Fréttablaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 58
Starfsmaður í
vöruafgreiðslu
Smith & Norland vill ráða
starfsmann í vöruafgreiðslu og önnur
lagerstörf.
Starfið felst í vörumóttöku og -afgreiðslu sem og aðstoð við útkeyrslu
vörusendinga til viðskiptavina auk tengdra lagerstarfa.
Viðkomandi þarf að hafa bílpróf. Meirapróf og/eða lyftarapróf auk
almennrar tölvukunnáttu er kostur.
Leitað er að röskum og sjálfstæðum einstaklingi, sem vill takast á við
skemmtilegt starf og hefur áhuga á þjónustu og mannlegum samskiptum.
Stundvísi er krafist. Um er að ræða gott framtíðarstarf hjá traustu og
framsæknu fyrirtæki á rafmagnssviði.
Áhugasamir sendi umsókn á halldorh@sminor.is eða skili slíkri á
skrifstofu fyrirtækisins. Umsóknafrestur er til og með 4. desember.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem algjört trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veita Elín Rut Guðnadóttir, forstöðumaður á sviði upplýsingatækni og gagnasöfnun (elin.rut.
gudnadottir@sedlabanki.is) og Erla Traustadóttir, sérfræðingur á mannauðssviði (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur
er til og með 30. nóvember.
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan og þjónustulundaðan einstakling í
starf sérfræðings í deild þróunar á sviði upplýsingatækni og gagnasöfnunar.
Sviðið sér um þróun, rekstur og viðhald á tölvukerfum, gagnaumhverfi og hugbúnaði bankans. Deildin samanstendur
af teymum hugbúnaðarsérfræðinga, sérfræðinga í gagnasamþættingu og tæknistjórum þróunarinnviða (DevOps).
Teymin sjá um þróun, viðhald og uppfærslur á hugbúnaðarlausnum og gagnainnviðum bankans eins og innlestrar- og
auðgunar ferli og gagnavöruhús.
Sérfræðingur
í gagnasamþættingu
SEÐL ABANKI ÍSL ANDS
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Uppbygging, samþætting og viðhald á
gagnaumhverfi bankans
• Þróun og viðhald á gagnagrunnum, ETL
ferlum, gagnaskilum og gagnaprófunum
• Þróun á vöruhúsi gagna og stoðgögnum
(e. Masterdata)
• Verkefni tengd þarfagreiningu og hönnun
á gagnamódelum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða öðru sem nýtist í
starfi
• Þekking og reynsla á SQL og gagnagrunnsforritun
• Þekking og reynsla á Microsoft SQL gagnagrunnslausnum
(t.d. MSSQL, SSIS, SSAS, SSRS)
• Þekking á XML, XBRL og/eða SDMX er kostur
• Þekking á C#, Python og/eða R er kostur
• Þekking á skýjalausnum (t.d. Azure data solutions) er kostur
• Áhugi á að vinna í Agile vinnukerfi
• Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa sjálf-
stætt og í hóp
• Frumkvæði, skapandi hugsun, jákvæðni og metnaður í starfi
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans
er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal
bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjald-
eyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur
bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku,
þekkingu og framsækni.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka
Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans. Laun greiðast
samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr.
37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
2019 - 2022
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í 50 ár