttast
að ný virkjun á Folaldahálsi
verði aðeins upphafsskref inn
á verðmætt náttúrusvæði.
Verkfræðistofan Efla segir
svæðið við háspennulínur,
sem séu mun meira afgerandi
en virkjunin verði.
gar@frettabladid.is
umhverfiSmál „Við teljum okkur
þurfa að standa í lappirnar gagnvart
þessu,“ segir Eyþór H. Ólafsson, for-
maður bæjarráðs Hveragerðis, um
eindregin mótmæli ráðsins vegna
áforma um 3,9 megavatta gufuafls-
virkjun á Folaldahálsi í landi jarðar-
innar Króks.
„Bæjarráð harmar að ekkert til-
lit skuli hafa verið tekið til harðra
mótmæla Hveragerðisbæjar við
áform um virkjun á Folaldahálsi,“
segir í bókun ráðsins, sem kveður
stórbrotið landslag og fjölbreytni
í jarðfræðilegri gerð vera dýrmæta
auðlind fyrir framtíðarkynslóðir.
„Almannahagsmunir hljóta að
liggja miklu frekar í verndun svæð-
isins en röskun þess til minni háttar
orkunýtingar,“ segir bæjarráðið.
Eyþór segir málið eiga sér forsögu.
Hvergerðingar hafi barist gegn bæði
skjálftum frá Hellisheiðarvirkjun og
mengun frá gufuvinnslu á svæðinu.
Þótt menn séu kannski komnir fyrir
það, þá hræði sporin.
„ Þega r Bit r uv irk ju n va r í
umhverfismati, fyrir hana mátti
ekki einu sinni hafa Hveragerði
inni á kortinu, því það hefði komið
svo illa út. Sem betur fer tókst
okkur að stöðva hana,“ segir Eyþór.
„Og svo höfum við orðið vör við að
það hefur dregið niður í orkunni í
Hveragerði en það vill enginn viður-
kenna það.“
Folaldaháls er norður af Hvera-
gerði í átt að Þingvallavatni, upp
af hæðunum ofan við Reykjadal.
Eyþór segir að þótt virkjunin fyrir-
hugaða á Foldaldahálsi eigi að vera
frekar lítil séu Hvergerðingar á varð-
bergi.
„Það er gríðarlega falleg náttúra
á þessu svæði og um leið og það er
hleypt inn á það – þótt ekki sé nema
pínulítilli virkjun sem hefði sem slík
kannski lítil áhrif – þá eru menn
komnir með annan fótinn inn á
svæðið með framkvæmdir, bor-
palla og vegi og vilja kannski halda
áfram,“ útskýrir Eyþór.
Nú liggur fyrir tillaga að aðal-
skipulagsbreytingu sem felur í
sér skilgreiningu iðnaðarsvæðis á
Folaldahálsi fyrir gufuaflsvirkjun.
Frestur til að skila inn athuga-
semdum er til 17. desember og vís-
aði bæjarráð Hveragerðis málinu til
frekari umsagnar hjá skipulags- og
mannvirkjanefnd bæjarins.
Að því er fram kemur í greinar-
gerð Ef lu um virkjunaráformin
er gert ráð fyrir þremur bor-
holum ásamt gufuskilju, gufu-
há f i , ása mt g u f u lög nu m og
öðrum búnaði gufuaflsvirkjunar,
auk stöðvarhúss og kæliturna.
Aðkoma að virkjunarsvæðinu er
sögð verða eftir línuvegi Búrfellslínu
3 frá Hellisheiði. Jarðstrengur verði
lagður um 7 kílómetra að bænum
Króki í Grafningi. Raforkuna megi
nýta fyrir sumarhúsabyggð og
mögulega aðra starfsemi í landi
Króks.
„Svæðið sem verður fyrir raski er
fast við háspennulínu og eru möstur
þess mun meira afgerandi í umhverf-
inu en mannvirki gufuaflsvirkjunar-
innar,“ segir í skýrslu Eflu. n
Telja virkjun á Folaldahálsi
ógn við stórbrotið landslag
Núverandi mannvirki á fyrirhuguðu borunarsvæði á Folaldahálsi. Mynd/EFla
Og svo höfum við
orðið vör við að það
hefur dregið niður í
orkunni í Hveragerði
en það vill enginn
viðurkenna það.
Eyþór H. Ólafs-
son, formaður
bæjarráðs
Hveragerðis
Tilraun skilar árangri í Breiðholti
adalheidur@frettabladid.is
lögreglumál Tvær nýjar kærur á
hendur meðhönlaranum Jóhann-
esi Tryggva Sveinbjörnssyni eru
til rannsóknar hjá lögreglu. Þetta
herma heimildir Fréttablaðsins.
Jóhannes var nýverið dæmdur
í sex ára fangelsi í Landsrétti fyrir
fyrir að nauðga fjórum konum.
Ákæra vegna meintrar f immtu
nauðgunar er til meðferðar í Hér-
aðsdómi Reykjaness
Rannsókn málsins hófst fyrir
þremur árum þegar á annan tug
kvenna kærðu Jóhannes fyrir kyn-
ferðisbrot. Verjandi hans, Stein-
bergur Finnbogason, hélt því fram
að þáverandi réttargæslumaður
kærendanna hefði auglýst eftir
brotaþolum í málinu.
Aðspurður segist Steinbergur
ekki hafa séð nýjar kærur, en sam-
kvæmt heimildum á lögregla enn
eftir að taka skýrslur vegna þeirra. n
Tvær nýjar kærur
lagðar fram vegna
meðhöndlarans
Jóhannes var nýlega dæmdur í sex
ára fangelsi fyrir fjórar nauðganir.
2 Fréttir 20. nóvember 2021 LAUGARDAGURFréttablaðið