Heilsuvernd - 01.12.1993, Blaðsíða 30

Heilsuvernd - 01.12.1993, Blaðsíða 30
TOBAKSVARNIR ekki hrifin af því að vera með hræðsluáróður og síst gagnvart börn- um og unglingum. Þess í stað vil ég til dæmis fræða unga fólkið um hvað reykingar séu óheilsusamlegar fyrir tennumar og húðina. Ég fer reglulega í skólana og fræði nemendur á aldrinum 11-16 ára um skaðsemi reykinga. í upphafi fjalla ég um hvað sé í tóbaki en í eldri bekkjun- um segi ég frá áhrifum þess á líkam- ann. Svo tala ég um hvernig hægt sé að neita því að byrja að reykja þótt félagarnir hvetji mann til þess. Margir unglingar hafa sagt mér að þegar þeir drekki vín sé ómissandi að reykja líka. Nú virðist vínið koma fyrst og síðan sígarettan en ekki öfugt eins og gerð- ist áður fyrr. Ég hef það á tilfmningunni að reyk- ingar séu að aukast nú meðal ungl- inga. Líklega á hippatískan, sem ríkt hefur meðal þeirra undanfarin ár, sinn þátt í því. Notkun á hassi og LSD er til dæmis sú sama og fyrir 20 árum.“ Halldóra segir að fleiri unglings- stelpur hefji reykingar en strákar. „Kannski er það vegna þess að þær eru bráðþroskaðri en þeir. Þær vilja fyrr fara að sýna sjálfstæði og gera það meðal annars með því að fara að fikta við reykingar. „Mig grunar aftur á móti,“ segir Halldóra, „að stákamir neyti meira neftóbaks en þær og illu heilli hefur neysla þess aukist á undanförnum ár- um. Árið 1985 voru flutt inn í landið 45 kg af fínkomuðu snuffi en sjö árum síðar voru kílóin orðin 1200. Ungling- ar hugsa lítið um að reykingar geti kostað þá 100.000 krónur á ári. For- eldrarnir myndu eflaust taka fyrir vasapeningana ef þeir vissu að þeir færu að mestu í tóbak.“ Reykingafólki er boðið upp á ýmis námskeið til að auðvelda því að hætta að reykja, takist því það ekki af sjálfs- dáðum. Af þeim má nefna námskeið Þorsteins Blöndals læknis á Heilsu- verndarstöðinni í Reykjavík. Hann hefur verið að gera tilraunir með sér- stakan nefúða sem á að úða upp í nefið finni maður fyrir löngun í tóbak. Norðlendingar geta leitað til Krabba- meinsfélags Akureyrar og nágrennis. Krabbameinsfélagið í Reykjavík býð- ur upp á einstaklings- og fyrirtækja- framhald á bls. 54 fyrir okkur sjálf „Það eru sex mánuðir síðan ég hætti að reykja en ég byrjaði á því fyrir 25 árum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég reyni að hætta. Áður hafði ég alltaf reynt að finna einhverjar ástaeður til að geta byrjað aft- ur. Ég var reyndar búin að til- kynna fjölskyldunni að ef ég fitnaði myndi ég hætta við að hætta eina ferðina enn. Það hefur þó ekki gerst ennþá. Eina hjálparmeðalið, sem ég hef notað, er nikótíntyggjó. Ég byrjaði að reykja þegar ég vann næturvaktir á spítala þar sem starfsfólkið drakk kaffi og reykti alla nóttina. Þá fór ég líka að fikta. A þeim tíma var mikið reykt á spítölum en svo fór það úr tísku með auknum áróðri gegn því. Nú finnst mér það aftur á móti vera að færast í vöxt á ný. Þegar sett var bann við reyk- ingum á Ríkisspítölunum hætti ég að reykja í vinnunni. Ég lét ekki hafa mig út í að standa úti í kulda og trekk með sígarettuna. En ég vann aðeins hálfan daginn svo ég hélt áfram að reykja pakka á dag heima hjá mér. Nú líður mér mun betur en áður og mig langar alls ekki til að kveikja mér í sígarettu. Þessu fylgir heldur ekki aðeins líkamleg og andleg vellíðan heldur er líka betri lykt í íbúð- inni. Það sem mér finnst mikil- vægast, þegar fólk hættir að reykja, er að það finni að það sé að hætta fyrir sjálft sig en ekki einhvern annan. Annars tekst aldrei að drepa í síðustu sígar- ettunni." Björg Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur: Verðum að hætta 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.