Heilsuvernd - 01.12.1993, Blaðsíða 17
MEGRUN
V anlíðan þarf ekki
að fylgja megruninni
Mataræði, sérfæði, megrun og svelti. Allt
eru þetta hálfgerð vandræðanjöfn. Þegar
hugsað er um megrun er ekki laust við að
hálfgerð vanlíðan komi upp í hugann. Öll
þessi orð tengjast á einhvern hátt því böli sem
svo margir kannast við eftir að þeir reyndu að
losna við aukakílóin. Algengt er að menn
ákveði einn daginn að nú skuli aukakílóin
tekin föstu taki. Þá er jafn algengt að menn
borði það lítið að hungurverkir og sjálfsvork-
unn verði það eina sem afrekast þann daginn.
Sá dagur endar síðan í einni hungursprengju
um kvöldmatarleytið þar sem allt, sem er í
ísskápnum, er étið upp.
Hvemig væri að léttast án þess að minnka til-
finnanlega hitaeiningarnar og þurfa að ganga í
gegnum slíkt píslarvætti sem megrun er? Ætli það
sé hægt? Jú, eins og þú munt sjá á eftirfarandi rök-
stuðningi og punktum þá er það að fara á eitthvað
sérfæði ekki eina ráðið til þess að vera grannur og
hraustlegur. Auðviðað hefur rétt mataræði sitt að
segja eða réttara sagt réttar matarvenjur hafa sitt
að segja.
Við skulum fara yfir helstu galdraformúlurnar
sem ættu að færa okkur nær takmarkinu án þess
að þurfa að skera verulega niður hitaeiningarnar.
Það sem skiptir máli er að taka upp réttar matar-
venjur, ekki að svelta sig.
1. ÚTRÝMDU SJOPPUFÆÐI
OG UNNUM MAT
Þetta fellur undir almenna skynsemi. Þessar
fæðutegundir eru þekktar fyrir að innihalda mikið
af einföldum sykri, fitu og salti. Þær innihalda
einnig ótrúlega mikið magn af hitaeiningum.
2. BORÐAÐU SEM MEST
FYRIR SEM MINNST
Spumingin snýst um það að velja rétt. Hver
kannast ekki við það að borða tvær brauðsneiðar
með smjöri og osti í morgunmat? Þær em svo sem
ágætar í sjálfu sér. En hver verður saddur af
tveimur brauðsneiðum? Hugsaðu þér eftirfarandi:
IHHHRHHRRHRHHHRNNNMMHNMHRHHNMRHHHHHMHHHHHHMHHHHHHHH
I staðinn fyrir þessar tvær brauðsneiðar gætirðu
borðað annaðhvort 6 epli, 1,7 kg af káli, hálft kíló
af skyri eða 10 sneiðar af hrökkbrauði með létt-
osti, tómatsneiðum og gúrku! I smjörinu, sem not-
að er á tvær brauðsneiðar (20g), eru jafn margar
hitaeiningar og í 700 g af tómötum eða einu kílói
af gúrkum. ímyndaðu þér í huganum hversu miklu
meira þú getur borðað í þessum tilfellum heldur
en það litla sem þú færð með þessum tveimur
brauðsneiðum. Ekki er ætlast til að einhver hafi
áhuga á því að borða sex epli í einu eða nær tvö
kíló af káli. Nei, þetta er aðeins gróft dæmi sem
sýnir hvað sé hægt að gera með því að kynna sér
hitaeiningainnihald þeirra fæðutegunda, sem í
boði eru, og velja rétt. Það er ekki ætlunin hér að
telja upp ótal fæðutegundir sem draga má í dilka
sem hollar og óhollar. Slíkt er allsveigjanlegt og
fer eftir því hver á í hlut en það skynsamlegasta,
sem fólk gerir, er að verða sér úti um næringar-
efnatöflu. Þar sést svart á hvítu hver hitaeininga-
L
17