Strandapósturinn - 01.06.1969, Side 49
Verzlun óx stóram við það að spekúlantar komu., t.d. var
áður tekið til meðal heimilis 5 pund af kaffi til ársins, en nú
um 30 pund. Áður 5—6 pottar af brennivíni, en nú þótti ekki
mikið þó tekin væri tunna.
Kornvara var flutt laus í skipunum, en brennivinstunnur og
kvartil vora á dreif innan um kombinginn og þurfti þá oft að
grafa upp ef eftirspumin var meiri eftir brennivíninu en kom-
matnum. Komvaran var í stórlestinni en tjara og járn í fram-
lestinni.
Til meðalheimiiis (10—12 manna) voru teknar 7 tunnur af
kornmat. Rúgmjöls-hálftunnan (80 pund) kostaði 8 dah. Sama
verð var á ertum og rúgi, en bankabygg var tveim dölum dýr-
ara og sama verð var á heilrís og hálfrís, sem selt var í 100
punda pokum. Þekktist sú kornvara ekki þar um slóðir fyrr en
spekúlantamir komu. Brennivínspotturinn kostaði mark, en í
tunnum kostaði hann 14 skildinga og fylgdi tréð með gefins. Ann-
að áfengi var extrakt, mjöð og rauðvín. Bæerst öl höfðu spekúlant-
ar einnig, en aðeins sem skipsforða og seldu það ekki, en veittu
einstaka mönnum. Rjól kostaði túmark, en rulla 4 mörk. Vindlar
kostuðu ríkisdal hundraðið, slæm tegund, en aðrir mjög dýrir.
Lítið var um reyktóbak, var það selt í bréfum „Kardus“, „Bisk-
up“, og „Blámaður."
Ull var tekin á túmark pundið, tólg á ríkisort og sellýsi 25
dali tunnan. Var þetta aðalvara landsmanna. Þá voru og lamb-
skinn keypt á 8 skildinga, tófuskinn mórauð á 4 dali, en hvít á
2 dali. Selskinn vom ekki seld.
Framan af komu spekúlantar sér saman um vömverðið áður
en þeir byrjuðu verzlunina, en er Glad spekúlant kom á skipi
sínu Agnet í Köje, þá sveik hann alla samninga. Seldi miklu
ódýrar og gaf betur fyrir innlendu vörana. Glad seldi t.d. kaffið
á 20 skildinga, sem hinir seldu á ríkisort. Kom Glad hvert sum-
arið eftir annað og urðu hinir spekúlantarnir að breyta vöraverði
sínu eftir honum hvort sem þeim var það ljúft eða leitt.
Áríð 1853 kom og Jóhannes forgylti frá Reykjavik. Var það
skip Grósseraverzlunarinnar og með því Jón Stefánsson frá
Straumi á Skógarströnd, hét Clausen skipstjóri. Ekki kom það
47