Heilsuvernd - 01.12.1993, Qupperneq 39

Heilsuvernd - 01.12.1993, Qupperneq 39
FRETTIR Viðvarandi sársauki Rannsóknir hafa leitt í ljós að konur, sem beittar hafa verið ofbeldi eða mis- notaðar kynferðislega, virðast næmari fyrir sárs- auka en þær sem sloppið hafa við slíkar hremming- ar. Það eru sérfræðingar við Carolina háskólann í Bandaríkjunum sem hafa rannsakað þetta að undan- fömu og kunna þeir engar skýringar á því hvemig á þessu stendur. Þeir segja að um 45% þeirra kvenna, sem lagðar em inn á sjúkrahús vegna óskýran- legra verkja í kviðarholi og móðurlífi, hafi lent í því að vera ógnað eða misnot- aðar kynferðislega. Þeir telja ekkert vafamál að meginskýring hinnar líka- mlegu vanlíðunar kvenn- anna sé af því að tauga- kerfið hafi orðið fyrir áfalli og undirmeðvitundin sé í stöðugri vamaðarstöðu. I mjög mörgum tilfellum ræddu konumar ekki þessa reynslu sína við læknana áður en þær vom lagðar inn til rannsókna. E-vítamín hindrar hjartaáföll Bandarískir vísinda- menn greindu nýlega frá viðamiklum rann- sóknum sem þeir gerðu á virkni E-vítamíns. Alls tóku um 130 þús- und manns þátt í rann- sóknunum og voru helstu niðurstöður þeirra þær að margt bendi til þess að E-víta- mín geti dregið veru- lega úr líkum þess að fólk fái hjartaáfall. Þeir, sem tóku þátt í rannsóknunum, tóku reglulega E-vítamín- pillur í tvö ár og til sam- anburðar var hafður annar jafn stór hópur sem ekki tók vítamínið. Niðurstöður bentu til að með því að taka víta- mínið minnkuðu líkur á hjartaáfalli um hvorki meira né minna en 40%. Það kom líka fram að ekkert vannst með því að taka stóra skammta af vítamíninu og gat það meira að segja virkað neikvætt. (Úr New England Joumal of Medicine) Viðamikil sykursýkis- rannsókn Nýlega vom kynntar niðurstöður úr viða- mikilli rannsókn á syk- ursjúku fólki sem fram fór á vegum Bandar- ísku heilbrigðismála- stofnunarinnar (U.S. National Institutes of Health). Tæplega fimmtán hundmð syk- ursýkissjúklingar tóku þátt í rannsókninni, sem staðið hefur í tíu ár, og er kostnaður við rannsóknina orðinn upphæð sem svarar til tíu milljarða íslenskra króna. Þátttakendum í rannsókninni var skipt í tvo hópa. Þeir, sem vom í öðmm hópnum, fengu venjulega og það sem kalla má hefð- bundna meðferð en fylgst var sérstaklega vel með fólkinu sem var í hinum hópnum. Blóð- sykur þess var mældur að minnsta kosti fimm sinnum á dag, það fékk þrjár insúlínsprautur daglega og fylgst var mjög vel með mataræði þess og þess gætt að það neytti ekki fæðu sem var því óheilsu- samleg. Eftir tíu ár kom glögglega í Ijós að heils- ufar þess fólks, sem fylgst var vel með og fór eftir strangari reglum varðandi mataræði en gerist og gengur, var miklu betra en hinna og alvarleg áhrif sykur- sýkinnar komu síður fram. Þannig var það undantekning ef ein- staklingar, sem voru í þeim hópi, fengu verstu sjúkdómana sem fylgja sykursýki, svo sem sjónmissi og alvarlega nýmasjúkdóma. Lík- legt má teljast að niður- staða úr rannsókn þessari verði til þess að breyta meðferð sykur- sjúkra og bæta tækni til þess að fylgjast betur með veikinni, svo sem með mælingu blóðsyk- urs. 39

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.