Fréttablaðið - 20.11.2021, Blaðsíða 46
Sviðslistamiðstöð
Íslands
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna-
dóttir (audur@vinnvinn.is) og Jensína K.
Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is).
Sviðslistamiðstöð Íslands gegnir því hlutverki
að styðja íslenskar sviðslistir og auka sýnileika
þeirra og hróður innanlands sem utan.
Tilgangi sínum hyggst miðstöðin ná með
öflugu kynningarstarfi og sértækum
átaksverkefnum sem hvetja til alþjóðlegra
tengsla sviðslistafólks og -stofnana á Íslandi.
Sviðslistamiðstöð veitir upplýsingar, sinnir
fræðslu og annast námskeiðahald.
Að Sviðslistamiðstöð standa 17 stofnanir og
fagfélög sem saman mynda hryggjarstykkið í
íslenskum sviðslistum. Sviðslistamiðstöð er
sjálfseignarstofnun. Hún var formlega sett á
laggirnar í október 2021. Hún hefur sérstaka
stjórn sem ber ábyrgð á rekstrinum og starfar
á grundvelli laga nr. 19/1988 um sjóði og
stofnanir sem vinna samkvæmt staðfestri
skipulagsskrá.
Framkvæmdastjóri
Sviðslistamiðstöð Íslands óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra.
Starfssvið viðkomandi er stefnumótun Sviðslistamiðstöðvar í samráði við stjórn, daglegur rekstur
og uppbygging miðstöðvarinnar.
Leitað er að einstaklingi með þekkingu og brennandi áhuga á sviðslistum og reynslu af störfum
í menningargeiranum. Framkvæmdastjóri heyrir undir stjórn.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Víðtæk reynsla af alþjóðlegu starfi í heimi sviðslista og sterkt tengslanet á þeim vettvangi.
• Reynsla af rekstri og verkefnastjórnun.
• Leiðtogahæfni og lipurð í samskiptum.
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
• Drifkraftur og hæfni til að hrinda verkefnum í framkvæmd.
• Öguð vinnubrögð og lausnamiðuð nálgun í starfi.
• Góð tungumálakunnátta.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 5. desember nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
DEILDARSTJÓRI Á LYFJASVIÐI ICEPHARMA
ICEPHARMA LEITAR AÐ SÖLUDRIFNUM OG METNAÐARFULLUM LIÐSMANNI TIL AÐ LEIÐA EINA AF SÖLUDEILDUM SAMHEITALYFJA
Umsóknir óskast fylltar út á vef Hagvangs, hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt kynningarbréfi sem lýsir hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Við hvetjum hæfileikaríkt fólk til að sækja um, óháð kyni.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og í samræmi við lög um meðferð persónuupplýsinga.
Ert þú leiðtogi með reynslu af lyfjamarkaði, viðskiptum og markaðsstarfi?
Ertu góður liðsfélagi og fær um að starfa í flóknu og þverfaglegu umhverfi?
Þá gætum við verið að leita að þér til að taka við spennandi starfi sem
deildarstjóri hjá Icepharma.
Icepharma býður upp á fjölbreytt og hratt vaxandi vöruúrval samheitalyfja frá
stórum alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum. Starf deildarstjóra felst í því að styrkja
stöðu okkar birgja á íslenskum lyfjamarkaði eftir þremur meginleiðum:
• Að vinna að vexti og aukinni markaðshlutdeild samstarfsaðila
• Að annast markaðssetningu lyfja, þátttöku í útboðum og samskipti
við hagsmunaaðila
• Að greina og sækja tækifæri á markaði
Ennfremur felur starfið í sér þátttöku í verkefnum þvert á rekstrareiningar
í nánu samstarfi við samstarfsfólk hjá Icepharma og móðurfélaginu Ósum.
HÆFNIKRÖFUR:
• Reynsla af markaðssetningu og sölu á heilbrigðisvörum eða lyfjum
• Góð þekking á samheitalyfjamarkaði er kostur
• Háskólamenntun í viðskiptum, heilbrigðisvísindum eða á öðru
sviði sem nýst getur í starfi
• Mikil hæfni til að greina markaðinn og ný viðskiptatækifæri
• Jákvæðni og framúrskarandi færni í tengslamyndun og
mannlegum/rafrænum samskiptum
• Hæfileikar til að vinna faglega, sjálfstætt og skipulega að skýrum
markmiðum
• Reynsla af samningagerð
• Gott vald á íslensku og ensku
Icepharma er í fararbroddi á íslenskum heilbrigðis- og neytendamarkaði. Kjarninn í starfsemi okkar er að auka lífsgæði með
öflugu framboði af heilsueflandi vörum. Hjá fyrirtækinu starfa um 80 manns við sölu og markaðssetningu, sérfræðiráðgjöf og
þjónustu. Við leggjum áherslu á metnað, frumkvæði, gleði og svigrúm starfsfólks til að vaxa og þróast í starfi.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
4 ATVINNUBLAÐIÐ 20. nóvember 2021 LAUGARDAGUR