Fréttablaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 54
Verzlunarskóli Íslands auglýsir laus til
umsóknar eftirfarandi störf:
Aðstoðarmatráður
Um er að ræða 100% starf í mötuneyti skólans
sem þjónar bæði nemendum og starfsmönnum.
Umsækjendur þurfa að búa yfir hæfni í mannlegum
samskiptum og skipulagshæfileikum.
Matartækninám æskilegt eða starfsreynsla í
mötuneyti.
Kvöldræstingar
Um er að ræða hlutastarf við ræstingar skólans
eftir klukkan 17:00 á daginn. Umsækjendur þurfa
að búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum og
samviskusemi.
Við bjóðum:
Góða vinnuaðstöðu.
Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen
skólastjóri.
Umsóknarfrestur er til 1. desember og skal senda
umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið
gunninga@verslo.is
Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 1000 nemendur.
Skólinn er bekkjarskóli. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi
brauta og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum. Samkvæmt
lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða
einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra
hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.
Sunnulækjarskóli
Við Sunnulækjarskóla á Selfossi eru eftirtaldar stöður
lausar til umsóknar
• Kennari á elsta stigi 100% staða
• Kennari til að sinna forföllum 60-100% staða
Í Sunnulækjarskóla eru um 700 nemendur og þar er
lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, einstakling-
smiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda
og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 10 þúsund manns
og lögð er áhersla á öflugt skóla- og frístundastarf
og góða velferðarþjónustu. Skólar og aðrar deildir
fjölskyldusviðs vinna að því að styrkja heildstæða
nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Áhersla er
lögð á snemmtækan stuðning, góð tengsl skóla og
skólastiga og skólaþróunarverkefni sem unnin eru í
anda lærdómssamfélagsins.
Umsóknarfrestur er til 6. desember 2021.
Nánari upplýsingar um störfin eru á ráðningarvef
sveitarfélagsins starf.arborg.is og hjá skólastjóra
í síma 480-5400 og netfang birgir@sunnulaekjarskoli.is.
Sækja þarf um stöðurnar á vef sveitarfélagsins,
starf.arborg.is.
Skólastjóri
Okkur vantar
lyfjafræðing
Bílaapótek Lyfjavals í Hæðasmára auglýsir eftir lyfjafræðingi til starfa.
Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf fyrir áramót.
Áhugasamir sendi fyrirspurnir eða umsóknir ásamt ferilskrá
á netfangið lyfjaval@lyfjaval.is.
Viltu vera með okkur í spennandi vegferð?
Lyfjaval er nú hluti af Lyfsalanum sem rekur 6 apótek.
SPENNANDI STÖRF
HJÁ HEIMAHJÚKRUN HH
VIRÐING - SAMVINNA - FAGMENNSKA
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi,
Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsumdæmi og er með aðsetur að Miðhrauni 4.
Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir,
heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er höfð að leiðarljósi.
Einstaklingshæfð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Eftirfarandi störf eru nú laus til umsóknar:
Nánari upplýsingar veita Sigrún Kristín Barkardóttir sigrun.barkardottir@heilsugaeslan.is
og Hildur Sigurjónsdóttir hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is
Sjá nánar á www.starfatorg.is og á www.heilsugaeslan.is undir laus störf
SJÚKRAÞJÁLFARI
Metur og greinir
líkamlega færni og
heilsu skjólstæðings
sem og stoðkerfis-
vandamál.
SJÚKRAÞJÁLFARI Í
ENDURHÆFINGATEYMI
Metur og greinir líkamlega
færni og heilsu skjólstæðings
og vinnur í nánu samstarfi
við teymi.
HJÚKRUNFRÆÐINGAR
Styðja við einstaklinga og
aðstandendur þeirra ásamt
því að skipuleggja og veita
þá hjúkrun í heimahúsi sem
þörf er á hverju sinni.
SJÚKRALIÐAR
Styðja við einstaklinga
og aðstandendur
og veita hjúkrun
í heimahúsum.
12 ATVINNUBLAÐIÐ 20. nóvember 2021 LAUGARDAGUR