Heilsuvernd - 01.12.1993, Side 4
Efnisyfirlit
LÍKAMSRÆKT bls. 6
Allir vita að líkamsrækt hefur mikið að segja
bæði fyrir andlega og líkamlega vellíðan en
ekki eru allir jafn duglegir við þá iðju. Þó má
segja að verulega hafi áunnist hérlendis á
síðustu árum og að stöðugt fleiri stundi
íþróttir eða hreyfingu í einu eða öðru formi.
Rætt er við Hilmar Bjömsson, fram-
kvæmdastjóra Forvarnarstöðvarinnar
Máttar, sem m.a. gefur fólki ráð um hvemig
það á að haga líkamsrækt sinni og hvað eigi
að varast þegar af stað er farið. Eins er rætt
við nokkra einstaklinga á misjöfiium aldri
sem stunda líkamsrækt.
NEYSLA TREFJARÍKS
FÆÐIS bls. 10
Talið er að fjöldi sjúkdóma í velferðarþjóðfé-
lögum eigi rætur að rekja til skorts á trefjum
í fæðunni. í ítarlegri grein er fjallað um gildi
þess að neyta fæðis sem er trefjaríkt og
veittar upplýsingar um trefjainnihald matar-
tegunda.
BÓLGNIR LIÐIR bls. 15
Liðagigt er sjúkdómur sem herjar á fólk á
öllum aldri og enn sem komið er hefur
læknavfsindunum gengið illa að ráða við
hann. Til em ýmis ráð til þess að takast á við
þetta vandamál svo sem fram kemur í grein
blaðsins um málið.
KULNUN Bls. 22
Flestir hafa sennilega upplifað kulnun - það
að finna sig engan veginn og vera haldin
vanh'ðan bæði í vinnunni og í einkalífinu.
Með þvf að íhuga vandamálið og gera sér
grein fyrir því, orsökum og afleiðingum, er
hægt að gera ýmislegt til þess að vinna bug á
því. Grein blaðsins er byggð á athyglis-
verðri grein sem birtist í sænsku blaði um
málið.
REYKINGAR Bls. 28
N okkrir áfangasigrar hafa unnist í baráttunni
gegn reykingum á Islandi þótt enn sé langt í
land að ástandið geti talist gott. Halldóra
Bjamadóttir, formaður Tóbaksvamanefnd-
ar, greinir frá því í viðtali við blaðið hvað
nefndin aðhefst og ræðir stefnu í tóbaks-
vömum hér á landi. Rætt er við einstaklinga
sem sigrast hafa á tóbaksfíkninni.
FRÉTTIR ÚR
ÝMSUM ÁTTUM bls. 37
í fréttasyrpu blaðsins er víða komið við og
greint er frá mörgum nýjungum á sviði
Iæknavísinda og heilsuvemdar.
EKKERT STRESS bls. 46
Margir verða fyrir miklu áreiti í daglegum
störfum sínum og smátt og smátt hleðst upp
spenna sem oft veldur vanlíðan. Það er hins
vegar hægt að stunda einfaldar æfingar,
jafnvel í stólnum sfiium, sem geta komið að
góðu gagni.
Barátta við
vágest
I viðtali vð Halldóru Bjarnadóttur, formann Tóbaksvarnanefndar, sem
birtist í þessu blaði kemur fram að töluvert hefur áunnist í tóbaksvöm-
um og baráttu gegn tóbaksreykingum hér á landi. Hún nefnir sem dæmi
að könnun, sem gerð var árið 1985, hafi leitt í Ijós að um 40% fólks á
aldrinum 18-69 ára reykti en þetta hlutfall var komið niður í tæp 29%
árið 1993. Þeim vinnustöðum, þar sem tóbaksreykingum hefur verið
úthýst, fer stöðugt fjölgandi og hömlur gegn reykingum hafa víða verið
auknar til muna og hefur það tvímælalaust skilað árangri og aukið rétt
þeirra sem ekki reykja.
En þótt áfangasigrar hafi unnist í baráttunni gegn tóbaksreykingum
er ástandið þó enn langt frá því að vera gott og það er vissulega áhyggju-
efni ef sú er raunin að reykingar ungs fólks séu aftur að aukast. Það eitt
sýnir að aldrei má slaka á klónni - áróður gegn reykingum þarf að vera
og á að vera stöðugur og þá fýrst og fremst í upplýsingaformi. Það þarf
einfaldlega að gera ungu fólki ljóst hversu mikill skaðvaldur reyking-
amar em. Einnig þarf að gera því grein fyrir þeirri einföldu staðreynd að
það er afskaplega auðvelt að venja sig á að reykja en getur verið gífur-
legt átak og jafnvel ómögulegt að venja sig af reykingunum.
Allt of litlu fjármagni er varið til tóbaksvarna á fslandi. Stórra skrefa í
þá átt að kveða þennan fíknidraug niður á tiltölulega skömmum tíma er
varla að vænta nema unnt sé að hafa í gangi viðvarandi forvarnarstarf og
jafnvel ætti það að vera sjálfsagt að veita þeim einstaklingum, sem vilja
hætta en geta það ekki, læknisfræðilega aðstoð, rétt eins og áfengis-
sjúklingar fá. Hægt væri að hugsa sér sérskatt á tóbak sem væri varið
beint til forvarnarstarfs en varla er þess að vænta að slíku fyrirkomulagi
verði komið á. Vissulega er tóbak hátt sköttuð vara en peningamir, sem
ríkið hirðir þannig, fara til annarra þarfa.
Við hátíðleg tækifæri er stundum talað um að stefna beri að reyklausu
íslandi árið 2000. Slíkt takmark er algjörlega óraunhæft nema hið
opinbera marki sér ákveðna stefnu í tóbaksvamamálum og leggi fjár-
muni í harðari baráttu gegn þessum heilsuvágesti en verið hefur.
HEMJVEMD
4. tbl. 1993 48. árg.
RITSTJÓRI:
SteinarJ. Lúðvíksson.
FULLTRÚINLFÍ
í ritstjórn:
Gunnlaugur K. Jónsson.
FAGLEG RÁÐGJÖF:
Guðmundur Bjömsson yfirlæknir
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Erla Harðar
ÚTGEFANDI:
FRÓÐIHF. í samvinnu
við NLFÍ
STJÓRNARFORMAÐUR:
Magnús Hreggviðsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Halldóra Viktorsdóttir
VERÐ í ÁSKRIFT:
kr. 398,00 pr. eintak
Ef greitt er með greiðslukorti
kr. 358,00 pr. eintak.
VERÐ f LAUASÖLU:
Kr. 495,00 irnVSK
Blaðið er unnið í
G. Ben. prentstofu hf.
FORSÍÐUMYND:
Gunnar Gunnarsson.