Strandapósturinn - 01.06.1969, Blaðsíða 92
Ég veit þú getur gert þér í hugarlund hvemig við vorum
fyrirkallaðir þegar kom að lokaþættinum kl 6 um kvöldið.
Rétt fyrir hádegi var fyrsti meistari búinn að saga í sundur
loftrör frá vatnstank, sem var undir gólfinu í lúkamum og var
hægt að dæla úr honum frá vélinni. Niður um þetta loftrör
var svo ýmist látið renna eða ausið upp í það.
Fram að hádegi virtist okkur sjórinn hafa hækkað um eina
tröppu í stiganum, en við það var bezt að miða. Eftir að búið
var að saga sundur rörið, virtist okkur að það hækkaði ekki að
mun.
Um klukkan hálf þrjú var togarinn Bjami Olafsson kominn
til okkar. Sjórinn fór sífellt hækkandi í lúkarnum, enda fór
veður versnandi og allar aðstæður að sama skapi.
Allan tímann, sem við vorum fram í, létum við í ljós við
fyrsta stýrimann álit okkar á því hvað sjórinn hækkaði mikið
í lúkarnum, þó sérstaklega síðasta klukkutímann, að ég sagði
honum að þetta væri þýðingarlaust. ,
Ég veit að þú myndir spyrja: ”Hvers vegna tókuð þið ekki
til ykkar ráða?” En því er til að svara: Við eram skyldir til
að hlýða yfirmönnunum, og ef við gerum það ekki, emm við
áhtnir kjarklausir letingjar og einskisnýtir til sjós, í öðm lagi,
almannarómurinn, ef skipið hefði flotið eitthvað lengur. „Þeir
hefðu getað haldið skipinu uppi, ef þeir hefðu haldið áfram.“
Og svo höfðum við aldrei tækifæri til að ræða máhð, þarna var
öll okkar hugsun bundin við að reyna að bjarga skipinu.
Rétt fyrir klukkan sex sáum við að sjórinn hækkaði mjög
ört í lúkarnum og vatnstankurinn orðinn fullur og illverjandi
þama niðri, þá fór fyrsti stýrimaður aftur fyrir, en gaf okkur
enga skipun.
Við vomm þá fimm hásetar og annar stýrimaður eftir fram
í lúkar. Ég gaf þá skipun um að allir skyldu fara aftur fyrir,
en annar stýrimaður vildi þá ekki hætta, hann vildi fá skipun
frá sér æðri mönnum. Þó kom hann upp þegar hann sá að
allir vora famir upp og fór hann undir hvalbak, en þar var
einn háseti sem var að sjá sér út lag til að komast aftur fyrir
og annar stýrimaður hefur ætlað að gera það hka, en þeir hafa
90