Heilsuvernd - 01.12.1993, Síða 7

Heilsuvernd - 01.12.1993, Síða 7
MYNDIR: GUNNAR GUNNARSSON Guðjón Sigurbjörnsson, sextugur læknir: Ekki fædd til kyrrsetu vöðvana og eykur þolið,“ segir Hilm- ar í upphafi viðtalsins. „Þar sem eldra fólki getur orðið meint af skyndilegri líkamlegri áreynslu er gott að nota það sem mælikvarða að ganga ekki hraðar en svo að maður geti haldið uppi samræðum á meðan. Því er ekki úr vegi að hafa einhvem með sér og helst alla fjölskylduna í tilefni Ars fjöl- skyldunnar.“ Og Hilmar heldur áfram: „Eitt af heilsumarkmiðum Alþjóðlegu heil- brigðismálastofnunarinnar er að fólk stundi þolþjálfun sem styrkir hjarta- og æðakerfið. Það á helst að gera þrisvar í viku og 20-30 mínútur í senn. Að sjálfsögðu er hægt að gera það á fleiri máta en einungis með sundi og göngum og mörgum finnst til dæmis skíðaganga og hjólreiðar skemmti- legri. Ein íþrótt kallar líka oft á aðra. Göngumann langar ef til vill að prófa að fara á gönguskíði þegar snjóa tekur eða skella sér í sund þegar sést til sólar. Allir geta hafið þjálfun og skiptir þá engu máli á hvaða aldri fólk er. Islend- ingar hafa gefið of lítinn gaum að því hvað líkamsþjálfun er mikilvæg eldra fólki. Hinar Norðurlandaþjóðimar eru aftur á móti löngu búnar að uppgötva að íþróttir seinka öldrunareinkennum og hafa verið framarlega í þjálfun þessa aldurshóps. Þeir, sem fundið hafa fyrir veikindum og hafa ekki þjálf- að mjög lengi, ættu þó að ráðfæra sig við lækni áður en þeir byija að æfa. Markmið þjálfunarinnar breytist eftir því sem árin líða. Fram til fimmtugs getur maður vænst árangurs og aukið hann. Þegar komið er yfir þann aldur reynir maður að halda því sem náðst hefur.“ Hilmar segir að það sé reynsla sín af þeim, sem nýbyrjaðir em að stunda líkamsþjálfun að þeim sé nauðsynlegt að komast yfir ákveðið tímabil til þess að þjálfunin verði hluti af daglegu lífi þeirra. „Það tekur að minnsta kosti 6-8 vikur og er þá miðað við að þjálfað sé þrisvar sinnum í viku. Þá fer fólk að finna vellíðunina sem fylgir því að þjálfa líkamann. Fólk þarf að gera ráð fyrir hreyfingunni á vikuáætluninni því hún má ekki vera háð tilviljunum. Það á enginn að segja að hann fari „einhvem tímann á eftir“ að æfa enda verður oft h'tið úr því. En ef eitthvað „Ég hef stundað sund frá því að ég var 7 ára að aldri. Astæðan var upphaflega sú að ég var með hryggskekkju og gat því ekki verið í leikfimi með bekkjarsystkinum mín- um. Mamma mín hafði heyrt að það væri hollt að synda og sendi hún mig því í Sundhöll- ina, enda bjuggum við skammt frá. Fljótlega fór ég að æfa sund með Ægi og keppti í nokk- ur ár. Einnig stundaði ég sund- knattleik. Nú mæti ég hvern morgun nema á sunnudögum klukkan sjö í Sundhöllina og syndi rösk- lega 250 metra. Því miður hef ég ekki tíma til að synda lengur því ég þarf að mæta til vinnu hálftíma síðar. Mér finnst bráðnauðsynlegt að byrja hvern dag á að fara í sund. Það er ekki aðeins hreyfingarinnar vegna heldur fæ ég líka félags- lega ánægju út úr því. Þarna hittir maður félaga sína og ræðir við þá dægurmálin áður en amstur dagsins tekur við. Konan mín og ég erum svo heppin að eiga sumarbústað í Grafningnum og reynum við að hreyfa okkur þar sem mest úti við. Við förum í langar göngu- ferðir, stundum vatnaveiði og berjatínslu. Við gætum þess að láta veðrið ekki á okkur fá og klæða okkur bara eftir því hvemig viðrar. Ég ráðlegg öllum að taka lýsi og hreyfa sig sem mest. Sund og göngur henta miðaldra og eldra fólki sérstaklega vel því þar er minni hætta á slysum en í öðrum íþróttagreinum. Við erum ekki fædd til kyrrsetu og verðum að hreyfa okkur reglu- lega til að líkaminn geti starfað eðlilega. Þannig fyrirbyggjum við líka sjúkdóma.“ 7

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.